Kaup- og söluréttur Landsbankans í Húsasmiðjunni metinn á 225 milljónir króna

husaplusblar_himinn_03-1.jpg
Auglýsing

Félag í eigu Lands­bank­ans hefur eign­fært kaup- og sölu­rétt sinn í félagi um rekstur Húsa­smiðj­unnar á 225 millj­ónir króna. Félag­ið, Holta­vegur 10 ehf., seldi rekstur Húsa­smiðj­unnar til Bygma Gruppen A/S fyrir 760 millj­ónir króna í byrjun árs 2012. Sam­hliða söl­unni hélt félagið eftir 30 pró­sent kaup­rétti í félagi Bygma um rekstur Húsa­smiðj­unn­ar. Sá rétt­ur, ásamt sölu­rétt á hlutn­um, er nú met­inn á 225 millj­ónir króna í bókum félags­ins. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Holta­vegs 10 ehf. fyrir árið 2014 sem skilað var inn til árs­reikn­ing­ar­skráar í vik­unni.

Um tólf millj­arða króna afskriftir



Lands­bank­inn tók yfir Húsa­smiðj­una í októ­ber 2009. Þá var allt hlutafé afskrifað og bank­inn breytti 10,2 millj­örðum króna af skuldum í nýtt hluta­fé. Um var að ræða 70 pró­sent af öllum vaxta­ber­andi skuldum Húsa­smiðj­unnar við lána­stofn­an­ir. Fyr­ir­tæk­inu var síðan komið fyrir innan Vestia ehf. sem var síðar selt til Fram­taks­sjóðs Íslands (FSÍ). Í jan­úar 2012 breytti Lands­bank­inn einum millj­arði króna til við­bótar af skuldum Húsa­smiðj­unnar í nýtt hlutafé og við það eign­að­ist Hömlur ehf., félag í eigu bank­ans, eign­ar­hlut í fyr­ir­tæk­in­u. Það keypti síðar hlut FSÍ og átti þá Holta­veg 10 að öllu leyti.

Rekstur fyr­ir­tæk­is­ins var loks seldur til danska bygg­ing­ar­vöruris­ans Bygma í upp­hafi árs 2012 fyrir 760 millj­ónir króna auk þess sem Bygma tók yfir 2,5 millj­arða króna skuld­ir. Sam­hliða var nafni gömlu Húsa­smiðj­unnar breytt í Holta­veg 10 ehf. og tölu­vert af draugum for­tíðar skildir eftir þar inni. Á meðal þess var mögu­leg end­ur­á­lagn­ing skatta og mögu­lega sam­keppn­is­sekt. Þessir draugar hafa kostað félagið skild­ing­inn. Á und­an­förnum árum hefur Holta­vegur 10 greitt rúman millj­arð króna í end­ur­á­lagn­ingu skatta og vegna sam­keppn­is­sekt­ar. Því hafa allar eignir félags­ins, að með­töldu sölu­and­virð­inu vegna rekst­urs Húsa­smiðj­unn­ar, farið í að greiða skatta og sekt­ir.

Landsbankinn er endanlegur eigandi Holtavegs 10 ehf. Bankinn á því kaup- og sölurétt á 30 prosent hlut í Húsasmiðjunni. Lands­bank­inn er end­an­legur eig­andi Holta­vegs 10 ehf. Bank­inn á því kaup- og sölu­rétt á 30 pros­ent hlut í Húsa­smiðj­unn­i.

Auglýsing

Sölu­and­virðið allt í skatta og sektir



Fyrsta stóra áfallið reið yfir í lok árs 2011 þegar emb­ætti rík­is­skatt­stjóra til­kynnti að Húsa­smiðjan skuld­aði rúm­lega 700 millj­ónir króna í skatta vegna svo­kall­aðs öfugs sam­runa sem fyrrum eig­endur hennar höfðu ráð­ist í. Í slíkum sam­runa felst að eign­ar­halds­fé­lag er sett á fót og það kaupir rekstr­ar­fé­lag með láns­fé. Eign­ar­halds­fé­lagið er síðan látið renna inn í rekstr­ar­fé­lagið og þar með er skuld­unum sem stofnað var til við kaupin komið inn í rekst­ur­inn sem þær voru not­aðar til að kaupa.

Til­kynn­ing um end­ur­á­lagn­ingu skatt­anna kom þegar langt var liðið á sölu­ferli Húsa­smiðj­unn­ar, en Bygma var þá við að kaupa hana. Vegna skatta­vand­kvæð­anna var rekstur Húsa­smiðj­unnar settur yfir á nýja kenni­tölu, 2,5 millj­arðar króna af skuldum hennar líka og nýja kennitalan seld til Bygma fyrir 760 millj­ónir króna.

Eftir í gömlu Húsa­smiðj­unni voru skildar eignir sem voru metnar á 240 millj­ónir króna og kaup­verð­ið, 760 millj­ónir króna. Þetta var meðal ann­ars skilið eftir til að borga skatta­skuld­ina og mögu­lega sekt vegna sam­keppn­is­brota. 2011.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti síðan í fyrra­sumar að gamla Húsa­smiðjan  hefði náð sátt við sam­keppn­is­yf­ir­völd sem fól í sér að hún við­ur­kenndi að hafa brotið sam­keppn­is­lög með umfangs­miklu ólög­mætu sam­ráði við Byko. Þar sem gamla Húsa­smiðjan við­ur­kenndi brot sitt og var til­búin að gera sátt tald­i ­Sam­keppn­is­eft­ir­litið rétt­læt­an­legt að leggja á félagið lægri stjórn­valds­sekt en ella. Það var því ákveðið að hún yrði 325 millj­ónir króna. Málið er afrakstur marg­hátt­aðra aðgerða, meðal ann­ars hús­leita og sím­hleranna, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið réðst í vorið 2011 vegna gruns um sam­keppn­is­brot hjá Húsa­smiðj­unni, Byko og Úlf­in­um.

Þessi sekt var greidd á árinu 2014, sam­kvæmt árs­reikn­ingi Holta­vegs 10 ehf.

Vildu end­ur­heimta hluta afskrifta ef betur gengi



Sam­hliða söl­unni á rekstri Húsa­smiðj­unnar til Bygma var gert sam­komu­lag um að Holta­sel 10, félag í eigu rík­is­bank­ans Lands­banka, ætti kaup­rétt á 30 pró­sent hlut í félag­inu sem stofnað var utan um rekst­ur­inn. Hægt er að nýta rétt­inn á tíma­bil­inu 1. maí 2015 til 30. apríl 2020.

Til­gang­ur­inn var sá að gefa Lands­bank­anum tæki­færi til að end­ur­heimta hluta af þeim millj­arða­skuldum gömlu Húsa­smiðj­unnar sem hann hafði afskrifað ef rekst­ur­inn á nýju kenni­töl­unni gengi bet­ur. Útfærslan er bæði með kaup­rétti og kaup­skyldu og því kemur ekki til að Lands­bank­inn, eða félög í hans eigu, eigi þennan tæpa þriðj­ungs­hlut til lang­frama.

Rekstur Húsa­smiðj­unnar hefur ekki verið mjög ábata­samur þessi fyrstu ár eftir að Bygma keypti hann. Árið 2012 tap­aði fyr­ir­tækið 179 millj­ónum króna og árið 2013 175 millj­ónum króna. Fyr­ir­tækið hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2014.

Í nýbirtum árs­reikn­ingi Holta­vegs 10 er þessi kaup- og sölu­réttur eign­færður í fyrsta sinn og sagður 225 milljón króna virði. Verð­mið­inn miðar við 18 pró­sent ávöxt­un­ar­kröfu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None