Fréttaskýring#Stjórnmál#Alþingi

Hvaða reynslu hafa aðstoðarmenn ráðherra?

Mikil umræða hefur spunnist um nýjustu ráðninguna í starf aðstoðarmanns ráðherra. Kjarninn tók saman reynslu þeirra fimmtán einstaklinga sem gegna þessum störfum.

Þórunn Elísabet Bogadóttir9. febrúar 2016

Gauti Geirs­son er nýjasti aðstoð­ar­maður ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Hann var ráð­inn í hálft starf í gær. Umræður hafa spunn­ist upp um ráðn­ing­una, en það er langt frá því í fyrsta skiptið sem það ger­ist. Fyrir tæpu ári síðan sagði umboðs­maður Alþing­is, Tryggvi Gunn­ars­son, að hann teldi að ráð­herrar þyrftu reynda ráð­gjafa til að vega upp á móti sínu eigin reynslu­leysi. Það væri meðal ann­ars sá lær­dómur sem draga mætti af leka­mál­inu, sem þá var enn í hámæli. 

„Þarna kemur til starfa fólk sem hefur ekki það sem ég kalla mikla sam­fé­lags­reynslu. Það hefur ekki veru­lega reynslu af þing­störf­um, ekki af þessum sam­skiptum að koma málum í gegnum stjórn­sýsl­una, það hefur oft á tíðum ekki mikla reynslu úr atvinnu­líf­inu, það hefur kannski fyrst og fremst reynslu úr póli­tískum störfum fyrir stjórn­mála­flokk­ana,“ sagði Tryggvi um ráð­herra. Hann sagð­ist telja að búa þurfi ráð­herrum betri aðstöðu til að rækja störf sín, reynda aðstoð­ar­menn sem gætu veitt hlut­lausa ráð­gjöf í sam­ræmi við góða stjórn­sýslu­hætti.

Kjarn­inn tók saman reynslu þeirra fimmtán ein­stak­linga sem gegna starfi aðstoð­ar­manns ráð­herra í rík­is­stjórn­inni. Öll nema eitt eru með háskóla­gráðu, og meiri­hluti þeirra hafði starfað fyrir flokk við­kom­andi ráð­herra áður en þau voru ráðin í störf aðstoð­ar­manna. 

Aðstoð­ar­menn ­for­sæt­is­ráð­herra

Jóhannes Þór Skúla­son er fæddur árið 1973 og er 43 ára. Hann er með BA-­próf í sagn­fræði frá Háskóla Íslands og starf­aði sem grunn­skóla­kenn­ari í Selja­skóla þar til hann tók við starfi aðstoð­ar­manns for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, árið 2011. Hann var líka um margra ára skeið þjálf­ari MOR­FÍS-liða í hjá­verk­um. Þegar Sig­mundur Davíð varð for­sæt­is­ráð­herra í maí 2013 tók Jóhannes við starfi aðstoð­ar­manns for­sæt­is­ráð­herra. Hann hafði ekki starfað í Fram­sókn­ar­flokknum fyrir þennan tíma en var mjög virkur í starfi InDefence-hóps­ins, og bauð sig fram til stjórn­laga­þings árið 2010.

Matth­ías Páll Ims­land er fæddur árið 1974 og er 42 ára gam­all. Hann lauk BA-­prófi í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og er með MS-­próf frá Háskól­anum í Lundi. Hann hefur einnig stundað nám í við­skipta­fræði við HÍ og stjórn­un­ar­nám við North Park Uni­versity í Chicago. Matth­ías hefur gegnt ýmsum trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í gegnum tíð­ina. Meðal ann­ars hefur hann verið í mið­stjórn og lands­stjórn flokks­ins. Hann starf­aði sem rekstr­ar­stjóri þjón­ustu­deildar Sím­ans eftir nám og hefur starfað sem sviðs­stjóri fræðslu-, félags- og menn­ing­ar­sviðs á Blöndu­ósi og í iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu. Hann var for­stjóri Iceland Express til árs­ins 2011 og svo fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs WOW-air til 2012. Hann vann sem ráð­gjafi eftir það og var svo kosn­inga­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ing­ar. Eftir það var hann aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, þangað til nú í árs­byrjun er hann varð aðstoð­ar­maður Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar. 

Aðstoð­ar­menn fjár­mála­ráð­herra

Svan­hild­ur Hólm Vals­dóttir er fædd árið 1974 og er 41 árs göm­ul. Hún er ­mennt­aður lög­fræð­ingur og lauk prófi frá Háskóla Íslands­ árið 2009. Hún starf­aði í fjöl­miðlum frá 1995 til 2009, sem ­blaða­mað­ur, útvarps­maður og síð­ast í sjón­varpi, bæði á RÚV og Stöð 2. Hún var ráðin fram­kvæmda­stjóri þing­flokks ­Sjálf­stæð­is­flokks­ins haustið 2009 og svo aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar haustið 2012. Hún fylgdi Bjarna svo í fjár­mála­ráðu­neytið þegar hann varð ráð­herra vorið 2013. Hún hafði sinnt félags­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, og var í stjórn og svo annar vara­for­maður SUS árin 1997 til 2001.

Teit­ur ­Björn Ein­ars­son er fæddur árið 1980 og er 35 ára. Hann er lög­mað­ur, útskrif­að­ist frá Háskóla Íslands 2006 og öðl­að­ist ­mál­flutn­ings­rétt­indi fyrir hér­aðs­dómi 2007. Hann starf­aði hjá LOGOS lög­manns­stofu eftir útskrift, var í fram­kvæmda­stjórn og ­stjórn Eyr­ar­odda 2007 til 2011 og svo lög­maður hjá OPUS lög­mönn­um frá 2011 og þar til hann var ráð­inn í fjár­mála­ráðu­neyt­ið sum­ar­ið 2014. Teitur hefur gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, var vara­for­maður SUS og hefur setið í ráðum og nefnd­um ­flokks­ins. Hann hefur einnig boðið sig fram í próf­kjöri fyr­ir­ Al­þing­is­kosn­ing­ar.

Aðstoð­ar­menn ut­an­rík­is­ráð­herra

Sunna G­unn­ars Mart­eins­dóttir er fædd árið 1984 og er 31 ára göm­ul. Hún er með BA-gráðu í almanna­tengslum frá Háskól­anum í West­min­ster, og hefur stundað nám í hag­nýtri menn­ing­ar­miðlun í Há­skóla Íslands. Áður en hún varð aðstoð­ar­maður Gunn­ar­s Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra í sept­em­ber 2013 var hún skrif­stofu­stjóri þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins frá árin­u 2010, og var aðstoð­ar­maður kosn­inga­stjóra flokks­ins árið 2009. Hún var líka til skamms tíma aðstoð­ar­maður for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hún hefur gegnt ýmsum félags­störf­um, og ­setið í nefndum á vegum Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Gaut­i ­Geirs­son er fæddur árið 1993 og er 22 ára gam­all. Hann er nemi í Há­skól­anum í Reykja­vík þar sem hann lærir rekstr­ar­verk­fræð­i. Hann er í hálfu starfi í ráðu­neyt­inu til að byrja með. Gaut­i hefur starfað sem háseti og vél­stjóri á tog­ara og far­þega­skip­um. Hann var kosn­inga­stjóri hjá Fram­sókn­ar­flokknum á Ísa­firði í síð­ustu kosn­ingum og skipar 15. sætið á lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi nú. Hann er einnig for­maður Félags ungra fram­sókn­ar­manna á norð­an­verðum Vest­fjörðum og rit­ari Félags­ ungra fram­sókn­ar­manna. 

Aðstoð­ar­menn mennta­mála­ráð­herra 

Sig­ríður Hall­gríms­dóttir er fædd árið 1971 og er 45 ára. Hún er með MBA-gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík. Áður en hún tók við starfi aðstoð­ar­manns Ill­uga Gunn­ars­sonar var hún ráð­gjafi hjá almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­inu KOM. Hún hefur meðal ann­ars starfað sem fram­kvæmda­stjóri hjá Sjá, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri hjá Credit­info Group og hjá Industria. Hún hefur einnig setið í stjórnum nokk­urra fyr­ir­tækja. Hún hefur einnig setið í stjórnum félaga­sam­taka og verið virk í störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hún var for­maður Hvat­ar, félags sjálf­stæð­iskvenna í Reykja­vík. 

Jóhannes Stef­áns­son er fæddur árið 1988 og er 27 ára. Hann er hér­aðs­dóms­lög­mað­ur, með BA- og meistara­gráðu í lög­fræði frá HR, sem hann lauk árið 2014. Hann var ráð­inn aðstoð­ar­maður í októ­ber síð­ast­liðn­um, en þá hafði hann starfað sem blaða­maður á Við­skipta­blað­inu um nokk­urt skeið. Hann vann einnig áður sem blaða­maður á Frétta­blað­inu og frétta­maður á Stöð 2. Hann hefur líka starfað fyrir sendi­ráð Banda­ríkj­anna í Reykja­vík, hjá Arion banka og LEX lög­manns­stofu. 

Jóhannes var for­maður Týs, félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Kópa­vogi, frá 2011 til 2013 og sat í aðal­stjórn Sam­bands ungra sjálf­stæð­is­manna árið 2011 til 2013

Aðstoð­ar­menn inn­an­rík­is­ráð­herra

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er fædd árið 1987 og er 28 ára. Hún lauk ML námi í lög­fræði frá Háskól­anum í Reykja­vík árið 2012 og var fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­manna frá vori 2013 og þar til hún var ráðin aðstoð­ar­maður Ólafar Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra rétt fyrir jólin 2014. Hún hefur starfað hjá emb­ætti sýslu­manns á Akra­nesi, hjá úrskurð­ar­nefnd umhverf­is- og auð­linda­mála og hjá Mar­el. Hún var kosn­inga­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir síð­ustu þing­kosn­ing­ar. Hún hefur verið virk í störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, verið for­maður félags ungra sjálf­stæð­is­manna á Akra­nesi og setið í stjórn SUS.

Kristín Har­alds­dóttir er fædd árið 1970 og er 45 ára. Hún er lög­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og er með LLM-gráðu í Evr­ópu­rétti frá Háskól­anum í Lundi. Hún hefur starfað sem full­trúi á lög­mann­stofu, var lög­fræð­ingur í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu og iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu í sex ár og síðar lög­fræði­legur aðstoð­ar­maður dóm­ara við EFTA-­dóm­stól­inn í Lúx­em­borg. Hún hefur verið sér­fræð­ingur við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík frá 2009 og for­stöðu­maður Auð­linda­rétt­ar­stofn­unar laga­deild­ar­inn­ar. Hún hefur einnig setið í stjórnum fyr­ir­tækja og nefndum á vegum rík­is­ins. Hún var ráðin lög­fræði­legur aðstoð­ar­maður Ólafar Nor­dal  í des­em­ber 2014.

Aðstoð­ar­menn sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra 

Bene­dikt Sig­urðs­son er fæddur árið 1964 og er 51 ára gam­all. Hann er með BA-gráðu í sagn­fræði frá Háskóla Íslands. Hann var ráð­inn aðstoð­ar­maður Sig­urðar Inga  í ágúst 2013  en var  fyrir það sviðs­stjóri sam­skipta hjá Act­a­vis á Íslandi. Hann var aðstoð­ar­maður Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar frá 2009 til 2011 og 2006 til 2008 var hann fjöl­miðla­full­trúi hjá Kaup­þingi. Tólf ár þar á undan vann hann sem frétta­mað­ur.

Ágúst Bjarni Garð­ars­son er fæddur árið 1987 og er 28 ára gam­all. Hann er með BA próf í stjórn­mála­fræði og meist­ara­próf í verk­efna­stjórnun frá Háskól­anum í Reykja­vík, en því námi lauk hann síð­ast­liðið vor. Ágúst tók við starfi aðstoð­ar­manns Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar í maí síð­ast­liðn­um, en áður hafði hann verið ráð­inn í tíma­bundin verk­efni hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­in­u. 

Hann hefur verið for­maður Sam­bands ungra fram­sókn­ar­manna frá því í febr­úar 2015, en áður var hann einnig vara­for­maður félags­ins. Hann er einnig odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafn­ar­firð­i. 

Aðstoð­ar­maður umhverf­is­ráð­herra 

Ing­veldur Sæmunds­dóttir er aðstoð­ar­maður umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra. Hún er fædd árið 1970 og er 45 ára göm­ul. Hún er með BS-­próf frá CBS, við­skipta­há­skól­anum í Kaup­manna­höfn, og diplómu í alþjóð­legri mark­aðs­hag­fræði frá Business Academy Copen­hagen North. Hún hefur líka stundað nám í stjórnun og stefnu­mótun í Háskóla Íslands. Hún starf­aði sem versl­un­ar­stjóri og síðar vöru­stjóri hjá Penn­an­um, og sem vöru­stjóri hjá Hátækni. Hún var svo kosn­inga­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar og var svo ráðin aðstoð­ar­mað­ur  þegar rík­is­stjórnin var mynduð.

Aðstoð­ar­maður heil­brigð­is­ráð­herra

Inga Hrefna Svein­bjarn­ar­dóttir er fædd árið 1981 og er 34 ára göm­ul. Hún er með BA-­próf í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands, sem hún lauk árið 2012. Hún starf­aði á skrif­stofu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Val­höll frá árinu 2007 til hausts­ins 2012, þegar hún tók við starfi fram­kvæmda­stjóra þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún var svo ráðin aðstoð­ar­maður Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar heil­brigð­is­ráð­herra í júní 2013.

Aðstoð­ar­maður iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra

Ingvar Pétur Guð­björns­son er fæddur árið 1979 og er 36 ára gam­all. Hann er búfræð­ingur frá Land­bún­að­ar­há­skól­anum á Hvann­eyri. Hann hefur einnig lagt stund á stjórn­mála­fræði og sagn­fræði í Háskóla Íslands. Áður en hann varð aðstoð­ar­maður Ragn­heiðar Elínar Árna­dótt­ur  árið 2013  starf­aði hann sem blaða­maður á Morg­un­blað­inu í átján mán­uði. Áður starf­aði hann hjá Lands­virkj­un, við almanna­tengsl og kynn­ing­ar­mál, og við skrif­stofu­störf hjá Slát­ur­hús­inu á Hellu. Hann sat í sveit­ar­stjórn Rangár­þings ytra 2002 til 2010 og aftur frá 2011 til 2012. Hann hefur verið mjög virkur í starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, meðal ann­ars í stjórn SUS og í full­trúa- og kjör­dæm­is­ráð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Efnisflokkar:
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar