Rússneskir borgarar einangraðir enn frekar með lokun Instagram

Rússneska fjölmiðlaeftirlitið hefur lokað fyrir notkun þegna sinna á öllum stærstu samfélagsmiðlum heims og sett Meta, móðurfyrirtæki Facebook, á lista sinn yfir öfgafull samtök.

Instagram er mest notaði samfélagsmiðillinn í Rússlandi.
Instagram er mest notaði samfélagsmiðillinn í Rússlandi.
Auglýsing

Stjórn­völd í Rúss­landi hafa tekið enn eitt skrefið í átt að því að ein­angra þegna sína frá umheim­in­um, en eftir að hafa lokað fyrir aðgang að Face­book og Twitter í Rúss­landi fyrir rúmri viku síðan var ákvörðun tekin í gær um að loka einnig fyrir aðgang að Instagram.

Var sú ákvörðun tekin í kjöl­far þess að Instagram, dótt­ur­fyr­ir­tæki Meta, til­kynnti að slaka ætti á reglum um hat­urs­orð­ræðu á sam­fé­lags­miðl­inum í tengslum við inn­rás Rúss­lands í Úkra­ínu. Þannig muni sam­fé­lags­mið­ill­inn ekki rit­skoða ákall um ofbeldi gegn Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seta eða her­mönnum hans sem standa að árásinni.

Auglýsing

Vegna þessa hafa rúss­nesk stjórn­völd einnig sett Meta, móð­ur­fyr­ir­tæki Instagram, Face­book og Whatsapp, á lista yfir öfga­full sam­tök, en í yfir­lýs­ingu er því haldið fram að fyr­ir­tækið hafi stuðlað að og ýtt undir ofbeld­is­full mót­mæli og átök.

Fyrir utan þá ein­angrun frá umheim­inum sem lokun sam­fé­lags­miðl­anna felur í sér, auk þess sem rúss­neskur almúg­inn hefur nán­ast engan aðgan að frétta­veitum öðrum en þeim rík­is­reknu í Rúss­landi, er Instagram langstærsti sam­fé­lags­mið­ill­inn í Rúss­landi og reiðir fjöldi smárra rúss­neskra fyr­ir­tækja sig á sam­fé­lags­mið­il­inn. Þá má heldur ekki gleyma áhrifa­völd­um, einnig úr röðum afkom­enda rúss­neskra ólíg­arka.

Whatsapp í hættu

Er WhatsApp þá eini sam­fé­lags­mið­ill­inn undir Meta sem enn er hægt að nota innan Rúss­lands, en margir eru þó ugg­andi vegna yfir­vof­andi örlögum skila­boða­for­rits­ins í ljósi þess að móð­ur­fyr­ir­tæki þess er komið á lista Rússa yfir öfga­full sam­tök. Mikið er þar í húfi þar sem Whatsapp er mest not­aða skila­boða­for­ritið í Rúss­landi og fer 60% allra inter­net­skila­boða í Rúss­landi fram í gegnum Whatsapp, að því er Mary Ilyus­hina, blaða­maður Was­hington Post um mál­efni Rúss­lands, greinir frá á Twitter.

Áróð­ursmask­ínan svo­kall­aða í Rúss­landi virð­ist eftir fremsta megni reyna að ganga úr skugga um að hinn almenni borg­ari í Rúss­landi viti sem minnst um það sem er að eiga sér stað í Úkra­ínu, meðal ann­ars með því að sýna fölsuð eða úrelt mynd­skeið af auðum og frið­sælum borg­ar­hlutum í Úkra­ínu þar sem stríð geisar í raun og veru. Þá eiga allir sem mót­mæla inn­rásinni, sem og þeir sem dreifa því sem rúss­nesk yfir­völd kalla fals­frétt­ir, þar eð efni og upp­lýs­ingar um inn­rás­ina, yfir höfði sér fang­els­is­vist.

Stjórn­völd í Rúss­landi hafa þannig tals­verða hags­muni í því að halda þegnum sínum grun­lausum um þær hörm­ungar sem her þeirra er að valda nágrönnum þeirra í Úkra­ínu, og er einn liður í því að hindra aðgang almennra Rússa að sam­fé­lags­miðl­um.

Almenn­ingur víðs vegar um heim deyr hins vegar ekki ráða­laus og hefur til að mynda brugðið á það ráð að not­ast við ferða­miðla á borð við Tripa­dvisor til þess að skilja eftir gagn­rýni (e. Reveiw) um rúss­neska veit­inga­staði og hótel þar sem í stað þess að fara fögrum, nú eða ófögrum, orðum um mat­inn eða þjón­ust­una, deila þeir upp­lýs­ingum um inn­rás­ina í Úkra­ínu í von um að ná til almennra borg­ara í Rúss­landi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar