Meinlegt umtal

Soffía Sigurðardóttir veltir því fyrir sér hvort baktal sé meinlaust ef manneskjan fréttir ekki af því. Hún fjallar um birtingarmyndir baktals í aðsendri grein.

Auglýsing

Er bak­tal um þig mein­laust á meðan þú veist ekki af því? Skaða sak­ar­giftir ekki mann­orð þitt nema þú heyrir af þeim? Hvað gerir það til þótt það sé útbreidd saga að það sem aflaga fór hafi verið þér að kenna, ef bara eng­inn ber það upp á þig í þinni áheyrn? Getur þú varist ávirð­ingum sem þú veist ekki um?

Bak­tal á sér margar birt­inga­mynd­ir: Hún er leið­in­leg, ekki leika við hana. Hún getur ekki gripið bolta, ekki velja hana í lið­ið. Mamma hennar er klikk­uð, ekki heim­sækja hana. Hún stal frá vini mín­um, passið ykkur á henni. Hún nennir engu og ég þurfti að vinna allt verk­ið. Hún er klögu­skjóða sem lýgur upp á mann áreiti. Það er ekki hægt að vinna með henni, ekki veita henni með­mæli fyrir nýjan vinnu­stað. Hún er ómögu­legur leið­togi, ég væri miklu betri for­mað­ur. Hún er kunta sem beitir sexí­inu til að koma sér áfram og svo færðu ekki að ríða henni. Hættum að hafa hana með í sam­tölum og ráðum þessu bara strák­arn­ir.

Er lít­ils­virð­andi umtal um þig bara mein­laust raus í litlum hópi, sem gerði engum mein fyrr en ein­hver hljóð­rit­aði það og fjöl­miðlar birtu það?

Auglýsing

Það er ekki að ástæðu­lausu sem and­mæla­réttur fólks er settur í bæði lög og verk­lags­regl­ur. Hann er grund­vall­ar­regla í rétt­ar­kerf­inu og hann er kom­inn í reglur á vinnu­mark­aði, þótt meiri brota­löm sé þar á beit­ingu þeirra reglna. Á vinnu­mark­aði er t.d. verið reyna að koma með­ferð áminn­inga í form­legt ferli, ástæða þarf að vera til­greind og nægi­lega skýrt fram sett til að hægt sé að svara henni og til þess er veittur and­mæla­rétt­ur. Á sama tíma vantar algjör­lega uppá það á hvern hátt umsagnir frá fyrri vinnu­stað eru settar fram. Í umsókn­ar­ferli um nýtt starf er farið fram á að gefnir séu upp umsagn­ar­að­ilar frá fyrri vinnu­stað, oft kallað að fá með­mæli. Þá tíðkast víða að gefa ekki skrif­lega umsögn, enda getur þá þurft að svara fyrir það sem skrifað er. Þess í stað eru aðeins gefin munn­leg ummæli og jafn­vel kraf­ist trún­aðar um það sem í þeim er sagt, eða bara óform­legar fyr­ir­spurnir í kunnungjahópi. Umsagnir sem ekki er hægt að veita skrif­legar og standa við, eru kjafta­sög­ur.

Orð­spor þitt ræðst ekki af því sem þú gortar þig af og heldur ekki af því þegar þú vinnur verk þín hljóð. Orð­spor þitt er spor þeirra orða sem aðrir láta um þig falla.

Þess vegna skiptir máli hvað þú segir um annað fólk. Þau orð eru nefni­lega sögð til að hafa áhrif á afstöðu ann­arra til þess fólks sem þú ert að tala um.

Hvenær verður þjófur þjóf­ur? Er það þegar hann stel­ur, eða er það þegar kemst upp um hann?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar