Gagnsæið skiptir öllu - Lærum af reynslunni

Auglýsing

Það var áfall fyrir marga þegar þar kom fyrst fram fyrir alþjóð, eftir að banka­kerfi lands­ins hrundi eins og spila­borg dag­ana 7. til 9. októ­ber 2008, hvernig staðið hafði verið að einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins á árunum 1998 til og með 2003. Kolleggi minn og rit­stjóri Kjarn­ans, Þórður Snær Júl­í­us­son, skrif­aði merki­legan greina­flokk um einka­væð­ing­una, í mars 2009, sem byggði meðal ann­ars á gögnum um sölu á bönk­un­um, sem áður höfðu verið í geymslu leynd­ar­hjúps stjórn­mála­manna.

Margt má telja til gagn­rýni­vert við það hvernig staðið var að sölu á hlutum rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum og Lands­bank­an­um, en eitt atriði má sér­stak­lega nefna. Það er að sölu­ferlið og salan á þessum eignum almenn­ings hafi farið fram bak við luktar dyr. Ferlið var ógagn­sætt og hefur Val­gerður Sverr­is­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, meðal ann­ars við­ur­kennt að hafa ekki vitað nákvæm­lega hverjum ríkið var að selja Bún­að­ar­bank­ann!

Nú, tæpum sjö árum eftir síð­ustu upp­stokkun á eign­ar­haldi fjár­mála­kerf­is­ins, blasir við ný staða þar sem ríkið hyggst ­selja stóran eign­ar­hlut í Lands­bank­an­um, lík­lega í kringum 30 pró­sent, og hugs­an­lega mun eign­ar­hald á Íslands­banka og Arion banka einnig taka miklum breyt­ing­um, sem hluti af áætlun um losun hafta og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins. Stjórn­völd hafa mikla aðkomu að þessu ferli öllu og stýra ferð­inni.

Auglýsing

Íslenska ríkið á 98 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um, fimm pró­sent hlut í Íslands­banka og 13 pró­sent hlut í Arion banka. Þetta eru mikil verð­mæti, nálægt 300 millj­örðum króna sé horft til eig­in­fjár­stöð­u ­bank­anna.

Von­andi mun stjórn­mála­mönnum bera gæfa til þess að standa heið­ar­lega að þess­ari end­ur­skiplagn­ingu á eign­ar­haldi bank­anna. Það er best gert með gagn­sæju ferli þar sem almenn­ingur getur fylgst með því beint, lesið gögnin sem er verið að fjalla um og séð á hvaða grunni ákvarð­anir eru tekn­ar. Spor sög­unnar hræða og mik­il­vægt að þessi miklu verð­mæti verði ekki seld í hendur vild­ar­vina stjórn­mála­manna með lánum frá öðrum bönkum eða sjóð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None