Hvers vegna Efling þarf öðruvísi samning

Stefán Ólafsson bendir á að Efling sé einkum stéttarfélag verkafólks á höfuðborgarsvæðinu. Leiga þar er að jafnaði um 45% hærri en leiga á landsbyggðinni. Sambærilegur munur er hjá fólki sem glímir við að kaupa íbúðarhúsnæði.

Auglýsing

Tals­menn Sam­taka atvinnu­lífs­ins (SA) hafa stefnt að því að kjara­samn­ingur Starfs­greina­sam­bands­ins (SGS) verði fyr­ir­mynd ann­arra samn­inga verka­fólks á almenna vinnu­mark­að­in­um. Í eft­ir­far­andi grein er útskýrt hvers vegna SGS-­samn­ing­ur­inn er ófull­nægj­andi fyrir Efl­ing­ar­fólk.

Efl­ing er einkum stétt­ar­fé­lag verka­fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en önnur aðild­ar­fé­lög SGS eru einkum félög verka­fólks á lands­byggð­inni. Aðstæður vinnu og kjara eru mjög ólíkar á þessum svæð­um. Hjá Efl­ingu er meira af ungu fólki og inn­flytj­endum sem staldra skemur við hjá ein­stökum atvinnu­rek­endum en algeng­ast er á lands­byggð­inni. Þá er sam­setn­ing starfs­greina ólík hjá Efl­ingu og SGS-­fé­lög­un­um. Loks er fram­færslu­kostn­aður hærri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, einkum hús­næð­is­kostn­að­ur.

Þessar ólíku aðstæður gera það að verkum að nákvæm­lega sami samn­ingur skilar þessum hóp­um, Efl­ingu og öðrum SGS-­fé­lög­un­um, mjög mis­miklum kjara­bót­um.

Mis­mun­andi ábati af SGS-­samn­ingi

Í SGS-­samn­ingnum eru hækk­anir meiri hjá þeim sem eru í hærri launa­flokkum og mestar hjá þeim sem eru með langan starfs­aldur hjá sama fyr­ir­tæki (5 ár eða leng­ur). Hjá SGS-­fé­lögum á lands­byggð­inni er stór meiri­hluti sem er í hæsta starfs­ald­urs­þrepi launa­töfl­unnar og sem fær því mestu hækk­un­ina. Hjá Efl­ingu er ein­ungis um 17% félags­manna sem fá greitt í hæsta starfs­ald­urs­þrepi (5 ár eða lengur hjá sama fyr­ir­tæki). Um 55% Efl­ing­ar­fólks er á byrj­enda­taxta eða með eins árs starfs­reynslu. Þetta skiptir mjög miklu máli fyrir ábata af þeirri leið sem farin var í SGS-­samn­ingn­um.

Auglýsing
Ef SGS-­samn­ing­ur­inn væri lát­inn gilda óbreyttur fyrir Efl­ingu þá fengi verka­fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á milli 10.000 og 20.000 krónum minni hækkun launa en verka­fólk á lands­byggð­inni. Þá væri ekki gætt jafn­ræð­is.

Annað sem er lands­byggð­ar­fólki í hag er að starfs­fólk við fisk­vinnslu fær mikla hækkun á bón­us­greiðslum í SGS-­samn­ingn­um, sem sögð er skila því á milli 6.000 og 34.000 króna hækkun til við­bótar við taxta­hækk­an­ir. Mið­gildi þess­ara hækk­ana er um 20.000 krónur á mán­uði. Starfs­fólk við fisk­vinnslu er fyrst og fremst á lands­byggð­inni, en það er hverf­andi hluti verka­fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu – aðeins um 400 ein­stak­lingar af þeim 21 þús­und Efl­ing­ar­fé­lögum sem starfa á almennum vinnu­mark­aði. Þessi sér­staki ábati fyrir verka­fólk á lands­byggð­inni myndi því ekki skila sér á sam­bæri­legan hátt til almenns Efl­ing­ar­fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Ef þessir tveir stóru ábata­þættir væru jafn­aðir milli SGS-­fé­laga á lands­byggð­inni og verka­fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þá þyrftu launa­töflur Efl­ingar að hækka í grunn­inn um 20-30.000 krónum meira en er í launa­töflu SGS-­fé­lag­anna. Í raun þyrfti launa­tafla Efl­ingar að hafa aðra upp­bygg­ingu sem skil­aði fólki með skemmri starfs­aldur meiri hækk­unum og sem tæki meira til­lit til ólíkra sam­setn­inga starfa á höf­uð­borg­ar­svæði og lands­byggð.

Mun hærri hús­næð­is­kostn­aður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Í Kjara­f­réttum Efl­ingar nr. 4 (Halla­rekstur á heim­ilum lág­launa­fólks) var sýnt að tals­vert vantar uppá að heim­ili full­vinn­andi lág­launa­fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nái endum sam­an, jafn­vel þó fólk leggi á sig umtals­verða auka­vinnu. Þetta á bæði við um ein­hleypa, ein­stæða for­eldra og hjón með 2 börn sem bæði vinna fulla vinnu á lágum laun­um, með og án auka­vinn­nu. Óvenju mik­ill hús­næð­is­kostn­aður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er stór áhrifa­valdur þessa ástands.

Sam­kvæmt tölum frá Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun var með­al­upp­hæð greiddrar leigu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 220.000 krónur í októ­ber síð­ast­liðn­um. Á lands­byggð­inni er með­alleigan hins vegar ein­ungis um 152.000 krónur á mán­uði. Mun­ur­inn er 68.000 krón­ur. Leiga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er að jafn­aði um 45% hærri en leiga á lands­byggð­inni. Þetta er risa­stór munur á kjörum verka­fólks eftir lands­hlut­um. Sam­bæri­legur munur er hjá fólki sem glímir við að kaupa íbúð­ar­hús­næði.

Af þessum sökum fór Efl­ing fram á sér­staka fram­færslu­upp­bót fyrir verka­fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í kröfu­gerð sinni vegna kom­andi kjara­samn­inga.

Tals­menn sam­taka atvinnu­rek­enda (SA) hafa sagt að sjálf­sagt sé að taka til­lit til sér­stakra aðstæðna þegar kjara­samn­ingar eru gerðir – og fjöl­mörg for­dæmi eru auð­vitað fyrir slíku í fram­kvæmd.

Í kom­andi við­ræðum Efl­ingar við SA hlýtur að þurfa að taka fullt til­lit til ofan­greindra atriða til að jafna ábata Efl­ing­ar­fólks og lands­byggð­ar­fólks af kjara­samn­ingi í anda SGS-­samn­ings­ins. Jafn­framt að tekið verði til­lit til hins gríð­ar­lega aðstöðumunar milli verka­fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og lands­byggð­inni þegar litið er til hús­næð­is­kostn­að­ar.

Höf­undur er pró­fessor emeritus við HÍ og starfar sem sér­fræð­ingur hjá Efl­ingu - stétt­ar­fé­lagi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar