Ronaldo sekur um stórfelld skattsvik og vill semja

Cristiano Ronaldo, fyrirliði Portúgal og einn besti fótboltleikmaður heimsins, hefur viðurkennt stórfelld skattsvik og gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist.

Cristiano Ronaldo
Auglýsing

Crist­i­ano Ron­aldo, fyr­ir­liði Portú­gal og leik­maður Real Madrid, hefur sam­þykkt að greiða 18,8 millj­ónir evra, eða sem nemur um 2,5 millj­arði króna, í sekt til yfir­valda á Spáni vegna ákæru á hendur honum fyrir skattsvik, og við­ur­kennt sekt í mál­inu.

Sam­kvæmt umfjöllun breska rík­is­út­varps­ins BBC, sem birt­ist í dag, er Ron­aldo sagður hafa boð­ist til að greiða upp­hæð­ina sem hann var sak­aður um að hafa skotið undan í fyrra, en yfir­völd neit­uðu og hafa haldið mál­inu gegn honum til streit­u. 

Hann á nú að hafa gert munn­legt sam­komu­lag um að hann greiði sekt­ina og við­ur­kenni sekt. Ólík­legt þykir að hann þurfi að sitja í fang­elsi vegna lög­brot­anna, en það er þó ekki úti­lok­að, þar sem upp­hæðin í máli hans er mun hærri en í öðrum málum þar sem sak­fellt hefur verið fyrir svipuð mál. 

Auglýsing

Form­legt sam­komu­lag um mála­lyktir liggur þó ekki fyr­ir, sam­kvæmt umfjöllun BBC.

Málið snýst um skattaund­an­skot vegna tekna sem Ron­aldo hafði af ímynd sinni, líkt og var raunin með mál yfir­valda gegn Lionel Messi, en hann greiddi þá 250 þús­und evrur í sekt og fékk tveggja ára fang­elsi í refs­ing­u. 

Hann neit­aði sök, ólíkt því sem Ron­aldo hefur nú gert. 

Á Spáni þurfa þeir sem hljóta tveggja ára fang­elsi eða minna, fyrir auðg­un­ar­brot eða skattsvik, ekki að sitja inni, haldi þeir skil­orð.

Óhætt er að segja að Ron­aldo sé ekki að láta þetta bitna á afrekum hans á vell­in­um, en hann skor­aði þrennu fyrir Portú­gal gegn Spán­verjum þar sem leikar end­uðu 3-3.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent