Stórfelld skattsvik til rannsóknar

Mörg hundruð milljóna meint skattsvik eru til rannsóknar hjá Skattrannsóknarstjóra.

peningar
Auglýsing

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri rann­sakar mögu­lega aðild örygg­is­fyr­ir­tæk­is­ins 115 Security að meintum skattsvikum und­ir­verk­taka fyr­ir­tæk­is­ins á árunum 2011 til 2014. 

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, og segir í umfjöllun blaðs­ins að rann­sóknin bein­ist að 700 millj­óna króna verk­samn­ingi 115 Security við níu und­ir­verk­taka sem nú hafa verið úrskurð­aðir gjald­þrota.

Frétta­blaðið greinir frá þessu. Þar segir að rann­sóknin bein­ist að 700 milljón króna verk­samn­ingi 115 Security við níu ónefnda und­ir­verk­taka sem nú eru allir gjaldrota en grunur leiki á að þar hafi verið um svarta atvinnu­starf­semi og svo­kall­aða gervi­verk­töku að ræða. Með þessum hætti hafi allt að 400 millj­ónum króna verið stungið undan skatti.

Auglýsing

Frið­rik Sverr­is­son, fram­kvæmda­stjóri 115 Security, segir í við­tali við Frétta­blaðið að það sé af og frá að fyr­ir­tækið hafi átt nokkurn þátt í meintum svikum og furðar sig á því að það sé dregið inn í rann­sókn­ina – enda hafi það ávallt staðið í skil­um. Verk­taka­samn­ingum hafi sömu­leiðis verið rift um leið og fyr­ir­tæk­inu hafi verið gert við­vart um hugs­an­leg skatt­svik. „Þetta er mjög skrítið mál og for­dæma­laust með öllu. Það er verið að rann­saka skatt­skil hjá und­ir­verk­tökum fyr­ir­tæk­is­ins, og verið að blanda okkur inn í málið algjör­lega að ósekju. Þeirra skatt­skil eru okkar félagi algjör­lega óvið­kom­andi, en þegar við fengum ábend­ingu um að skatt­skil þess­ara und­ir­verk­taka væru í ólestri þá hættum við strax við­skiptum við þá,“ segir Frið­rik.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent