Stjórnmálamenn verða að hætta þessum skotgrafahernaði

Háskóli Íslands
Auglýsing

Ein­u sinni sem oft­ar, eru það stjórn­mála­menn sem taka ákvörðun um það, að beina um­ræðu um mörg af þeim erf­iðu málum sem við lands­menn glímum við, í skot­grafa­hernað milli lands­byggð­ar­innar og höf­uð­borgð­ar­svæð­is­ins. Nú síð­ast er það umræða um þá ákvörðun háskóla­ráðs Háskóla Íslands að flytja íþrótta­fræði­nám frá Laug­ar­vatni til Reykja­vík­ur. 

Ákvörð­unin er umdeild, einkum og sér í lagi við Laug­ar­vatn, enda hefur þar verið ára­tuga­hefð fyrir íþrótta­fræði­námi, og svæðið allt sér­sniðið að þeim þörf­um. Eðli­lega veltir fólk því fyrir sér hvort þessi ákvörðun sé rétt, og ­reynir jafn­vel að eiga sam­tal um hvort það sé hægt að gera eitt­hvað annað en að flytja námið til Reyka­vík. En rök­ræður um þessa hluti eru nauð­syn­leg­ar há­skólaum­hverf­inu á Íslandi, enda ekki alltaf aug­ljóst hvernig starf Háskóla Ís­lands er best skipu­lag­t. 

Það er algjör óþarfi, eins og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra ­gerði í gær, að fara enn einu sinni að tala um lands­byggð­ina ann­ars veg­ar, og höf­uð­borg­ar­svæðið hins vegar - eða nánar til tekið Mel­ana í Vest­ur­bænum - í þessu sam­hengi. Íþrótta­fræði­nám er eins og allt annað nám á háskóla­stigi, mik­il­vægt nám fyrir sam­fé­lagið og umræða um skipu­lagn­ingu þess verður að vera fyrst og fremst á fag­legum for­send­um. 

Auglýsing

Það er til dæmis umhugs­un­ar­efni, að eftir fimm ára háskóla­nám í íþrótta­fræð­u­m, þá eru grunn­laun lág og mörg ár tekur að kom­ast upp í laun sem geta talist ­sæmi­leg (ef þau ná því þá). Eru þessi störf metin að verð­leik­um? Ég er ekki viss um að allir séu á því, hvort sem búseta fólks er á lands­byggð­inni eða höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hugs­an­lega er þetta ástæðan fyrir því að erfitt er að fá nem­endur í nám­ið.

Von­and­i mun sá dagur koma, fyrr eða síð­ar, í íslenskum stjórn­mál­um, að stjórn­mála­menn hætti að fjalla um mál­efni upp úr skot­gröfum lands­byggðar og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Þing­menn eru sekir um þessa orð­ræðu, sem koma bæði frá­ lands­byggð­inni og höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta þarf að breytast, enda ger­a lík­lega flest­ir lands­menn ­sér grein fyrir því að í okkar fámenna landi skiptir máli að rætt sé mál­efna­lega um þau vanda­mál sem þarf að leysa og þá á fag­legum nót­um. Flókn­ara er það nú ekki.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None