Kastljós, fréttaskýringaþáttur RÚV, braut ekki gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands með umfjöllun sinni um Vegagerðina og meint hagsmunatengsl við innkaup á vegum hennar. Umfjöllunin var sýnd í desember síðastliðnum. Starfsmaður Vegagerðarinnar, sem var til umfjöllunar í þættinum, taldi umfjöllunina hafa brotið gegn æru hans.
Í Kastljósþættinum kom meðal annars fram að Vegagerðin hefði átt í viðskiptum við ættingja starfsmanna, fyrrum starfsmenn og jafnvel þá starfsmennina sjálfa. Um er að ræða hundruð milljóna króna viðskipti við bróður deildarstjóra hjá Vegagerðinni, hundruð milljóna króna verktöku fyrrum starfsmanns Vegagerðarinnar fyrir hana og kaup á ræstingum fyrir útibúi Vegagerðarinnar í Hafnarfirði af fyrirtæki í eigu deildarstjóra þess og eiginkonu hans.
Sá sem kærði Kastljós fyrir siðanefnd Blaðamannafélags Íslands er deildarstjóri þjónustudeildar Vegagerðarinnar. Deild hans átti í miklum viðskiptum við fyrirtæki í eigu bróður mannsins.
Í niðurstöðum Siðanefndar segir að umfjöllun Kastljóss hafi ekki verið brot á siðareglum Blaðamannafélagsins Íslands. Ábendingar um meint brot á lögum og reglum hafi fyrst og síðast snúið að Vegagerðinni en ekki manninum persónulega. Ekkert í siðareglunum standi í vegi fyrir að heimilt hafi verið að nafngreina manninn.