Hluthafar fá 800 milljónir úr Borgun - fyrsta arðgreiðslan frá 2007

borgun.jpg
Auglýsing

Ákveðið var að greiða hlut­höfum Borg­unar hf. 800 millj­ónir króna í arð vegna rekst­urs fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra á aðal­fundi fyr­ir­tæk­is­ins, en hann fór fram í febr­ú­ar. Þetta stað­festi Haukur Odds­son, for­stjóri Borg­un­ar, í sam­tali við Kjarn­ann. Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2007 sem greiddur er arður úr félag­inu, en hagn­aður þess var 1,4 millj­arðar í fyrra og eigið fé í lok árs um fjórir millj­arð­ar.

Í lok árs í fyrra, í nóv­em­ber­mán­uði, seldi Lands­bank­inn Íslands 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun fyrir 2,2 millj­arða króna til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borg­unar slf., sem stofnað var skömmum fyrir kaupin á hlutn­um. Tæp­lega 250 millj­ónir króna koma í hlut nýrra hlut­hafa.

Salan á Borgun var umdeild en hlut­ur­inn var ekki aug­lýstur til sölu en íslenska ríkið er lang­sam­lega stærsti eig­andi Lands­bank­ans með um 98 pró­sent hlut. Tryggvi Páls­son, for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, sagði í ræðu sinni á aðal­fundi Lands­bank­ans að betra hefði verið að aug­lýsa hlut­inn til sölu, og selja hann þannig í opnu og gagn­sæju ferli. Þá voru einnig sterkar vís­bend­ingar um það að verðið hefði verið í lægri kant­inum miðað við hefð­bundna mæli­kvarða verð­mata á sam­bæri­legum fyr­ir­tækj­um.

Auglýsing

landsbankinn

Stofnað í októ­ber



Stofnfé Eign­ar­halds­fé­lags Borg­unar nemur 500 þús­und krónum sem skipt­ist í þrjá flokka, 100 þús­und í A flokki, 395 þús­und í B flokki og fimm þús­und í C flokki. Í A og B flokki eru eig­endur stofn­fjár með tak­mark­aða ábyrgð en í C flokki er ótak­mörkuð ábyrgð, sam­kvæmt stofnskjölum félags­ins.

Einu eig­endur A flokks stofn­fjár er félagið Orbis Borg­unar slf. Eig­endur B flokks hluta­bréfa Eign­ar­halds­fé­lags Borg­unar eru þrettán tals­ins, sam­kvæmt samn­ingi um sam­lags­fé­lagið sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Stál­skip ehf., þar sem Guð­rún Lár­us­dóttir hefur stýrt ferð­inni í ára­tugi, með 29,43 pró­sent hlut. Þá á félagið P126 ehf. 19,71 pró­sent hlut, en eig­andi þess er Einar Sveins­son í gegnum móð­ur­fé­lagið Chara­m­ino Hold­ings Limited.

Þá á Pétur Stef­áns­son ehf. 19,71 pró­sent hlut, en for­svars­maður þess var Sig­valdi Stef­áns­son á stofn­fundi. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur þess­ara þriggja stærstu eig­enda nemur 68,85 pró­sentum af B flokki stofn­fjár.

Á eftir þessum stærstu eig­endum kemur félagið Vetr­ar­gil ehf. með 5,14 pró­sent hlut og TD á Íslandi ehf. 5,15 pró­sent. Afgang­inn eiga AB 426 ehf (2,86%)., þar sem Sig­ur­þór Stef­áns­son er í for­svari, Egg­son ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta Geir­finns­dóttir er í for­svari, Bústoð ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta er einnig í for­svari, Fram­tíð­ar­brautin ehf. (4,43%), þar sem B. Jak­obína Þrá­ins­dóttir er í for­svari, Iðu­steinar ehf., þar sem Magnús Pálmi Örn­ólfs­son er í for­svari, Holt og hæðir ehf., þar sem Sig­ríður V. Hall­dórs­dóttir er í for­svari, Spect­a­bilis ehf., þar sem Óskar V. Sig­urðs­son er í for­svari, og Mens Manus ehf., þar sem Hjalti Þ. Krist­jáns­son er í for­svari.

Sam­kvæmt stofn­fund­ar­gerð félags­ins, frá 23. októ­ber síð­ast­liðn­um, voru fjórir ein­stak­lingar mættir fyrir hönd félag­anna Orbis Borg­unar slf. og Orbis GP ehf. Þau félög eru þau einu sem eru í eig­endur stofn­fjár í C flokki með ótak­mark­aða ábyrgð. Þau sem mættu á fund­inn fyrir hönd félag­anna voru Magnús Magn­ús­son, Óskar V. Sig­urðs­son, Jóhann Bald­urs­son og Mar­grét Gunn­ars­dótt­ir.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None