Baráttunni er ekki lokið

Natan Kolbeinsson
15809594298_e30269afe9_z.jpg
Auglýsing

Hver hefur ekki heyrt það að rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks sé lok­ið?

Að allt sé kom­ið, nema þá kannski það að karl­menn sem stundað hafa sam­farir við ein­stak­ling af sama kyni geti ekki gefið blóð. Ég hef að minnsta kosti oft heyrt þetta og oft frá ein­stak­lingum sem flokka sig sem hinseg­in.

Auglýsing


Þann 20. apríl átti sér stað ótrú­legur atburður á twitt­er. Atburður sem var svar við einn einu for­dóma­fullu útspili Gylfa Ægis í garð sam­kyn­hneigðra. Þetta mótsvar var #hinseg­in­leik­inn, þar sem not­endur twitter hróp­uðu út alla þá for­dóma sem hinsegin fólk verður fyrir dags­dag­lega á Íslandi og erlend­is.



Þrátt fyrir það ætti ekki að koma neinum á óvart að Gylfi Ægis héldi áfram kross­ferð sinni gegn sam­kyn­heigðum ein­stak­ling­um, þá kom það meira segja mér á óvart hversu mikið af for­dómum er ennþá í sam­fé­lag­inu.



Það er nefni­lega þannig að þó Ísland sé komið langt í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks þá er bar­áttan langt frá því að vera búin. Eins og margir vilja meina, þá er það ekki þannig að eina bar­áttan sem eftir er sé bar­áttan um að geta gefið blóð.

Bróðir eða ást­mað­ur?

Sann­leik­ur­inn er sá að hinsegin fólk þarf ennþá að berj­ast fyrir til­veru­rétti sínum dags­dag­lega. Hinsegin fólk á sér ennþá fáar fyr­ir­myndir þegar kemur að per­sónum í sjón­varpi og kvik­mynd­um. Þar er það nán­ast und­an­tekn­ing að hinsegin per­sónur séu túlk­aðar og ef þær koma fram þá eru þær oftar en ekki hvítir hommar sem nán­ast eru orða­bók­ar­dæmi um staðalí­mynd­ina af sam­kyn­hneigðum karl­mönn­um. Sjaldan sjáum við bita­stæð hlut­verk í þáttum þar sem per­sónan er trans­gender eða inter­sex og hefur meiri til­gang en að vera bara stað­al­mynd þess­ara hópa í þátt­un­um. Aldrei vill það svo til að vondi karl­inn í James Bond er trans og að það komi í raun sög­unni ekk­ert við að hann sé það.



Hinsegin fólk getur ennþá ekki ferð­ast um heim­inn án þess að kanna fyrst laga­lega stöðu sína í land­inu sem það langar til að ferð­ast til. Oftar en ekki þurfa hinsegin pör að segj­ast vera systk­ini, vinir eða frænd­fólk þegar það ferð­ast til útlanda vegna þess að það að vera hinsegin er talið vera ósið­legt eða jafn­vel ólög­legt í sumum lönd­um.

Viltu vera homma­vinur minn?

Við sem erum hinsegin fólk þurfum að koma út úr skápnum nán­ast í hvert ein­asta skipti sem við kynn­umst nýjum ein­stak­lingi því það að vera hinsegin er ennþá ekki eitt­hvað sem talið er vera full­komn­lega eðli­legt í sam­fé­lag­inu.



Jafn­vel þó við séum komin langt í bar­átt­unni fyrir jafn­rétti hinsegin ein­stak­linga þá þarf almennt að breyta við­horf­inu til hinsegin fólks. Til að mynda finnst sumum það full­komn­lega eðli­legt að spyrja sam­kyn­hneigða stráka hvort þeir vilji vera “homma­vin­ir” þeirra. Það er lít­is­lækk­andi fyrir alla að vera spurður hvort maður vilji vera “to­ken minority” vinur ein­hvers. Það er í raun eng­inn munur á því að vera spurður hvort ein­hver vilji vera “homma­vinur þinn” og að spyrja hvort svartur maður vilji vera “svarti vinur þinn”.



Bar­átt­unni er langt frá því að vera lokið og margir sigrar óunn­ir, sér­stak­lega þegar kemur að því að berj­ast fyrir rétti inter­sex fólks og þá sér­stak­lega rétti barna til þess að vera ekki neydd í skurð­að­gerðir með það að mark­miði að “leið­rétta” kyn­færi þeirra svo þau passi inn í ímynd þess að vera með karl­kyns eða kven­kyns kyn­færi.



Þó við séum komin langt þá er ennþá fullt af for­dómum í íslensku sam­fé­lagi sem við eigum eftir að vinna bug á, því þótt sam­fé­lagið sé svo sann­ar­lega farið að umbera hinsegin ein­stak­linga þá á sam­fé­lagið ennþá eftir að sam­þykkja þá.



Höf­undur er rit­ari Q - félags hinsegin stúd­enta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None