Á að semja um að sleppa verðbólgudraugnum lausum? Aftur?

Auglýsing

Ég var að koma af kynn­ing­ar­fundi Pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands þar sem sú ákvörðun að halda stýri­vöxtum óbreytt­um, 4,5 pró­sent, var kynnt og útgáfa Pen­inga­mála sömu­leið­is.

Þór­ar­inn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur Seðla­banka Íslands, fór yfir sviðið og eyddi tölu­verðum tíma í óvissu sem er í hag­kerf­inu vegna deilna um kaup og kjör. Óhætt er að segja að hann hafi málað upp svarta mynd af því, hvað mun ger­ast ef samið verður um inni­stæðu­lausar launa­hækk­an­ir, það er án þess að fram­leiðni­aukn­ing í hag­kerf­inu fylgi með launa­hækk­un­um.

Í mati seðla­bank­ans á áhrifum launa­hækk­ana á stöðu efna­hags­mála, einkum verð­bólgu, er miðað við að samið verði um 11 pró­sent launa­hækk­anir þvert yfir vinnu­mark­að­inn. Það er heldur minna en kröfur hafa verið uppi um.

Auglýsing

Fjöl­miðlaum­fjöllun um þessar deilur hefur í stuttu máli falist í því að gera grein fyrir sjón­ar­miðum beggja og fylgj­ast með hvernig fram­vindan er. Síðan er líka sú hlið að gera grein fyrir áhrifum af til­teknum samn­ing­um, og spá í spil­in. Þar hafa allir sem koma að málum eitt­hvað til síns máls, og mik­il­vægt að gera grein fyrir öllum þessum atrið­um. Upp­lýs­ing­arnar frá aðal­hag­fræð­ingi seðla­bank­ans eru slá­andi, en þó ein­ungis í takt við sögu­lega þró­un, þegar kemur að því að semja um launa­hækk­anir sem síðan reyn­ist ekki vera inni­stæða fyr­ir.

framleiid

Eins og sjá má á með­fylgj­andi mynd­um, sem teknar eru úr Pen­inga­mál­um, bendir margt til þess að íslenska hafta­hag­kerf­ið, sem er ennþá veik­burða eftir nær for­dæma­lausar hremm­ing­ar, ráði ekki við launa­hækk­anir sem nema ell­efu pró­sent­um. Staðan er síðan verri ef samið verður um meiri hækk­an­ir. Stjórn­völd virð­ast meta það þannig, að það sé vel hægt að hækka laun um mun hærri tölur en þetta enda hækk­uðu laun hjá læknum um rúm­lega 20 pró­sent, og hjúkr­un­ar­fræð­ing­ar, ein stærsta kvenna­stéttin í land­inu, með 2.100 inn­an­borðs, gera til­kall til svip­aðra launa­hækk­ana. Verk­fall hjá þeim hefst að óbreyttu 27. maí.

sviðsmyndir seðlabankans

Þetta er snúin staða. Von­andi gera þau sem eru við samn­inga­borðið sér grein fyrir því, að almenn­ingur má ekki sitja eftir með glímu við verð­bólgu­draug­inn, eftir þessa samn­inga. Enn einu sinni. Hlut­hafar stærstu fyr­ir­tækj­anna verða líka að skynja þá stöðu sem uppi er um þessar mund­ir, með losun hafta handan við horn­ið, og leggja fram stór og mikil spil sem þeir eru með á hendi.

Sá geiri sem hefur gengið í gegnum bestu rekstr­arár í sög­unni að und­an­förnu, sjáv­ar­út­veg­ur­inn, er þar aug­ljós­lega í brennid­epli. Hlut­hafar stærstu fyr­ir­tækj­anna virð­ast þurfa að slá af arð­greiðslum til sín, og deila þeim pen­ingum með fólk­inu á gólf­inu í meira mæli. Það gæti verið þeirra fram­lag, til að hjálpa til við að ná sátt á almennum vinnu­mark­aði. Það sama má raunar segja um smá­söl­una og aðra geira, þar sem mögu­legt hefur verið að greiða út tölu­verðan arð á und­an­förnum árum. Þar gætu hlut­hafar þurft að ákveða að taka minna fé úr rekstr­inum en gert hefur ver­ið, og deila góðri rekstr­ar­af­komu með fólk­inu á gólf­inu.

Stjórn­völd verða síðan að rök­styðja það betur fyrir almenn­ingi, hvernig þau ætla að haga hag­stjórn­inni í land­inu. Svo virð­ist sem þau hafi verið að blekkja almenn­ing með und­an­förnum kjara­samn­ingum sín­um, vegna þess að það er ekki inni­stæða fyrir tug­pró­senta launa­hækk­unum sem ríkið hefur verið að semja um að und­an­förnu. Grein­ingar sýna það glögg­lega, og það er ömur­legt að horfa upp á þetta eftir á.

Samn­ingar um að sleppa verð­bólgu­draugnum lausum, og leyfa honum að stór­skaða fjár­hag ein­stak­linga og fyr­ir­tækja, einkum fjár­hag þeirra sem lægstu launin eru með, eiga ekki að vera í boði. Von­andi tekst að semja um launa­hækk­anir sem inni­stæða er fyr­ir.

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None