Að kasta skít úr moldarkofa

Birna Gunnarsdóttir skrifar að aldagömul fyrirlitning á fátæku fólki og baráttu þess opinberi betur er flest annað þá frumstæðu grimmd sem hin betur settu hafa ævinlega verið tilbúin að sýna fátækum og varnarlausum.

Auglýsing

Andúð þess fólks sem vill skil­greina sig sem almenni­legar mann­eskjur en kepp­ist nú við að níða leið­toga lág­launa­fólks­ins sem þau töp­uðu fyrir i borg­inni er ótrú­lega afhjúp­andi og sýnir að þótt pínu­lít­ill kall geti komið sér út úr mold­ar­kofa er erf­ið­ara að ná mold­ar­kof­anum úr hon­um.

Þessi aldagamla fyr­ir­litn­ing á fátæku fólki og bar­áttu þess opin­berar betur er flest annað þá frum­stæða grimmd sem hin betur settu hafa ævin­lega verið til­búin að sýna fátækum og varn­ar­lausum, fólk­inu sem á að strita ósýn­legt og þög­ult, svara aldrei nema á það sé yrt (og þá bljúgum og lágum rómi) - og endi­lega ekki láta mæð­ina heyr­ast þegar það klárar síð­ustu kíló­metra­tug­ina í skúr­ing­un­um.

Auglýsing
Einhverjum kann að þykja fróð­legt að líkanið sem notað er til að mæla afkasta­hraða skúr­inga­fólks og var sett inn í samn­inga 2015 varð til í góðri sam­vinnu sér­fræði­mennt­aðs stjórn­anda hjá Efl­ingu sem var í einu og öllu sam­sinna full­trúum atvinnu­rek­enda. Það byggir á dönsku kerfi en hér var ekk­ert sam­ráð haft við skúr­inga­fólkið sjálft heldur teknir upp grimm­ustu kafl­arnir í danska kerf­inu og það sem hefði verið skúr­inga­fólki til hags­bóta skilið eft­ir.

Þessi sér­fræði­mennt­aði stjórn­andi gat ekki hugsað sér að starfa við hlið Sól­veigar Önnu þegar hún var kjörin til for­ystu í Efl­ingu heldur sagði upp og réði sig til að stýra samn­inga­nefnd Reykja­vík­ur­borgar þar sem hún beitti sér af alefli gegn öllum kjara­bótum lág­launa­fólks­ins. Þver­móðska for­manns samn­inga­nefndar Reykja­vík­ur­borg­ar, skiln­ings- og skeyt­ing­ar­leysi hennar um líf og kjör þeirra sem hún vildi m.a.s. sem stjórn­andi hjá verka­lýðs­fé­lagi aðeins sjá hlaupa og hlaupa og hlaupa og hlaupa, er eina sanna skýr­ingin á því að verk­föll dróg­ust á lang­inn.

Fram­gangan í samn­inga­við­ræð­unum var í fullu sam­ræmi við mold­ar­kof­a­við­horf borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans; við­horf sem skýra betur en nokkuð annað hve lengi borgin reyndi að koma sér undan því að byrja að standa við fal­legu fyr­ir­heit­in: Við ætlum að leið­rétta laun kvenna­stétta.

Það gerðu þau nefni­lega ekki fyrr en til­neydd -  og eru ennþá vælandi yfir því.

Höf­undur er með meist­­ara­­próf í stjórn­­­sýslu menn­ing­­arminja frá Uni­versity of York og er systir Sól­­veigar Önnu Jóns­dótt­­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar