Hver á að njóta aðstoðar hjálparsveita landsins?

björgunarsveit bjorgun björgun hjálparsveit
Auglýsing

Oft hefur verið deilt um verk­efni hjálp­ar­sveita lands­ins. Verk­efni þeirra eru mörg og flestir hafa skoð­anir á því hvort að hjálp­ar­sveit­irnar eigi að sinna sumum þess­ara verk­efna. Nú í lok ársis 2015 kom upp umdeilt verk­efni þar sem ungir breskir menn reyndu að ganga yfir hálendið um miðjan vet­ur. Skilj­an­lega eru þeir sóttir ef þeir eru í vanda staddir þrátt fyrir að þeir hafi verið varaðir við og beðnir um að fara ekki. Það er hins­vegar orðið ill­skilj­an­legt þegar þeir reyna í þriðja sinn og eru sóttir með þyrlu. 

Mörgum þykir það fárán­legt að hjálpa­sveit­irnar séu mis­not­aðar með þessum hætti af mönnum sem leggja í ferð sem búið er að vara við marg­sinn­is. Eðli­lega heyr­ist ekk­ert frá for­svars­mönnum hjálp­ar­sveit­anna um þetta mál enda eru þeir ekk­ert að barma sér yfir því að bjarga fólki og líta á það sem skyldu sína að gera það. En við sem reynum að styrkja þessa starf­semi með ýmsum hætti finnst pen­ingum okkar illa varið við björg­un­ar­að­gerðir af þessu tagi. Nóg er af verk­efnum sem eru brýnn­i, eins og þegar veður ger­ast válynd. Þá eru björg­un­ar­menn mættir og margir í sjálf­boða­liða­starfi til þess að bjarga því sem bjargað verð­ur. Það er því skilj­an­legt að verða hugsi yfir því að ein­hver leyfi sér að mis­nota þessa mik­il­vægu starf­semi eins og ungu Bret­arnir gerðu í þrí­gang. 

Það er víð­tæk skoðun okkar flestra Íslend­inga að þessi starf­semi sé nauð­syn­leg fyrir land og þjóð. Þess vegna er brýnt að gera til­raunir til þess að koma í veg fyrir að hún sé mis­not­uð. Ein leið gæti verið sú að íslenska ríkið stofni trygg­inga­sjóð slysa­varna og við íbúar þessa lands greiði í þennan sjóð t.d. 1000 kr. hver og sé þessi greiðsla partur af skatt­fram­tal­inu okk­ar. 

Auglýsing

Allir Íslend­ingar greiddu þannig sitt trygg­ing­ar­gjald og rynni það óskipt til björg­un­ar­sveit­anna. Þannig værum við sem greiðum skatta á Íslandi tryggð og getum áfram óskað eftir aðstoð hjálp­ar­sveit­anna í neyð. Aðrir sem á henni þurfa að halda greiði fullt gjald fyrir aðstoð björg­un­ar­sveita með eigin fjár­munum eða bjóð­ist að kaupa trygg­ingar hjá trygg­ing­ar­fé­lögum ef þau bjóða upp á slíkar trygg­ing­ar. Þannig getum við komið í veg fyrir að slík mis­notkun á björg­un­ar­sveitum lands­ins eigi sér stað af því tagi sem við horfðum upp á hjá hinum ungu ofur­hugum frá Bret­landi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None