Guðlaug tilkynnir formannsframboð - Fjórir vilja verða stjórnarformenn

gudlauf.jpg
Auglýsing

Guð­laug Krist­jáns­dótt­ir, for­maður bæj­ar­stjórnar í Hafn­ar­firði og bæj­ar­full­trúi Bjartrar fram­tíð­ar, hefur til­kynnt flokknum að hún sæk­ist eftir emb­ætti for­manns hans á árs­fundi sem hald­inn verður 5. sept­em­ber næst­kom­andi. Fjögur fram­boð hafa borist til emb­ættis stjórn­ar­for­manns Bjartrar fram­tíð­ar. Þau eru frá Guð­laugu, sem sæk­ist þá eftir öðru hvoru emb­ætt­inu, Kar­ólínu Helgu Sím­on­ar­dótt­ur, Matth­í­asi Frey Matth­í­assyni og Preben Pét­urs­syni. Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu Bjartrar fram­tíðar sem birt var í dag.

Athygli vekur að Mar­grét Mart­eins­dótt­ir, sem var kjörin stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar í jan­úar síð­ast­liðn­um, hefur ekki til­kynnt að hún sæk­ist áfram eftir að gegna því starfi.

All­ir ­skráð­ir ­fé­lagar í Bjartri fram­tíð geta boðið sig fram í emb­ætt­in.

Auglýsing

Mikil ólga síð­ustu vikur



Nokkur óánægja hefur verið með gang mála innan Bjartrar fram­tíðar und­an­farin miss­eri, og gagn­rýndi Heiða Kristín Helga­dótt­ir, annar stofn­andi flokks­ins og fyrrum stjórn­ar­for­maður hans, Guð­mund Stein­gríms­son, for­mann flokks­ins, vegna slæmrar stöðu flokks­ins í við­tali við Kjarn­ann í byrjun ágúst, en flokk­ur­inn mælist nú með aðeins 4,4 pró­sent fylgi.

Miðað við það fylgi myndi Björt fram­tíð ekki ná inn manni í kom­andi kosn­ing­um. ­Flokk­ur­inn mæld­ist með um 20 pró­sent fylgi í könn­unum  í fyrra­haust.

Í kjöl­far gagn­rýni Heiðu Krist­ínar hefur orðið mikið rót innan Bjartrar fram­tíð­ar. Guð­mundur hefur til­kynnt að hann muni hætta sem for­maður og Róbert Mars­hall, þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, hefur sömu­leiðis sagt að hann muni láta af emb­ætti. Guð­mundur ætlar að leggja fram til­lögu á árs­fund­inum um að ábyrgð­ar­stöður innan flokks­ins muni róter­ast.

Fjöl­margir hafa verið orð­aðir við for­manns­fram­boð. Einn þeirra er Heiða Krist­ín, en hún til­kynnti í gær að hún myndi ekki bjóða sig fram. Þess í stað hvatti hún Bryn­hildi Pét­urs­dótt­ur, þing­mann flokks­ins, til fram­boðs. Bryn­hildur hefur ekki sagt af eða á um hvort hún muni láta slag standa. Sömu sögu er að segja af Óttarri Proppé, þing­manni Bjartrar fram­tíð­ar.

Árs­fundur Bjartar fram­tíðar fer fram laug­ar­dag­inn 5. sept­em­ber í Reykja­nes­bæ, nánar til­tekið í Officera klúbbnum á Ásbrú. Sam­kvæmt dag­skrá stendur kosn­ing for­manns og stjórn­ar­for­manns yfir frá klukkan 14 til 16:45.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None