Það sem þú manst ekki skaðar þig

Þorgeir Tryggvason mun fram að jólum skrifa um bækur. Hann tekur í dag fyrir bók Auðar Jónsdóttur, Stóra skjálfta, sem gefin er út undir merkjum Máls og menningar.

Auglýsing

Hvi­lík grunn­hug­mynd!

Ung floga­veik ein­stæð móðir fær þrjú alvar­leg ­flog og upp­sker eyður í minni sitt. Þegar hún hefst handa við að fylla í þær ­með hjálp vina og fjöl­skyldu kemur í ljós að það var fleira en flogin sem hafð­i máð út minn­ing­ar. Sár og mis­kunn­ar­laus for­tíðin laum­ast að Sögu inn um þær glufur sem hún neyð­ist til að opna til að end­ur­heimta líf sitt.

Það flækir líka ferlið að hún treystir eig­in­lega engum fyrir sanneik­anum um minnis­leysið, aðal­lega af ótta við að þær ­upp­lýs­ing­arnar svipti hana for­ræði yfir barn­inu, á sama tíma og hún óttast hugs­an­legar afleið­ingar ástands­ins fyrir öryggi drengs­ins. Eðli­lega.

Auglýsing

Það tók Stóra skjálfta all­nokkra kafla að kló­festa athygli mína til fulls. Meðan Saga er á valdi frumrugls­ins þurfti smá aga til að elta hana um óreið­una. Eins finnst mér Auður stundum neyð­ast til­ þess fyrstu köfl­un­um, plotts­ins vegna, að sveigja raun­sæi sam­tala nokk­uð hressi­lega í þágu spennu­við­hald­andi upp­lýs­inga­gjaf­ar.

Stóri Skjálfti.

En svo hægist um, og um leið og Auður byrjar að púsla saman fjöl­skyldu­mynd Sögu og for­tíð hennar blómstr­aði bókin og fljót­lega var ég kom­inn á kaf í eina af bestu bókum Auðar og – fyrir vikið aug­ljós­lega – einn af öldu­toppum flóðs­ins ‘15.

Þar leikur hinn stór­kost­legi sögurammi – sögu­hvati – lyk­il­hlut­verk. Floga­veikin og minnis­glöpin eru ekki bara ­tækni­brella höf­und­ar, heldur eru sífellt í huga sögu­hetj­unn­ar. Orsakir meins­ins og afleið­ing­ar, þýð­ing þess fyrir mögu­leik­ann á ham­ingju og ást. Skýr­ing á sum­u því sem hún kemst að um for­tíð­ina. Ekki á öllu samt. Og auð­vitað kveikir svona ­saga enda­lausar vanga­veltur þannig þenkj­andi les­enda um hvernig sú smíð sem við köllum raun­veru­leika okk­ar, sögu okk­ar, er óhjá­kvæmi­lega óáreið­an­leg en sam­t það besta sem við höf­um. Oft­ast.

En þó flogin og minnið séu í lyk­il­hlut­verki er það færni og hug­rekki Auðar sem per­són­usmiðs, til­finn­inga­könn­uðar og ­skrá­setj­ara sem gefa okkur inni­hald­ið. Öll fjöl­skylda Sögu og aðrir nákomn­ir eru mál­aðir skýrum litum af samúð og inn­sæi. Sam­skiptum og valdastreit­u ­fjöl­skyld­unnar og hinum tragísku rótum hennar er frá­bær­lega lýst.

Sem og hjóna­bandi Sögu og enda­lokum þess, ham­ingju­stundum og hinum sáru árekstrum sem leggja það í rúst. Og hin­um ­sér­kenni­legu ung­lingum sem rekur á fjörur Sögu og hlaupa undir bagga með henn­i þegar hún treystir sér ekki til að afhjúpa sig í veik­leika minnis­leys­is­ins ­fyrir sínum nán­ustu. Auður er með öllu þessu fólki í liði.

Hún er ekki flug­elda­stílisti. Stóri skjálfti er al­gert raun­sæ­is­verk. Lýs­ingar á sál­ar­lífi, sam­skipa­máta, sam­fé­lagi, allt ­trú­verð­ugt, jarð­tengt. Hér ger­ist ekk­ert sem ekki gæti ger­st, hefur ger­st, er lýst með hvers­dags­legum orðum á stæla­lausu máli. Fram­vinda bók­ar­innar er skýr, þegar frá­sögnin hleypur útundan sér á það sér raun­sæ­is­legar skýr­ingar í ferða­lagi Sögu um for­tíð­ina. Stundum viðrar bók­mennta­fólk efa­semdir um fram­tíð hinnar „hefð­bundnu“ skáld­sögu. Erindi hennar og til­gang. Kannski er hann að f­inna í því sem situr eftir hjá les­anda sagna eins og Stóra skjálfta við ­bók­ar­lok.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None