Afnemum verðtryggingarumræðuna!

Gylfi Ólafsson, oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi, skrifar um verðtryggingarumræðuna.

Gylfi Ólafsson
Auglýsing

Verð­trygg­ingin er sögð vera rót alls ills, hún haldi fólki frá því að eign­ast nokkurn tím­ann íbúð­ina sína og haldi fólki í fátækt­ar­gildru lána­stofn­ana. Hana verði að afnema hið snarasta.

Svo eru þeir sem segja að það sé ekk­ert hægt að afnema hana. En það var nú samt gert á ein­hvern hátt, en að vísu bara fyrir þau 25% af Íslend­ingum sem þurftu enga hjálp. Hinir mega halda áfram að taka verð­tryggð lán.

Hvað er verra en verð­trygg­ing­in? Verð­trygg­ing­ar­um­ræð­an!

En ef eitt­hvað er verra er verð­trygg­ingin sjálf, er það senni­lega verð­trygg­ing­ar­um­ræð­an. Ég hata hana meira en ég hata Ices­a­ve-­boll­ann.

Auglýsing

Vext­ir! Verð­bæt­ur! Vísi­tala neyslu­verðs! Leið­rétt­ing­in! Verð­bólgu­bál! Gjald­eyr­is­höft!

Við­reisn er með lausn­ina til að afnema verð­trygg­ing­ar­um­ræð­una með því að gera verð­trygg­ing­una óþarfa. Þetta er gert með því að festa gengi íslensku krón­unnar við evru. Við það lækkar verð­bólga svo mikið að verð­trygg­ingin hættir að skipta nokkru máli. 

Þetta er eng­inn svartigaldur sem Við­reisn fatt­aði upp á. Seðla­bank­inn lagði þetta til sem eina lausn í 600 blað­síðna bók sem skrifuð var fyrir nokkrum árum, en þar er þetta fyr­ir­komu­lag kallað mynt­ráð. Mörg önnur lönd hafa gert þetta.

Lausnin krefst þess að fyr­ir­tæki og laun­þegar séu með í ráðum, ríkið vandi sig við að stjórna budd­unni og að Seðla­bank­inn eigi haug af evrum niðrí kjall­ara. Fyr­ir­tæki og laun­þegar yrðu him­in­lif­andi að fá betri krónu, ríkið er þrátt fyrir allt að verða betra í að stjórna pen­ing­unum sín­um, og gjald­eyr­is­vara­forð­inn er nú þegar orð­inn svo stór að Jóakim Aðal­önd fer hjá sér (takk túristar!).

Við­reisn er eini flokk­ur­inn sem hefur tekið þessa hug­mynd Seðla­bank­ans upp á sína arma. Aðrir flokkar mega gjarnan taka upp hug­mynd­ina. Seðla­bank­inn má meira að segja fá kredit­ið. 

En það er meira

Til við­bótar við að losna við verð­trygg­ing­ar­um­ræð­una hefur mynt­ráð í för með sér lægri vexti sem lækkar hús­næð­is­kostnað um tugi þús­unda króna á mán­uði og auð­veldar fyr­ir­tækjum að byggja sig upp á Ísland­i. 

Svo­leiðis er það á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Af hverju ætti það ekki að vera hægt hér líka?

Höf­undur er odd­viti Við­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None