Ráðamenn þjóðarinnar ráða ekkert við Kára

kári stefánsson
Auglýsing

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, er að reyn­ast rík­is­stjórn­inni erf­iður and­stæð­ing­ur, þessa dag­ana, með und­ir­skrift­ar­söfnun sinni til stuðn­ings end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Um 50 þús­und Íslend­ingar hafa skrifað undir áskorun þess efnis að 11 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu Íslands fari heil­brigð­is­mál­in. 

Und­ir­skrift­ar­söfn­unin hófst á svip­uðum tíma, og kann­anir hófu að sína meiri dýfu í fylg­inu við rík­is­stjórn­ina, en hafði verið mán­uð­ina á und­an. Í nýj­ustu könnun MMR er fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins komið niður í 19,5 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með tíu pró­sent fylg­i. 



Það er ekki hægt að segja ann­að, en að það þurfi hálf­gert krafta­verk til að hækka fylgið við rík­is­stjórn­ina um rúm­lega 20 pró­sentu­stig fyrir kosn­ing­arnar 2017, til að ýta rík­is­stjórn­ar­flokk­unum yfir helm­ings­fylgi fyrir kosn­ing­ar. En það má ekki gleyma því að tæp­lega eitt og hálft ár er langur tími í pólítík, og staðan getur aug­ljós­lega mikið breyst. 



En rík­is­stjórnin er ekki bara að berj­ast við stjórn­ar­and­stöð­una, heldur virð­ist hún vera í mestum vand­ræðum með Kára. Hann hikar ekki við að gagn­rýna ráða­menn, mæta í við­töl og berj­ast fyrir því að íslenska heil­brigð­is­kerfið fá meiri fjár­muni, og virð­ist eiga mun auð­veld­ara með að mynda tal­sam­band við almenn­ing heldur en for­sæt­is­ráð­herra og aðrir ráð­herrar í rík­is­stjórn. 



Kári full­yrðir að ráða­menn þjóð­ar­innar hlusti ekki á þjóð­ina, og séu nú á „harða­hlaup­um“ frá fyrri yfir­lýs­ingum sínum um að búa íslensku heil­brigð­is­kerfi sam­bæri­legan ramma og þekk­ist á Norð­ur­lönd­unum hvað varðar fjár­muni og fjölda starfs­manna, að teknu til­liti til stað­hátta.



Spuna­meistar rík­is­stjórn­ar­innar náðu að sann­færa rík­is­stjórn­ina um að eyða 2,3 millj­ónum króna í aug­lýs­ingar í fjöl­miðl­um, full­kom­lega að óþörfu og algjör­lega án árang­urs, sam­an­ber fylg­is­hrunið að und­an­förnu. Það er aldrei að vita nema að nú sé ný her­ferð á teikni­borð­inu, þar sem spjótin munu bein­ast að Kára Stef­áns­syni, fremur en stjórn­ar­and­stöð­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None