Ýmsar ástæður fyrir því að það gæti dregist að ná fullum efnahagsbata

Már Guðmundsson segir að það sé vandrataður meðalvegur á milli skemmri tíma verndar fyrir fyrirtæki og að hamla ekki æskilegri aðlögun að nýjum aðstæðum.

Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri
Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri
Auglýsing

Ýmis­legt bendir til þess að fullur efna­hags­bati náist ekki mjög skjótt eftir að far­sótt­inni er lokið en efna­hags­bat­inn gæti orðið kröft­ugur framan af eftir að tak­mörk­unum er létt. Það helg­ast af því að þá er verið að taka í notkun vinnu­afl og fram­leiðslu­tæki sem eru ónýtt en það er fljót­legri leið til vaxtar en að skapa störf með fjár­fest­ingum í nýrri fram­leiðslu­starf­semi. Þetta skrifar Már Guð­muns­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri í grein sinni í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem birt­ist í gær.

Sam­kvæmt grein Más er efna­hags­sam­drátt­ur­inn sem varð í far­aldr­inum ólíkur flestum öðrum efna­hags­sam­drátt­um, þar sem hann átti hvorki rætur að rekja til efna­hags­legs ójafn­vægis í aðdrag­and­anum né eyði­legg­ingar á fram­leiðslu­getu. Þetta hafi vakið vonir um að efna­hags­bat­inn gæti orðið hraður eftir far­ald­ur­inn..

Már segir þó slíkan við­snún­ing munu óvíð­ast ganga full­kom­lega upp, þar sem fram­leiðslu­geta gæti hafa skerst a meðan á far­aldr­inum stóð. Þessi skerð­ing gæti hafa orðið vegna þess að hæfni atvinnu­lausra hafi minnk­að, fram­leiðslu­tæki hafi verið flutt úr landi eða vegna þess að við­skipta­sam­bönd hafi glat­ast.

Auglýsing

„Auk þess ýmis­legt sem bendir til þess að far­ald­ur­inn muni leiða til breyt­inga á neyslu­mynstri og skipu­lagi fram­leiðslu sem muni kalli á til­færslu fram­leiðslu­þátta og aðra aðlög­un,“ segir Már. „Þá er lík­legt að var­úð­ar­sparn­aður heim­ila verði að óbreyttu meiri og fjár­fest­ing­ar­vilji fyr­ir­tækja minni á næstu árum sakir þess að kreppan hefur fært þeim þau skila­boð að umhverfi þeirra er áhættu­sam­ara en þau töldu áður,“ bætir hann við.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent