Mikilvægir sigrar jafnréttisbaráttunnar

konur.jpg
Auglýsing

Á und­an­förnum árum hafa konur kom­ist í sífellt fleiri áhrifa­stöður í íslensku atvinnu­lífi, sem að öllu leyti er jákvæð og góð þró­un. Lög sem miða að því að jafna hlut kvenna og karla í stjórnum fyr­ir­tækja hafa reynst vel, og varla að heyra eina ein­ustu efa­semd­ar­rödd um að skyn­sam­legt hafi verið að ýta undir aukna þátt­töku kvenna í atvinnu­líf­inu með lög­un­um. 

En lögin tryggja aldrei jafna virð­ingu fyrir hæfi­leikum kvenna, og því miður er það svo, ekki síst á alþjóða­vett­vangi, að þörf er á miklu átaki og hug­fars­breyt­ingu svo að konur kom­ist til for­ystu. Miklir sigrar hafa þó unn­ist á und­an­förnum árum, og má þá nefna dæmi þegar dr. Janet Yellen tók við stöðu banka­stjóra Seðla­banka Banda­ríkj­anna í febr­úar 2014, fyrst kvenna, en það emb­ætti er meðal allra þýð­ing­ar­mestu emb­ættum ver­ald­ar. Þetta gefur mik­il­væg skila­boð og ýtir undir þá nauð­syn­legu hug­ar­fars­breyt­ingu sem þarf að verða víða, til að stuðla að jafn­rétti kynj­anna. 



Dæmi um land sem glímir við mik­inn vanda vegna þess að ekki er borin nægi­lega mikil virð­ing fyrir hæfi­leikum kvenna er Jap­an. Þar eru stjórn­endur í atvinnu­líf­inu nán­ast ein­göngu karlar á sex­tugs og sjö­tugs­aldri, en aðeins 7,5 pró­sent stjórn­enda í atvinnu­líf­inu í Japan eru kon­ur. Stjórn­völd hafa ýtt úr vör áætlun sem miðar að því að virkja hæfi­leika kvenna, til að ýta undir auk­inn hag­vöxt, og hækka hlut­fall kvenn­stjórn­enda í 30 pró­sent fyrir árið 2020. Í ljósi veru­leik­ans verður það að telj­ast háleitt mark­mið.



Hér á landi er bless­un­ar­lega annar veru­leiki, og margir merkir sigrar unn­ist á und­an­förnum árum, en mik­il­vægt er þó að staldra við og skoða hvar megi gera bet­ur. Í hinum íslenska fjár­mála­heimi hefur í gegnum tíð­ina verið mikil kar­læg slag­síða, en úttekt Kjarn­ans sýndi að níu af hverjum tíu æðstu stjórn­endum væru karlar. Birna Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Íslands­banka, er þar und­an­tekn­ing, sem eina konan sem er banka­stjóri hér á landi, en hún var í gær heiðruð af Félagi kvenna í atvinnu­lífi (FKA) fyrir störf sín, ekki síst á und­an­förnum árum, á umbrota­tímum í íslensku efna­hags­lífi. Hún fékk FKA við­ur­kenn­ing­una 2016.



Tíma­mót eru síðan framundan í íslensku atvinnu­lífi, á aðal­fundi Við­skipta­ráðs, sem fram fer 11. febr­úar næst­kom­andi, en þá mun kona í fyrsta skipti taka við for­mennsku í ráð­inu. Katrín Olga Jóhann­es­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður Já, mun þá taka við sem for­maður af Hregg­viði Jóns­syni, sem hefur verið for­maður ráðs­ins und­an­farin fjögur ár. 



Þetta eru ánægju­leg tíð­indi fyrir íslenskt atvinnu­líf, vegna þess að það skiptir máli - þó það eigi að vera sjálf­sagt - að sjá það í verki að konur séu metnar að verð­leikum og þeim treyst fyrir mik­il­vægum störf­um. Það hefur sýnt sig að þær eru traustins verð­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None