Kjörstaðir loka klukkan 22 í kvöld.
Mynd: Birgir Þór

Framsóknarflokkurinn á sísta möguleika á að fá mann kjörinn í Reykjavík

Síðasta þingsætaspáin áður en kosningaúrslit liggja fyrir metur líkurnar á því að vinstrikvartettinn geti náð meirihluta á Alþingi eftir kosningar 59 prósent.

rýnir í kosningaspána
rýnir í kosningaspána

Lilja Alfreðs­dóttir og Karl Garð­ars­son eru þeir odd­vitar í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum sem eiga minnsta mögu­leika á að ná kjöri, sam­kvæmt síð­ustu þing­sæta­spánni fyrir kosn­ing­ar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er víð­ast vin­sæl­asti flokk­ur­inn, nema í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður þar sem Píratar munu lík­leg­ast eiga fyrsta þing­mann. Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi eru 58 pró­sent líkur á að Eygló Harð­ar­dóttir nái kjöri.

Lík­urnar á því að vin­strik­var­tett­inn geti myndað meiri­hluta á Alþingi eftir kosn­ingar eru nú metnar 59 pró­sent í þing­sæta­spá Kjarn­ans. Pírat­ar, Vinstri græn, Björt fram­tíð og Sam­fylk­ingin hafa þegar rætt saman um hugs­an­legt sam­starf að loknum kosn­ingum en það gæti þó staðið tæpt ef marka má kosn­inga­spá.

Kosið er til Alþingis í dag. Kosn­inga­spá Kjarn­ans og Bald­urs Héð­ins­sonar mælir Sjálf­stæð­is­flokk­inn stærsta fram­boðið með 24,9 pró­sent fylgi. Píratar mæl­ast með 19,4 pró­sent og Vinstri græn með 16,5 pró­sent. Fylgi Bjartar fram­tíðar og Sam­fylk­ing­ar­innar hefur hins vegar mælst mun minna og var 6,9 pró­sent og 6,5 pró­sent í síð­ustu kosn­inga­spánni sem gerð verður áður en kosn­inga­úr­slitin sjálf liggja fyrir í fyrra­mál­ið. Síð­asta kosn­inga­spáin fyrir kosn­ingar var greind hér á Kjarn­anum í morgun.

Þing­sæta­spáin var upp­færð í dag, laug­ar­dag­inn 29. októ­ber. Hún byggir á tveimur nýj­ustu könn­unum á fylgi flokka eftir kjör­dæmum sem birtar hafa verið með full­nægj­andi hætti. Það er Þjóð­ar­púls Gallup 24.–28. októ­ber (vægi 53%) og Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 20.–27. októ­ber (vægi 47%).

Þing­sæta­spáin er reikni­líkan sem fram­kvæmir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ing­ar“ þar sem nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi kann­ana eru hafðar til grund­vall­ar. Líkanið hönn­uðu stærð­fræð­ing­arnir Baldur Héð­ins­son og Stefán Ingi Valdi­mars­son með það að mark­miði að reikna líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­un­um. Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spána, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta. Nánar má lesa um fram­kvæmd þing­sæta­spár­innar hér.

Líkur á samanlögðum þingmannafjöldaUppfært 29. október kl. 14:15. Líkur á að samanlagður þingmannafjöldi framboðslista nái meirihluta á þingi. Til að fá eins manns meirilhuta á Alþingi þarf samanlagður fjöldi að vera 32 þingmenn. Rauða strikið í töflunni hér að neðan er sláin sem þarf að komast yfir.
Þingmenn BD BCD DV CDV DP PV APV APSV ACPSV ACPV
>=40
0%
0%
0%
7%
0%
0%
0%
0%
38%
5%
>=39
0%
0%
0%
12%
0%
0%
0%
1%
52%
10%
>=38
0%
1%
0%
21%
1%
0%
0%
3%
66%
18%
>=37
0%
2%
0%
32%
2%
0%
0%
6%
77%
28%
>=36
0%
4%
1%
45%
5%
0%
1%
12%
86%
41%
>=35
0%
8%
2%
58%
9%
0%
2%
20%
92%
54%
>=34
0%
14%
4%
71%
15%
0%
4%
32%
96%
67%
>=33
0%
23%
8%
82%
25%
0%
7%
45%
98%
79%
>=32
0%
35%
15%
89%
37%
1%
14%
59%
99%
87%
>=31
1%
48%
25%
95%
51%
1%
23%
71%
100%
93%
>=30
2%
62%
37%
97%
65%
3%
34%
81%
100%
96%
>=29
5%
74%
52%
99%
78%
7%
48%
89%
100%
98%
>=28
9%
84%
66%
100%
87%
13%
62%
94%
100%
99%
>=27
17%
91%
78%
100%
93%
22%
74%
97%
100%
100%
>=26
27%
96%
88%
100%
97%
34%
84%
99%
100%
100%
>=25
41%
98%
94%
100%
99%
49%
91%
99%
100%
100%

Stjórn­ar­flokk­arnir tveir – Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur – munu ekki geta myndað meiri­hluta sam­kvæmt þing­sæta­spánni. Lík­urnar á því að þessir tveir flokkar fái 32 þing­menn eða fleiri eru eng­ar. Ef Við­reisn verður „þriðja hjól­ið“ með stjórn­ar­flokk­unum eru 35 pró­sent líkur á því að hægt verði að mynda meiri­hluta.

Þá hefur meiri­hluti Við­reisn­ar, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna verið nefndur sem mögu­leiki. Í 100.000 hermunum sýnd­ar­kosn­ing­anna sem búa að baki þing­sæta­spánni náðu þessir flokkar að sam­tals meira en 32 þing­mönnum inn í 89 pró­sent til­fella.

Lík­urnar á því að vin­strik­var­tett­inn geti myndað meiri­hluta með 32 þing­mönnum hafa minnkað úr 61 pró­senti í fyrstu þing­sæta­spánni í 59 pró­sent í þing­sæta­spánni sem gerð var í dag. Sé Við­reisn hins vegar skipt út fyrir Sam­fylk­ing­una verða lík­urnar á því að þessir fjórir flokkar nái sam­an­lagt 32 mönnum á þing 87 pró­sent.

Vegna þess hversu víða stuðn­ingur kjós­enda dreif­ist virð­ist það vera mjög ólík­legt að hægt verði að mynda meiri­hluta tveggja flokka. Þing­sæta­spáin metur lík­urnar á að Píratar og Sjálf­stæð­is­flokkur fái sam­an­lagt meira en 32 þing­menn kjörna 37 pró­sent. Í 15 pró­sent til­vika í sýnd­ar­kosn­ing­unum 100.000 voru Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn með sam­an­lagðan meiri­hluta. Píratar og Vinstri græn mæl­ast með eitt pró­sent líkur á að ná sam­an­lögðum meiri­hluta á þingi.

Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, Þorsteinn Víglundsson, oddviti Viðreisnar í Reykjavík norður, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, í spjallþætti á Stöð 2.

15 pró­sent líkur á að Sam­fylk­ingin hverfi af þingi

Í 15 pró­sent til­vika sýnd­ar­kosn­ing­anna fékk Sam­fylk­ingin engan mann kjör­inn. Það er raunar þriðja lík­leg­asta nið­ur­staðan á þing­manna­fjölda Sam­fylk­ing­ar­innar eftir kosn­ing­arn­ar. Þing­sæta­spáin úthlutar þing­sætum eftir öllum kúnst­ar­innar regl­um. Lík­leg­asta nið­ur­staðan er að þing­flokk­inn eigi eftir að skipa fjórir full­trú­ar. Ef rýnt er í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu upp­röð­unar full­trúa úr kjör­dæmum þá eru það aðeins odd­vitar flokks­ins sem munu kom­ast að.

Dreifing þingsætaUppfært 29. október kl. 14:15. Í töflunni má sjá dreifingu á fjölda tilvika þar sem flokkur fékk ákveðinn fjölda þingmanna kjörinn í 100.000 sýndarkosningum.
Þingmenn A B C D P S V F T
0
9%
0%
1%
0%
0%
15%
0%
82%
99%
1
8%
0%
1%
0%
0%
4%
0%
4%
0%
2
0%
1%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
3
12%
4%
2%
0%
0%
13%
0%
9%
0%
4
29%
11%
9%
0%
0%
29%
0%
4%
0%
5
25%
16%
16%
0%
0%
23%
0%
0%
0%
6
12%
19%
21%
0%
0%
12%
1%
0%
0%
7
4%
18%
21%
0%
0%
3%
3%
0%
0%
8
1%
14%
15%
0%
1%
1%
6%
0%
0%
9
0%
9%
8%
0%
2%
0%
11%
0%
0%
10
0%
5%
4%
0%
6%
0%
16%
0%
0%
11
0%
2%
1%
0%
11%
0%
19%
0%
0%
12
0%
1%
0%
1%
16%
0%
17%
0%
0%
13
0%
0%
0%
2%
19%
0%
13%
0%
0%
14
0%
0%
0%
6%
17%
0%
8%
0%
0%
15
0%
0%
0%
10%
13%
0%
4%
0%
0%
16
0%
0%
0%
15%
8%
0%
2%
0%
0%
17
0%
0%
0%
18%
4%
0%
1%
0%
0%
18
0%
0%
0%
17%
2%
0%
0%
0%
0%
19
0%
0%
0%
13%
1%
0%
0%
0%
0%
20
0%
0%
0%
9%
0%
0%
0%
0%
0%
21
0%
0%
0%
5%
0%
0%
0%
0%
0%
22
0%
0%
0%
2%
0%
0%
0%
0%
0%
23
0%
0%
0%
1%
0%
0%
0%
0%
0%
24
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%

Flokkur fólks­ins og Dögun eru tekin með nú. Lík­urnar á því að Flokkur fólks­ins fái þrjá menn kjörna eru níu pró­sent. Í töfl­unni hér að ofan hafa allar tölur verið námund­aðar að heilli tölu. Lík­leg­asta nið­ur­staðan er eftir sem áður að þessir flokkar fái engan mann kjör­inn. Flokkur fólks­ins á mesta mögu­leika í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suð­ur. Þar eru lík­urnar á að Inga Sæland nái kjöri 14 pró­sent. Magnús Þór Haf­steins­son er odd­viti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norð­ur. Þing­sæta­spáin metur lík­urnar á því að hann nái kjöri 13 pró­sent.

Lík­urnar á því að Dögun fái mann kjör­inn er í öllum til­vikum minna en eitt pró­sent.

Reykjavíkurkjördæmi norður
11 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • 6%
    Björt Ólafsdóttir
  • 7%
    Sigrún Gunnarsdóttir
  • 0%
    Starri Reynisson
  • 35%
    Karl Garðarsson
  • 25%
    Lárus Sigurður Lárusson
  • 84%
    Þorsteinn Víglundsson
  • 93%
    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
  • 0.7%
    Páll Rafnar Þorsteinsson
  • 100%
    Guðlaugur Þór Þórðarson
  • >99%
    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
  • 45%
    Birgir Ármannsson
  • 7%
    Albert Guðmundsson
  • 0%
    Herdís Þorvaldsdóttir
  • 100%
    Birgitta Jónsdóttir
  • 95%
    Björn Leví Gunnarsson
  • 98%
    Halldóra Mogensen
  • 14%
    Katla Hólm Þórhildardóttir
  • 0.5%
    Snæbjörn Brynjarsson
  • 0.1%
    Lilja Sif Þorsteinsdóttir
  • 77%
    Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
  • 10%
    Helgi Hjörvar
  • 81%
    Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir
  • 91%
    Katrín Jakobsdóttir
  • 35%
    Steinunn Þóra Árnadóttir
  • 70%
    Andrés Ingi Jónsson
  • 2%
    Iðunn Garðarsdóttir
Reykjavíkurkjördæmi suður
11 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • 4%
    Nicole Leigh Mosty
  • 3%
    Eva Einarsdóttir
  • 0.1%
    Unnsteinn Jóhannsson
  • 78%
    Lilja Dögg Alfreðsdóttir
  • 48%
    Ingvar Mar Jónsson
  • 96%
    Hanna Katrín Friðriksson
  • 39%
    Pawel Bartoszek
  • 5%
    Dóra Sif Tynes
  • 0.1%
    Geir Finnsson
  • 100%
    Ólöf Nordal
  • 46%
    Brynjar Níelsson
  • 100%
    Sigríður Á. Andersen
  • 94%
    Hildur Sverrisdóttir
  • 7%
    Bessí Jóhannsdóttir
  • 100%
    Ásta Guðrún Helgadóttir
  • 7%
    Gunnar Hrafn Jónsson
  • 52%
    Viktor Orri Valgarðsson
  • 4%
    Olga Cilia
  • 0.1%
    Arnaldur Sigurðarson
  • 62%
    Össur Skarphéðinsson
  • 30%
    Eva H. Baldursdóttir
  • 0.1%
    Valgerður Bjarnadóttir
  • 94%
    Svandís Svavarsdóttir
  • 94%
    Kolbeinn Óttarsson Proppé
  • 46%
    Hildur Knútsdóttir
  • 4%
    Gísli Garðarson
Suðvesturkjördæmi
13 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • 5%
    Óttarr Proppé
  • 40%
    Theódóra S. Þorsteinsdóttir
  • 0.5%
    Karólína Helga Símonardóttir
  • 0%
    Halldór Jörgensson
  • 58%
    Eygló Þóra Harðardóttir
  • 95%
    Willum Þór Þórsson
  • 0.4%
    Páll Marís Pálsson
  • 0.1%
    María Júlía Rúnarsdóttir
  • 97%
    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
  • 39%
    Jón Steindór Valdimarsson
  • 29%
    Sigrún Ingibjörg Gísladóttir
  • 2%
    Bjarni Halldór Janusson
  • 0.1%
    Margrét Ágústsdóttir
  • >99%
    Bjarni Benediktsson
  • 94%
    Bryndís Haraldsdóttir
  • >99%
    Jón Gunnarsson
  • 59%
    Óli Björn Kárason
  • 59%
    Vilhjálmur Bjarnason
  • 3%
    Karen Elísabet Halldórsdóttir
  • 81%
    Jón Þór Ólafsson
  • 85%
    Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
  • 57%
    Andri Þór Sturluson
  • 11%
    Sara Elísa Þórðardóttir
  • 10%
    Þór Saari
  • 46%
    Árni Páll Árnason
  • 4%
    Margrét Gauja Magnúsdóttir
  • 0.1%
    Sema Erla Serdar
  • 60%
    Rósa Björk Brynjólfsdóttir
  • 5%
    Ólafur Þór Gunnarsson
  • 36%
    Una Hildardóttir
  • 0.3%
    Sig­ur­steinn Ró­bert Más­son
Norðvesturkjördæmi
8 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • 15%
    G. Valdimar Valdemarsson
  • 0%
    Kristín Sigurgeirsdóttir
  • 64%
    Gunnar Bragi Sveinsson
  • 0%
    Elsa Lára Arnardóttir
  • 3%
    Sigurður Páll Jónsson
  • 7%
    Gylfi Ólafsson
  • 0%
    Lee Ann Maginnis
  • 92%
    Haraldur Benediktsson
  • >99%
    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
  • 30%
    Teitur Björn Einarsson
  • 2%
    Hafdís Gunnarsdóttir
  • 24%
    Eva Pandora Baldursdóttir
  • 0.1%
    Gunnar I. Guðmundsson
  • 0.1%
    Eiríkur Þór Theódórsson
  • 94%
    Guðjón S. Brjánsson
  • 1%
    Inga Björk Bjarnadóttir
  • 9%
    Lilja Rafney Magnúsdóttir
  • 79%
    Bjarni Jónsson
  • 16%
    Dagný Rósa Úlfarsdóttir
Norðausturkjördæmi
10 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • 48%
    Preben Pétursson
  • 1%
    Dagný Rut Haraldsdóttir
  • 70%
    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
  • 93%
    Þórunn Egilsdóttir
  • 87%
    Líneik Anna Sævarsdóttir
  • 22%
    Benedikt Jóhannesson
  • 0.3%
    Hildur Betty Kristjánsdóttir
  • 100%
    Kristján Þór Júlíusson
  • >99%
    Njáll Trausti Friðbertsson
  • 21%
    Valgerður Gunnarsdóttir
  • 0.4%
    Arnbjörg Sveinsdóttir
  • 71%
    Einar Brynjólfsson
  • 2%
    Guðrún Ágústa Þórdísardóttir
  • 12%
    Gunnar Ómarsson
  • 0.2%
    Hans Jónsson
  • 93%
    Logi Már Einarsson
  • 2%
    Erla Björg Guðmundsdóttir
  • 0.1%
    Hildur Þórisdóttir
  • 100%
    Steingrímur Jóhann Sigfússon
  • 93%
    Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
  • 14%
    Björn Valur Gíslason
Suðurkjördæmi
10 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • 93%
    Páll Valur Björnsson
  • 1%
    Þórunn Pétursdóttir
  • >99%
    Sigurður Ingi Jóhannsson
  • 81%
    Silja Dögg Gunnarsdóttir
  • 13%
    Ásgerður K. Gylfadóttir
  • 0.1%
    Einar Freyr Elínarson
  • 28%
    Jóna Sólveig Elínardóttir
  • 3%
    Jóhannes Albert Kristbjörnsson
  • 0.1%
    Ingunn Guðmundsdóttir
  • 100%
    Páll Magnús­son
  • 98%
    Ásmund­ur Friðriks­son
  • 51%
    Vil­hjálm­ur Árna­son
  • 4%
    Unn­ur Brá Kon­ráðsdótt­ir
  • 1%
    Krist­ín Trausta­dótt­ir
  • 53%
    Smári McCarty
  • 24%
    Oktavía Hrund Jónsdóttir
  • 34%
    Þórólfur Júlían Dagsson
  • 70%
    Álfheiður Eymarsdóttir
  • 86%
    Oddný G. Harðardóttir
  • 1%
    Ólafur Þór Ólafsson
  • 99%
    Ari Trausti Guð­munds­son
  • 16%
    Heiða Guðný Ásgeirs­dótt­ir
  • 4%
    Dan­íel E. Arn­ars­son

Hér að neðan er lík­leg­asta nið­ur­staða þing­sæta­út­hlut­un­ar­inn­ar, miðað við úrslit sýnd­ar­kosn­ing­anna 100.000 sem búa að baki þing­sæta­spánni. Hér eru fjöldi þing­manna flokk­anna tald­ir. Auk þeirra eru nokkrir full­trúar sem eiga einnig mögu­leika á kjöri.

Norð­vest­ur­kjör­dæmi

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=0, B=1, C=0, D=2, P=1, S=0 og V=2.

  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: C1, S1, B2, V3, A1, D3 eða P2.

  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er P1 lík­leg­astur til að ná ekki inn.

Norð­aust­ur­kjör­dæmi

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=0, B=2, C=0, D=2, P=2, S=0 og V=2.

  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: S1, A1, D3, C1, B3, V3 eða P3

  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er P2 lík­leg­astur til að ná ekki inn.

Suð­ur­kjör­dæmi

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=0, B=1, C=0, D=4, P=2, S=0 og V=1.

  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: C1, A1, S1, B2, P3, D5 eða V2.

  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er D4 lík­leg­astur til að ná ekki inn.

Suð­vest­ur­kjör­dæmi

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=1, B=1, C=2, D=4, P=2, S=0 og V=1.

  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: P3, V2, S1, A2, C3, D5, B2 eða F1.

  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er B1 lík­leg­astur til að ná ekki inn.

Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=0, B=0, C=1, D=3, P=2, S=1 og V=2.

  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: A1, P3, V3, C2, B1, F1 eða D4.

  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er S1 og D3 álíkla lík­legir til að ná ekki inn.

Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=1, B=0, C=1, D=2, P=2, S=1 og V=2.

  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: P3, D3, V3, B1, C2, P4 eða F1.

  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er A1 og S1 álíkla lík­legir til að ná ekki inn.

Þing­sæta­spáin

Þing­sæta­spáin er ítar­legri grein­ing á gögnum kosn­inga­spár­innar sem mælir lík­indi þess að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­um. Nið­ur­stöð­urnar byggja á fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi fram­boða í öllum sex kjör­dæmum lands­ins hverju sinni og eru nið­ur­stöð­urnar birtar hér að vefn­um.

Fyrir kjör­dæmin

Líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri byggja á reikni­lík­ani stærð­fræð­ing­anna Bald­urs Héð­ins­sonar og Stef­áns Inga Valdi­mars­son­ar. Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slit­um. Sögu­leg gögn sýna fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæm­um. Frá­vikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæm­um.

Reikni­líkanið hermir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ing­ar“ og úthlutar kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­un­um. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.



Tökum ímyndað fram­boð X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem dæmi: Fram­boðið mælist með 20 pró­sent fylgi. Í flestum „sýnd­ar­kosn­ing­un­um“ fær X-list­inn 2 þing­menn en þó kemur fyrir að fylgið í kjör­dæm­inu dreif­ist þannig að nið­ur­staðan er aðeins einn þing­mað­ur. Sömu­leiðis kemur fyrir að X-list­inn fær þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu og í örfáum til­vikum eru fjórir þing­menn í höfn.

Ef skoðað er í hversu mörgum „sýnd­ar­kosn­ing­um“ hver fram­bjóð­andi komst inn sem hlut­fall af heild­ar­fjölda fást lík­urnar á að sá fram­bjóð­andi nái kjöri. Sem dæmi, hafi fram­bjóð­and­inn í 2. sæti X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi náð kjöri í 90.000 af 100.000 „sýnd­ar­kosn­ing­um“ þá reikn­ast lík­urnar á því að hann nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum 90 pró­sent.

Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spánna, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta.

Fyrir landið í heild

Þegar nið­ur­stöður í öllum kjör­dæmum liggja fyrir er hægt taka nið­ur­stöð­urnar saman fyrir landið í heild og reikna út líkur á því hversu marga þing­menn hver flokkur fær á lands­vísu. X-list­inn gæti, svo dæm­inu hér að ofan sé haldið áfram, feng­ið:

  • 8 þing­menn í 4% til­fella
  • 9 þing­menn í 25% til­fella
  • 10 þing­menn í 42% til­fella
  • 11 þing­menn í 25% til­fella
  • 12 þing­menn í 4% til­fella

Þetta veitir tæki­færi til þess að máta flokka saman reyna að mynda meiri­hluta þing­manna og skoða líkur á því hvaða flokkar muni ná meiri­hluta á þingi að afstöðnum kosn­ing­um. Ef X-list­inn er einn af þeim flokkum sem myndar meiri­hluta að loknum kosn­ingum er þing­manna­fram­lag hans til meiri­hlut­ans aldrei færri en 8 þing­menn, í 96% til­fella a.m.k. 9 þing­menn, í 71% til­fella a.m.k. 10 þing­menn o.s.frv. Lands­líkur X-list­ans eru því settar fram á form­inu:

  • = > 8 þing­menn í 100% til­fella
  • = > 9 þing­menn í 96% til­fella
  • = > 10 þing­menn í 71% til­fella
  • = > 11 þing­menn í 29% til­fella
  • = > 12 þing­menn í 4% til­fella
  • = > 13 þing­menn í 0% til­fella

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Efnisflokkar:
Meira eftir höfundinnBirgir Þór Harðarson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar