forseti alþingis
Auglýsing

Það er skemmti­legt hvernig sagan fer sífellt í hringi. Nú boðar stjórn­ar­and­staðan þing­rof og Sjálf­stæð­is­menn hnussa yfir þeirri fásinnu. Árið 1979 var því öfugt far­ið, Sjálf­stæð­is­menn lögðu fram til­lögu um þing­rof eftir að stjórn Óla Jó hafði setið að völdum í hálft ár. Efna­hags­málin voru aðal­á­stæð­an. Geir Hall­gríms­son, for­maður flokks­ins, mælti fyrir til­lög­unni. Í miklu upp­á­haldi er hjá mér þessi máls­grein hjá hon­um, sem á kannski vel við í dag:

„Viljum við Íslend­ingar að gjald­mið­ill okkar sé gjald­gengur hvar sem er í heim­inum og laun­þeg­inn telji alvöru­pen­inga upp úr umslag­inu, eða viljum við loka okkur frá umheim­inum með gervi­gjald­miðli sem er aðeins skömmt­un­ar­seð­ill á það sem vald­haf­arnir á hverjum tíma vilja láta í té?“

En, þar sem nú hyllir undir aðra þing­rofsum­ræðu hef ég tekið að mér það óeig­in­gjarna starf að lesa mig í gegnum ræður Sjálf­stæð­is­manna frá 1979. Stjórn­ar­and­staðan nú getur sótt vopn í smiðju þeirra og kvótað að vild:

Auglýsing

Geir Hall­gríms­son:

„Full­komin ástæða er til þess að kjós­endur fái að kvitta fyrir þessar blekk­ingar og svik með því að ganga aftur að kjör­borð­inu sem fyrst."

Það er þessi tví­skinn­ung­ur, þessi lof­orð fyrir kosn­ingar og van­efndir þeirra lof­orða eftir kosn­ing­ar, sem er auð­vitað ein höf­uð­á­stæðan fyrir flutn­ingi þing­rof­stíll okk­ar."

Herra for­seti. Ég von­ast til þess að sú atkvgr., sem fram fer á morgun um þált­ill. okkar sjálf­stæð­is­manna, leiði í ljós hvaða þm. hafa þor og kjark til þess að áfrýja málum til kjós­enda."

Frið­rik Sóph­us­son:

„Ég tel tíma­bært, herra for­seti, að leggja valið í hendur kjós­enda."

Matth­ías Á. Mathies­en:

„Þing­rof og nýjar kosn­ingar eru nauð­syn­leg. Þjóðin hefur verið blekkt og þess vegna verður valið að vera hennar á ný. "

Matth­ías Bjarna­son:

„Og ég skil ósköp vel þá menn, sem sóp­uðu til sín atkv. á s. l. sumri á fölsk:um for­sendum og með lyg­inni einni saman og hafa staðið sig jafn­hörmu­lega og þeir hafa staðið sig frá því að núv. rík­is­stj. var mynd­uð, að þeir séu hræddir við nýjar kosn­ingar og dóm fólks­ins. Ég er ekk­ert að álasa þeim fyrir það. Þeir eru ekki kjark­meiri menn en það, að þeir þora ekki að standa frammi fyrir þjóð­inni og leggja úrræða­leysi sitt og aum­ingja­skap undir dóm henn­ar. Það er ekki alltaf reglu­legur svefn sem þeir hafa, þessir pilt­ar, ef þeir hafa ein­hverja sam­visku."

Sverrir Her­manns­son:

„Það er svo komið fyrir þess­ari hæstv. rík­is­stj., að henni ber sið­ferði­leg skylda til þess að skila af sér þessum völd­um. Þjóð­inni bráð­liggur á því og það er blátt áfram þing­ræð­is­leg skylda henn­ar, eftir að svo er komið sem blasir við allra aug­um, að hún þegar í stað segi af sér eða rjúfi þing og efni til nýrra kosn­inga, eins og við höfum lagt til."

Ragn­heiður Helga­dótt­ir:

„Þessi till. fjallar um það, að nú sé kom­inn tími fyrir dóm kjós­enda."

Ell­ert B. Schram:

„Til­gangur okkar sjálf­stæð­is­manna er að upp­lýsa þjóð­ina um það ástand sem ríkir núna inn­an rík­is­stj. og þeirra flokka sem styðja hana, upp­lýsa þjóð­ina um þá sundr­ungu sem ríkir um þau veiga­mestu mál, efna­hags­mál­in, sem nú eru efst á baugi, og það er til­gangur okkar að gefa þessum flokk­um, sem nú standa að rík­is­stj., tæki­færi til þess að leggja stefnu sína eða stefnu­leysi í dóm þjóð­ar­inn­ar, þannig að hún geti sjálf tekið ákvörðun um það, hvort hún vilji að þessir menn stjórni áfram eða ekki. Og ef ástandið er svo gott sem t. d. hæstv. iðn­rh. gaf í skyn í gær og reyndar fleiri hæstv. ráðh. gerðu, hvers vegna eru þeir þá hræddir við að leggja stefnu sína undir dóm þjóð­ar­inn­ar?" 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None