Ertu kominn heim?

Gunnar Jökull Karlsson
Auglýsing

Í fréttum er þetta hel­st: For­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins er kom­inn heim. Það verður telj­ast stór­merki­legt að hann snúi aftur miðað við allt sem á undan er geng­ið, enda fátt sem hefur fengið jafn mikla umfjöllun und­an­farið og téður for­mað­ur.

Bréf for­manns­ins sem birt var í fjöl­miðlum tíundar þau verk og lof­orð sem flokk­ur­inn hefur unnið og staðið við á núver­andi kjör­tíma­bili, en þar einnig varað við þeim við­brögðum sem yfir­lýs­ingin kann að vekja meðal fólks og þá hugs­an­lega þeirra sem telj­ast til and­stæð­inga Fram­sókn­ar­flokks­ins. Nú verð ég að við­ur­kenna að ég telst lík­lega til and­stæð­inga flokks­ins og við­brögð mín voru hrein og klár undr­un. Undrun á því að enn séu til Fram­sókn­ar­menn sem telja að flokk­ur­inn sé Íslands eina von og þar fari boð­berar betri tíma á Íslandi, auk undr­unar á því að for­mað­ur­inn ætli sér að snúa af fullum krafti í stjórn­mála­bar­átt­una eftir að hafa verið rúinn öllu trausti (eða svo gott sem). Það vantar ekki hreðjarnar á þeim bæn­um.

Gerðar eru kröfur á Sjálf­stæð­is­flokk­inn um að „stóru mál­un­um“ sé lokið áður en gengið verði til kosn­inga og er þar með gefið í skyn að ekki eigi að kjósa í októ­ber líkt og áður hefur verið gefið út. Bent er á að „rík­is­stjórn sem ekki nýtir tím­ann sem henni er veittur geti ekki gengið út frá því sem vísu að hún fái tæki færi til að klára verk­efnin síð­ar“ og því  sé tím­inn til að standa við lof­orðin núna. Mæl þú manna heilast­ur, en þetta er of seint. Tím­inn er lið­inn og þetta er komið gott. 

Auglýsing

Þær kosn­ingar sem nálg­ast varða fram­tíð lýð­veld­is­ins ekki síður en lýð­ræð­is­ins. Við mættum ekki á Aust­ur­völl í apríl til að fá ekki að kjósa. Við mættum ekki til að við­halda því umhverfi spill­ingar og sér­hags­muna nú er við lýði. Og við mættum alls ekki  til að lýsa yfir stuðn­ingi við rík­is­stjórn Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Við mættum til að lýsa því yfir að nú er nóg komið af spill­ingu, einka(vina)væð­ingu og hags­muna­poti fárra útvaldra, eða hinnar svoköll­uðu „el­ít­u“. Við mættum til að sýna að almenn­ingur vill hafa eitt­hvað að segja um fram­tíð lands og þjóð­ar. Það er nóg komið af auðs­söfnun og valda­dýrkun hinna fáu og það er kom­inn tími til að tekið sé til­lit vilja hinna mörgu. Krafan var, og er, skýr­ari en nokkurn tím­ann áður: Við viljum nýja tíma og breytt stjórn­ar­far. 

Nú er lag að skella skút­unni í slipp og skipta um áhöfn. Þó að for­mað­ur­inn vilji að Fram­sókn leiði þjóð­ina í þeim sókn­ar­færum sem hann sér, þá er nú ekki víst allir séu sáttir við það. Sókn­ar­færi sem byggj­ast á spill­ingu og bak­tjalda­makki eru, að ég held, ekki það sem við þurfum á þessum tíma­punkti eða nokkrum öðrum ef því er að skipta.

Heilla­væn­leg­ast væri að kjósa ekki yfir okkur flokka sem hjakka í sama far­inu ára­tug eftir ára­tug og hafa fyrir lif­andi löngu misst sjónar á því hvað er væn­legt fyrir land og þjóð. Það hlýtur að vera væn­legra að kjósa þá sem eru til­búnir að hlusta á óskir lands­manna og vinna að rétt­látu sam­fé­lagi fyrir alla.

Það væri Íslandi allt!

Grein­ar­höf­undur er á próf­kjörs­lista Pírata í Nor­vest­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None