Slitastjórn Glitnis vill tíu milljarða skaðleysissjóð vegna hugsanlegra málsókna gegn henni

steinunn_10_0.jpg
Auglýsing

Í gögnun sem slita­stjórn Glitnis sendi til kröfu­hafa sinna á mið­viku­dag í síð­ustu viku kemur fram að hún fari fram á að þeir álykti um að settur verði á fót sér­stakur sjóður í evrum að jafn­virði tíu millj­arða króna. Sjóð­ur­inn á að tryggja slita­stjórn­inni skað­leysi vegna hugs­an­legra mál­sókna í tengslum við ákvarð­anir og störf henn­ar. Þetta kemur fram í DV í dag.

Þar segir einnig að sjóð­ur­inn yrði nýttur til að standa straum að ýmsum kostn­aði sem gæti fallið á með­limi slita­stjórn­ar, starfs­manna hennar (bæði núver­andi og fyrr­ver­and­i), auk erlendu ráð­gjaf­anna Moelis & Company og Tal­bot Hug­hes & McK­illop (THM) vegna mögu­legra máls­höfð­ana eftir að slita­með­ferð lýk­ur. ­Stein­unn Guð­bjarts­dótt­ir, for­maður slita­stjórnar Glitn­is, segir að svona skað­leysi tíðk­ist víða erlend­is. Hún segir einnig að ekki sé úti­lokað að slita­stjórnin muni segja sig frá störfum ef kröfu­hafar fall­ist ekki á slíka trygg­ingu fyrir skað­leysi þeirra. Auk Stein­unnar á Páll Eiríks­son sæti í slita­stjórn Glitn­is.



Skip­aðar af dóm­stólum og njóta ekki skað­leysis



Skila­nefndir föllnu bank­anna, sem skip­aðar voru eftir hrun, nutu skað­leys­is. Þær voru skip­aðar af rík­inu og það ábyrgð­ist skað­leysi þeirra. Þegar erlend fyr­ir­tæki voru að meta eignir nýju bank­anna sem reistir voru á grunni þeirra gömlu þá kröfð­ust þau einnig skað­leysis gagn­vart mál­sóknum sem gætu sprottið upp vegna mats þeirra. Ann­ars voru þau ekki til­búin að birta mat. Slita­stjórn­irnar voru hins vegar skip­aðar af dóm­stólum og njóta því ekki skað­leys­is.




Það er ekki að ástæðu­lausu sem kraf­ist er skað­leys­is. Upp­gjör föllnu íslensku bank­anna er nær for­dæma­laust í heims­sög­unni og upp­hæð­irnar sem undir eru stjarn­fræði­lega háar. Eignir Glitnis eru til að mynda tæpir eitt þús­und millj­arðar króna.


Tchenguiz hefur stefnt íslenskum slita­stjórn­ar­manni





Og það hefur þegar gerst að slita­stjórn­ar­mönnum hefur verið stefn­t. ­Kaup­sýslu­mað­ur­inn Vincent Tchenguiz stefndi slita­stjórn Kaup­þings, end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæk­inu Grant Thornt­on, tveimur starfs­mönnum Grant Thornton og Jóhann­esi Rún­ari Jóhanns­syni, sem situr í slita­stjórn Kaup­þings, í des­em­ber síð­ast­liðnum og krefst 2,2 millj­arða punda í skaða­bæt­ur, eða um 450 millj­arða króna. Robert bróðir hans stefndi Kaup­þingi og Jóhann­esi Rún­ari í ágúst.




Bæði málin voru höfðuð í Bret­landi, þar sem dýrt er að taka til varna. Kjarn­inn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um hver það væri sem greiddi fyrir málsvörn Jóhann­esar Rún­ars í júní síð­ast­liðn­um. Slita­stjórn Kaup­þings vildi ekki upp­lýsa um hvort hún greiddi fyrir málsvörn­ina. „Kaup­þing hefur ekki í hyggju að veita fjöl­miðlum upp­lýs­ingar um það hvernig Jóhannes Rúnar fjár­magnar vörn sína í téðu máli,“ sagði í skrif­legu svari frá Kaup­þingi við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.




Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None