Stál í stál í kjaraviðræðum - horft til lausna á húsnæðismarkaði

9954308386_52a5d51e0a_z-1.jpg
Auglýsing

Við­ræðum milli Sam­taka atvinnu­lífs­ins (SA) og Starfs­greina­sam­bands­ins (SGS) hefur nú verið slitið og er SGS þegar byrjað að und­ir­búa næstu aðgerð­ir. Félags­menn eru ríf­lega tólf þús­und og aðild­ar­fé­lögin sextán tals­ins, en SGS sleit við­ræð­unum þar sem SA voru ekki til­búin að koma til móts við hug­myndir um hækkun lág­marks­launa upp í 300 þús­und krón­ur. „Kröfur SGS eru skýr­ar: Að lægstu laun verði komin upp í 300 þús­und krónur innan þriggja ára svo launa­fólk hafi mögu­leika til að lifa af dag­vinnu­laun­um. Það eru mikil von­brigði að Sam­tök atvinnu­lífs­ins voru ekki til­búin til að koma til móts við þessar kröf­ur. Starfs­greina­sam­bandið er því nauð­beygt til að hefja und­ir­bún­ing aðgerða og leita heim­ildar hjá sínum félögum til verk­falls­boð­un­ar,“ segir í til­kynn­ingu frá SGS vegna þessa. Næsta mál á dag­skrá er að aðild­ar­fé­lögin fái heim­ildir til þess að boða til verk­falla, til þess að knýja á um betri kjör. Aðild­ar­fé­lög SGS eru AFL Starfs­greina­fé­lag, Aldan stétt­ar­fé­lag, Báran stétt­ar­fé­lag, Dríf­andi stétt­ar­fé­lag, Ein­ing-Iðja, Fram­sýn stétt­ar­fé­lag, Stétt­ar­fé­lagið Sam­staða, Stétt­ar­fé­lag Vest­ur­lands, Verka­lýðs­fé­lag Akra­ness, Verka­lýðs­fé­lag Grinda­vík­ur, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Bol­ung­ar­vík­ur, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Sand­gerð­is, Verka­lýðs­fé­lag Snæ­fell­inga, Verka­lýðs­fé­lag Suð­ur­lands, Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga og Verka­lýðs­fé­lag Þórs­hafn­ar. Ljóst er því að verk­falls­að­gerðir geta haft víð­tæk áhrif.

Horft til hús­næð­islið­ar­ins



Ljóst er að kjara­samn­ings­við­ræður eru sigldar í strand og við­horf SA og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar eru gjör­ó­lík. SA hefur talað fyrir því að laun geti ein­ungis hækkað um 3,5 til 5 pró­sent á meðan verk­lýðs­hreyf­ing­in, og SGS, horfa til þess að laun geti hækkað um 20 til 30 pró­sent, einkum hjá þeim sem lægstu launin hafa, og að lág­marks­laun verði 300 þús­und.

Margt fleira hefur þó verið rætt í við­ræð­unum til þessa, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, og eru þar meðal ann­ars leiðir sem mögu­legt væri að fara til þess að bæta hag hins launa­fólks almennt. Þau atriði snúa meðal ann­ars að mál­efnum sem heyra undir sveit­ar­fé­lög og ríki, sem snúa að fast­eigna­mark­aðn­um. Hafa SA meðal ann­ars talað fyrir mik­il­vægi þess að atriði sem þessu tengjast, séu hluti af kjara­samn­ing­unum og þannig kallað eftir aðkomu hins opin­bera með virkum hætti.

Eygló Harðardóttir, er ráðherra húsnæðismála, og hefur boðað miklar breytingar á húsnæðiskerfinu í átt að danskri fyrirmynd. Ekkert hefur þó komið til framkvæmda ennþá. Eygló Harð­ar­dótt­ir, er ráð­herra hús­næð­is­mála, og hefur boðað miklar breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu í átt að danskri fyr­ir­mynd. Ekk­ert hefur þó komið til fram­kvæmda enn­þá.

Auglýsing

Lækka verð á lóðum



Skipta má þessum atriðum í fjóra meg­in­þætti, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Í fyrsta lagi er að end­ur­skoða bygg­ing­ar­reglu­gerðir til að lækka bygg­inga­kostnað og auð­velda bygg­ingu smærri íbúða. Í öðru lagi er að fá sveit­ar­fé­lög til að end­ur­skoða áherslur sínar hvað varðar skipu­lag og lóða­verð, til að stuðla að lægri bygg­inga­kostn­aði, og á end­anum minni verð­bólgu­þrýst­ingi vegna fast­eigna­verðs. Í þriðja lagi er sam­ræm­ing vaxta- og húsa­leigu­bóta en ljóst er að húsa­leigu­bætur byrja fyrr að skerð­ast vegna tekna. Í fjórða lagi er það fyr­ir­komu­lag félags­legs íbúða­kerf­is, og mik­il­vægi þess að það verði skipu­lagt í sam­hengi við sam­ræmda launa­stefnu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og SA.

Hvað ger­ist næst?



Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hafa stjórn­völd miklar áhyggjur af stöðu mála í kjara­við­ræð­un­um, og má búast við því að sam­tal stjórn­valda með aðilum vinnu­mark­að­ars­ins, í anda þjóð­ar­sátt­ar, verði enn virkara á næstu miss­er­um. Þar verður meðal ann­ars horft til þess hvernig ná má meiri kaup­mætti fram með breyt­ingum á hús­næð­is­kerf­inu. En helstu bar­áttu­málin munu þó áfram snú­ast um krónur og aura, beinar krónu­tölu­hækk­anir og hvar línan skuli dregin í þeim efn­um.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None