Borgin styður fólk og fyrirtæki

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar í borginni, skrifar um aðgerðir Reykjavíkurborgar vegna kórónuveirufaraldursins.

Auglýsing

Það er und­ar­legt um að lit­ast í Reykja­vík þessa dag­ana. Fáir eru á ferli og ólg­andi mann­lífið virð­ist víðs fjarri. Þetta eru óvenju­legir tímar en borgin og borg­ar­búar hafa seiglu til að takast á við ástand­ið, með bjart­sýni og jafn­vel gleði eins og allir þeir sem sett hafa út bangsa í glugga til að skemmta börnum í göngutúr sýna.

Reykja­vík­ur­borg vill standa þétt við bakið á borg­ar­búum og atvinnu­líf­inu í borg­inni á þessum óvissu­tím­um. Til að stytta nið­ur­sveifl­una eins og kostur er, verja lífs­kjör borg­ar­búa og styðja við atvinnu­lífið hefur borg­ar­ráð sam­þykkt 13 til­lögur að aðgerð­u­m. 

Til­lög­urnar munu koma til fram­kvæmda eftir því sem far­ald­ur­inn þró­ast og sumar hverjar þurfa að sæta færis þar til við megum á ný fara að faðma hvort annað og hitt­ast í hópum stærri en 20 án þess að eiga þess á hættu að sýkj­ast af COVID-19.

Sumt getur samt ekki beðið eins og afkoma fólks og fyr­ir­tækja. Því verður strax ráð­ist í frest­un, nið­ur­fell­ingu og lækkun gjalda til heim­ila og fyr­ir­tækja. Gjöld vegna leik­skóla, grunn­skóla og frí­stundar verða lækkuð eða felld niður í sam­ræmi við skerð­ingu þjón­ustu. Árskort borg­ar­innar í sund­laugar og menn­ing­ar­kort verða fram­lengd í sam­ræmi við lok­an­ir.

Auglýsing
Fyrirtæki geta fengið frest á greiðslu allt að þriggja gjald­daga fast­eigna­skatta á þessu ári, til að bregð­ast við höggi á tekju­flæði þessa dag­ana. Að auki hefur verið ákveðið að lækkun fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði verði flýtt og lækki úr 1,65% í 1,60% um næstu ára­mót. Fast­eigna­eig­endur eru hvattir til að láta minni fyr­ir­tæki sem leigja hjá þeim einnig að njóta þess­ara aðgerða. 

Þegar aðstæður leyfa verður farið í veru­legt mark­aðsá­tak til að kynna Reykja­vík sem áfanga­stað, auk þess sem Reykja­vík mun taka þátt í mark­aðsátaki Íslands­stofu. Mun mark­aðsátakið ríma vel við ferða­mála­stefnu borg­ar­innar sem ég hef lagt fyrir borg­ar­ráð.

Reykja­vík­ur­borg ætlar líka að styðja við skap­andi greinar og þekk­ing­ar­grein­ar, fjár­festa í nýsköpun og nýjum tækni­lausnum til að gera lífið í Reykja­vík ein­fald­ara fyrir alla. Nýsköpun og þekk­ing­ar­greinar munu styrkja borg­ina til fram­tíð­ar. Einnig verður farið í mann­afls­frekar við­halds­fram­kvæmdir og nýfram­kvæmdum flýtt.

Það er rólegt á meðan verið er að takast á við far­ald­ur­inn en lífið í borg­inni mun kvikna á ný og upp sprettur þessi fjöl­breytta og líf­lega Reykja­vík sem við öll þekkj­u­m. 

Höf­undur er for­maður borg­ar­ráðs og odd­viti Við­reisnar í borg­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar