Hörður Felix Harðarson, lögmaður Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrum forstjóra Kaupþings, hefur farið fram á að Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, víki sæti í Marple-málinu svokallaða. Samkvæmt heimildum Kjarnans er frávísunin meðal annars byggð á því að Ásgeir Brynjar sitji í stjórn samtakanna Gagnsæis, sem hafa það yfirlýsta markmið að berjast gegn spillingu í öllum grunnstoðum samfélagsins. Auk þess eru ýmis ummæli Ásgeirs Brynjars í þjóðmálaumræðu undanfarinna ára sem og greinarskrif hans sögð draga úr hlutleysi hans sem dómara.
Krafan verður lögð fram í héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Dómsformaðurinn í málinu mun taka afstöðu til hennar og meti hann það svo að Ásgeir Brynjar þurfi að víkja sem meðdómari mun aðalmeðferð Marple-málsins þurfa að fara fram á ný. Hún fór fyrst fram í héraðsdómi í byrjun september og búist var við dómi í því á næstu dögum.
Gagnsæ eru félagasamtök sem berjast gegn spillingu. Þau voru stofnuð fyrr á þessu ári og í stjórn samtakanna sitja að mestu fólk úr háskólasamfélaginu. Eitt aðalmarkmið samtakanna er að sækja um aðild að Transparency International-hreyfingu og verða Íslandsdeild hennar. Samtökin héldu málstofu um vernd uppljóstrara í síðustu viku þar sem Þórunn Elísabet Bogadóttir, aðstoðarritstjóri Kjarnans, var fundarstjóri.
Höfðu allir áður samþykkt meðdómarann
Sakborningar í Marple-málinu höfðu áður allir samþykkt Ásgeir Brynjar sem meðdómara í málinu. Hann er, líkt og fyrr segir, lektor við Háskóla Íslands og kennir fjármál, bókhald og greiningu ársreikninga.
Hann lauk doktorsprófi frá Gautaborgarháskóla í fyrra og fjallaði doktorsritgerð hans um flæði fjármagns í bankakerfinu en rannsóknin byggði á mismunandi aðferðum og samspili fjármála, peningahagfræði og reikningsskilareglna. Ásgeir Brynjar var einn umsækjenda um starf seðlabankastjóra þegar það var auglýst til umsóknar árið 2014.
Snýst um tilfærslu á átta milljörðum til Skúla Þorvaldssonar
Fjórir eru ákærðir í Marple-málinu, þau Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi fjármálastjóri bankans, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri bankans í Lúxemborg og Skúli Þorvaldsson fjárfestir.
Hreiðar Már og Guðný Arna eru ákærð fyrir fjárdrátt og umboðssvik. Magnús er ákærður fyrir hlutdeild í fjárdrætti og umboðssvikum og Skúli er ákærður fyrir hylmingu. Málið snýst um tilfærslu á um átta milljörðum króna úr sjóðum Kaupþings til félagsins Marple Holding, í eigu Skúla, án þess að lögmætar viðskiptalegar ákvarðanir lægju þar að baki. Hin ákærðu eiga yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi verði þau fundin sek.
Alls hefur embætti sérstaks saksóknara ákært þá Hreiðar Má og Magnús fjórum sinnum. Hreiðar Már hefur tvívegis verið dæmdur sekur í málum gegn honum, þótt annað þeirra mála eigi enn eftir að fara fyrir Hæstarétt. Magnús hlaut dóm í Al Thani-málinu en var sýknaður í stóra markaðsmisnotkunarmálinu tengt Kaupþingi fyrr á þessu ári. Báðir afplána þeir nú langa fangelsisdóma á Kvíabryggju.