Hraustir menn

Sparkvarps­þáttur vik­unnar fer að mestu í vanga­veltur um vall­ar­mál á Íslandi. Á síð­ustu árum – þá sér­stak­lega eftir að vel­gengni karla­lands­liðs­ins í fót­bolta – hefur umræðan auk­ist um hvort byggja þurfi nýjan þjóð­ar­leik­vang. Annar mögu­leiki væri að breyta núver­andi leik­vangi, stækka hann og taka hlaupa­braut­ina eða ein­fald­lega halda sér við núver­andi völl. Drengirnir hafa miklar skoð­anir á þessum hlutum og létu þær flakka í þætt­in­um.

Einnig sner­ist umræðan um hvort vellir lands­ins ættu að vera gamla góða túnið eða gervi­gras. Róm­an­tíkin ríg­heldur í grasið græna á meðan aðrir sjá ekk­ert nema gervi­gras sem lausn fót­bolta­valla á Íslandi.

Þeir fóru yfir hvaða vellir á land­inu er í upp­á­haldi og hvort að stúk­urnar ættu að heita eftir bestu leik­mönnum félags­lið­anna eða lands­lið­anna. Væri mögu­legt að spila lengra tíma­bil ef leik­menn væru með með vett­linga og húfur eins og tíðkast erlend­is?

Í lokin kom upp afar áhuga­verð hug­mynd að nýju stuðn­ings­manna­lagi karla­lands­liðs­ins í fót­bolta sem Tólfan ætti endi­lega að skoða.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023