Talnaleikfimi utanríkisráðherra!

Formaður Evrópusamtakanna segist taka undir með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra um að lyfta þurfi umræðunni um EES samninginn upp á hærra plan, en gerir athugasemdir við gamla möntru hans um tölfræði innleiðingu Evrópusambandsgerða.

Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra flutti skel­egga ræðu fyrir skömmu á mál­þingi í Háskól­anum í Reykja­vík um 25 ára afmæli EES-­samn­ing­inn. Þar sló hann sann­kall­aða skjald­borg um EES samn­ing­inn og var­aði við því að gera nokkuð það sem gæti leitt til óvissu um rekstur hans. Einnig hvatti ráð­herr­ann til þess að umræðan um EES samn­ing­inn yrði færð upp á hærra plan. Við Evr­ópu­sinnar fögnum þessum ein­dregna stuðn­ingi utan­rík­is­ráð­herra við EES-­samn­ing­inn enda var flest af því sem hann sagði í ræðu sinni eins og músík í okkar eyru.

Það var þó tvennt sem kom okkur á óvart í mál­flutn­ingi ráð­herr­ans. Í fyrsta lagi að við Evr­ópu­sinnar værum komnir í lið með and­stæð­ingum EES-­samn­ings­ins! Það væru þá skrýtnir ból­fé­lag­ar. Við getum full­vissað ráð­herr­ann um ein­dreg­inn stuðn­ing okkar við efni og inni­hald samn­ings­ins. Við Evr­ópu­sinnar höfum svo sann­ar­lega ekki fundað með Mið­flokks­mönnum né Hverfa­fé­lögum Sjálf­stæð­is­flokknum á Klaust­ur­barnum né í Öskju­hlíð­inni um hvernig hægt sé að koma EES samn­ingnum fyrir katt­ar­nef. Við erum aftur á móti til­búin að leggja ráð­herr­anum lið á allan þann hátt sem mögu­legt er til að koma meðal ann­ars þriðja orku­pakk­anum í gegnum Alþingi. Við munum svo sann­ar­lega ekki liggja á liði okkar í stuðn­ingi við þá lög­gjöf.

Í öðru lagi voru það líka von­brigði að utan­rík­is­ráð­herra skyldi draga upp úr pússi sínu gamla mön­tru um töl­fræði inn­leið­ingu gerða Evr­ópu­sam­bands­ins í íslenska lög­gjöf. Það hefur afskap­lega litla þýð­ingu að ríf­ast um nákvæma pró­sentu­tölu inn­leið­ingu gerða því þessar gjörðir eru svo ótrú­lega mis­mun­andi af stærð og umfangi. Það er því alls ekki raun­hæft að bera saman til dæmis hámark­stonna­fjölda sem má flytja með prömmum á vatna­leiðum Evr­ópu og fjár­mála­lög­gjöf­ina sem snertir hvert ein­asta aðild­ar­land EES.

Auglýsing
Staðreyndin er sú að ekk­ert land Evr­ópu­sam­bands­ins né EES inn­leiðir allar gjörðir ESB. Sví­þjóð og Finn­land inn­leiða til dæmis ekki gjörðir um hámarks­nið­ur­greiðslur á ólífu­olíu og hið land­lukta Aust­ur­ríki inn­leiðir ekki tíma­bundna lokun á veiði­svæðum í Mið­jarð­ar­hafi. Eiríkur Berg­mann pró­fessor kom einu sinni með með ágæta sam­lík­ingu þegar hann sagði að Íslend­ingar inn­leiddu að öllum lík­indum 80% af því sem Danir gerðu.

Öll þau lög­gjöf sem Evr­ópu­sam­bandið setur varð­andi fjór­frelsið og Ísland þarf að inn­leiða hefur því beina rétt­ar­stöðu á Íslandi. Þessi lög­gjöf hefur því gríð­ar­lega mikil áhrif hér á landi. Það er aðal­at­riði þessa máls en ekki ein­hver talna­leik­fimi. Við Evr­ópu­sinnar lýsum því yfir fullum stuðn­ingi við orð utan­rík­is­ráð­herr­ans að lyfta umræð­unni um EES samn­ing­inn á hærra plan. Sam­eig­in­legt mark­mið okkar beggja er að efla og styrkja Evr­ópu­sam­vinnu Íslend­inga á sem flestan og bestan hátt.

Höf­undur er for­maður Evr­ópu­sam­tak­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar