stein..t.jpg
Auglýsing

Lands­bank­inn steig for­dæma­laust skref á mánu­dag þegar hann opn­aði ítar­lega „spurt og svar­að“ síðu um sölu bank­ans á hlut í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borg­un, sem hefur verið mikið gagn­rýnd. Sam­hliða send­i ­bank­inn frá sér langa frétta­til­kynn­ingu þar sem farið var í gegnum helst­u aðal­at­riði máls­ins. Í til­kynn­ing­unni segir m.a.: „Lands­bank­anum var kunn­ugt um að Borgun hugð­ist auka veru­lega ­færslu­hirð­ingu fyrir selj­endur í erlendum net­við­skipt­um. Að mati bank­ans fylgd­i þeirri starf­semi veru­leg áhætta og líkur voru taldar á að hún gæti leitt til­ tjóns hjá félag­inu og skaðað orð­spor Lands­bank­ans."

Í gær voru síðan sagð­ar­ fréttir af því að orð­spors­á­hættan hefði meðal ann­ars verið falin í því að Lands­bank­inn hafði áhyggjur um að útrás Borg­unar myndi fela í sér aukn­ingu á færslu­hirð­ing­u ­fyrir veð­mála­við­skipti og klám­síð­ur.

Þær áhyggjur eru áhuga­verð­ar­ þegar þær eru mát­aðar við grein sem Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, skrif­aði í Morg­un­blaðið 22. jan­úar síð­ast­lið­inn vegna Borg­un­ar­máls­ins. Þar ­sagði m.a. að þegar til­boð barst frá stjórn­endum Borg­unar í hlut Lands­bank­ans, snemma árs 2014, hafi þeir einnig boðið í hlut Íslands­banka í fyr­ir­tæk­in­u. Ís­lands­banki, sem á meiri­hluta í Borg­un, hafi hins vegar ákveðið að taka ekki til­boði stjórn­end­anna og þá hafi Lands­bank­inn kannað „hvort Íslands­banki hefði áhuga á að eiga við­skipti við Lands­bank­ann með hluti í Borg­un. Íslands­banki hafði ekki áhuga á því.“

Auglýsing

Það virð­ist því liggja ­fyrir að um vor eða sumar 2014 hafi Lands­bank­inn kannað hvort bank­inn gæt­i ­eign­ast stærri hluta í Borgun og virt­ist þá ekki hafa miklar áhyggjur af orð­spors­á­hættu sinni. Nokkrum mán­uðum síðar seldi Lands­bank­inn síðan hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu vegna þess að hann taldi að starf­semi þess fylgdi „veru­leg áhætta og líkur voru taldar á að hún­ ­gæti leitt til tjóns hjá félag­inu og skaðað orð­spor Lands­bank­ans."

Mögu­lega breytt­ist skoðun Lands­bank­ans við það að óskað var upp­lýs­ingum um fram­tíð­ar­á­form Borg­unar í júlí 2014, líkt og fram kom í tíma­línu sem bank­inn birti í gögnum sem hann sendi Alþingi fyrr í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None