„Að kasta krónu eður ei“ - Má ég heldur biðja um framtíðarsýn?

Þórunn Pétursdóttir skrifar um loftlagsmál og stjórnmálaumræðu.

Þórunn Pétursdóttir
Auglýsing

Nýverið héldu sam­tök iðn­að­ar­ins fund þar sem fram­bjóð­endur nokk­urra stjórn­mála­flokka sátu fyrir svör­um. Sam­tökin komu mjög vel nestuð til þessa umræðu­fundar og lögðu fram sex vel ígrund­aða áherslu­punkta tengda málum sem þau telja hvað mik­il­væg­ast að verði í svið­ljós­inu í kosn­inga­um­ræð­unn­i.  Því miður snér­ust umræður pall­borðs­ins svo til ein­göngu um hag­stjórn­ar­tæki eins og krón­una og skatta í stað þess að taka púls­inn á fram­tíð­ar­sýn þeirra stjórn­mála­flokka sem þarna áttu full­trúa.

Þessar umræður voru því miður ekk­ert eins­dæmi og ég skil ekki af hverju við kjós­endur látum bjóða okkur þetta trekk í trekk.  Það er hrein­lega ekki for­svar­an­legt að leyfa stjórn­mála­um­ræð­unni, þegar aðeins korter er í kosn­ing­ar, að snú­ast eina ferð­ina enn aðeins um hvaða hag­stjórn­un­ar­tæki hugs­an­lega virki best í stað þess að ræða fram­tíð­ar­sýn og í fram­haldi af því, hvaða tæki munu virka best til að ná þeim mark­miðum sem brenna helst á. 

Það hlýtur að vera ljóst öllum þeim sem vilja sjá að Par­ís­ar­sam­komu­lagið um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda verður ein­fald­lega að móta efna­hags­legan lang­tíma­stöð­ug­leika og fram­tíð­ar­hag­kerfi Íslands. Umhverf­is- og lofts­lags­mál eru ekki lengur einka­mál hug­sjóna­fólks, þau eru lyk­il­for­sendur fram­tíð­ar­hag­vaxtar og lífs­af­komu okk­ar. Ísland á að byrja á að axla fulla ábyrgð á alþjóða­vett­vangi og lýsa því yfir að við munum ekki vinna olíu á Dreka­svæð­in­u. 

Auglýsing

Við eigum að setja okkur metn­að­ar­full mark­mið og miða við að árið 2050 verði Ísland búið að  inn­leiða að fullu grænt lág­kolefn­is­hag­kerfi sem byggir á sjálf­bærri nýt­ingu nátt­úru­auð­linda, full­nýt­ingu afurða og öfl­ugri nýsköpun á sviði líf­tækni og hug­vits. Út frá þeirri sýn eigum við svo að velja hvaða gjald­mið­ill og skatt­stofnar henti okkur best svo þjóðin sem heild njóti góðs af. Við eigum ara­grúa nýlegra fagupp­lýs­inga um hvernig við getum staðið að þessum kerf­is­breyt­ingum á sam­þættan hátt, þvert á núver­andi ráðu­neyti og tengdar stofn­an­ir. Þjóðin telur aðeins um 330.000 þús­und manns svo getum þetta auð­veld­lega – ef við vilj­um.

Það er alveg ljóst að iðn­að­ur­inn og atvinnu­lífið munu þurfa að vera í far­ar­broddi fyrir þeim tækni­legu og sam­fé­lags­legu breyt­ingum sem þurfa að eiga sér stað hér­lendis svo við náum að upp­fylla alþjóða­skuld­bind­ingar okkar til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á næstu ára­tugum sem og til að byggja upp og efla íslenskt grænt lág­kolefn­is­hag­kerfi.

Við þurfum til að  ­mynda að taka alla inn­viði og atvinnu­geira sam­fé­lags­ins til skoð­unar og laga þá að sjálf­bærum áhersl­um. Sem dæmi má nefna sam­göngu­kerf­ið, bíla- og skipa­flot­ann, bygg­ing­ar, frá­rennsli, land­bún­að­inn, ferða­þjón­ust­una og sjáv­ar­út­veg­inn. Það ger­ist ekki nema að tækni og þver­fag­leg þekk­ing til að beita henni séu til stað­ar. Það er einnig mikil þörf fyrir nýjar fagá­herslur og sam­þætta menntun svo tryggt sé að fram­tíðar iðn-, tækni- og verk­fræð­ingar séu vel að sér í  um­hverf­is- og vist­fræði og geti nýtt sér nátt­úru­legar lausnir við hönnun og bygg­ingu nýrra mann­virkja.  Um­hverf­is­vernd, líf­tækni, lág­kolefna­ferl­ar, hug­vit, djúp þekk­ing á vist­fræði­legum ferlum; ný hugs­un. Ef við náum því, þá verður fram­tíðin Björt.

Höf­undur skipar annað sæti á fram­boðs­lista Bjartrar fram­tíðar í Suð­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None