VG ræðst á almenning

Guðmundur Ólafsson, lektor í hagfræði, gagnrýnir harðlega kröfur Steingríms. J. Sigfússonar um að ríkisvaldið stemmi stigu við ofrisi krónunnar með gengisfellingu.

Auglýsing

Stein­grím­ur J Sig­fús­son, einn af for­ystu­mönn­um Vinstri grænna (VG) hefur nú stillt sér upp í geng­is­fell­ing­ar­kór­inn og krefst þess að rík­is­valdið stemmi stigu við ofrisi krón­unnar og talar um 10% geng­is­fell­ingu til að forð­ast ein­hvern voða sem hann þyk­ist sjá fram und­an. Varla getur verið en um stefnu VG sé að ræða í þessum efnum og mik­il­vægt er því að skilja hvað 10% geng­is­fell­ing þýðir í reynd.

Hverjir hagn­ast og hverjir tapa.

Heild­sala og inn­flytj­endur munu græða fyrst í stað en það dregur úr hagn­aði þeirra þegar verð­bólga sem af geng­is­fell­ing­unni leiðir hefur dreifst um hag­kerf­ið. En þeir hagn­ast auð­vitað á því að launa­greiðslur þeirra munu lækka fram að næstu samn­ing­um.

Auglýsing

Sama er að segja um útgerð­ina, þeir hagn­ast á að hafa tekjur í gjald­eyri en kostnað að mestu í krón­um, sér­stak­lega launa­kostnað í vinnslu sem er fastur fram að kjara­samn­ing­um.

Þá munu ferða­menn hagn­ast og ferða­þjón­ust­an, sem nýtur lækk­unar launa, sem er vax­andi hluti kostn­aðar þar. En sú atvinnu­grein er að breyt­ast í hálf­gerða þrælakistu.

Svo mun rík­is­sjóður hagn­ast á verð­bólgu­skatt­inum sem er 4% ef verð­bólga er 8%, það er sú upp­hæð sem stolið er af laun­þegum eftir að þeir fá útborgað, úr þeirra eigin vasa.

Smátt og smátt mun vöru­verð hækka (á bil­inu 5% - 8%) í kjöl­far geng­is­fell­ing­ar­innar með til­heyr­andi verð­bólgu og eini lang­tíma hagn­að­ur  þess­ara aðila verður lækkun launa. Nið­ur­staðan er auð­vitað sú að for­ystu­menn í VG telja þjóðar vá að almenn­ingur hafi það of gott. Lækka verði laun hið fyrsta.

Þessir tals­menn launa­lækk­ana hafa hins vegar ekki sýnt fram á neina erf­ið­leika í atvinnu­lífi sem afsaka þessar árásir á almenn­ing.

Þessi afstaða kemur ekki á óvart, VG hefur stutt gjafa­kvóta­kerfið og rekstur þess með ráðum og dáð frá upp­hafi til­veru sinnar og for­ystu­mað­ur­inn Stein­grímur hefur verið sér­stakur stuðn­ings­maður útgerð­ar­innar í stjórn­mál­um.

Og ekki á maður von á að ASÍ segi múkk og verka­lýðs­for­ingjar munu halda áfram að kenna hús­næð­is­kostn­aði um verð­bólgu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None