Tíu staðreyndir um Davíð Oddsson

Davíð Oddsson býður sig fram til embættis forseta Íslands.
Davíð Oddsson býður sig fram til embættis forseta Íslands.
Auglýsing

1. Davíð Odds­son er fæddur í Reykja­vík þann 17. jan­úar 1948 og er því 68 ára gam­all. Hann er giftur Ástríði Thor­ar­in­sen og eiga þau einn son, Þor­stein Dav­íðs­son hér­aðs­dóm­ara á Akur­eyri. Hann á kött sem heitir Frans. 


2. Davíð hefur meðal ann­ars verið borg­ar­full­trúi, borg­ar­stjóri, þing­mað­ur, for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra, seðla­banka­stjóri og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins. Hann var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árunum 1991 til 2005.


3. Da­víð var list­hneigður sem ungur maður og íhug­aði að fara í leik­list­ar­nám. Hann hefur einnig skrifað ljóð, lög og bæk­ur. Hann sá einnig um vin­sælan grín­þátt í útvarp­inu, Matt­hildi, með Þór­arni Eld­járn og Hrafni Gunn­laugs­syni, þegar þeir voru saman í MR.  


Auglýsing

4. Hann er lærður lög­fræð­ingur en sem barn lang­aði hann að verða lækn­ir. 


5. Davíð hefur verið að mæl­ast með í kring um 20 pró­senta fylgi í skoð­ana­könn­unum á fylgi for­seta­fram­bjóð­enda.


6. Árið 1985 sagði Dav­íð, þá borg­ar­stjóri, að ef „þær 13 fal­legu stúlkur sem tóku þátt í feg­urð­ar­sam­keppn­inni skip­uðu sæti Kvenna­fram­boðs­ins“ þyrfti hann ekki að bjóða sig fram í næstu kosn­ing­um. Kvenna­fram­boðs­konur brugð­ust við með því að mæta í feg­urð­ar­drottn­inga­kjólum með áföstum borðum sem á stóð „Ung­frú Spök“ og „Ung­frú með­færi­leg“. Í dag segir hann að kynja­jafn­rétti sé mik­il­vægt. 


7. Ráð­húsið við Tjörn­ina og Perlan í Öskju­hlíð voru byggð í borg­ar­stjóra­tíð Dav­íðs. 


8. Davíð komst á lista Times Mag­azine yfir þá 25 ein­stak­linga í heim­inum sem beri mesta ábyrgð á banka­hrun­inu. Hann var einnig val­inn versti Seðla­banka­stjóri Evr­ópu í sænska dag­blað­inu Dag­ens Nyheter árið 2009. Hann einka­væddi íslensku bank­ana.  


9. Árið 2003 var greint frá því að Íslandi væri á lista yfir þau 30 ríki sem studdu inn­rás Banda­ríkja­manna og Breta inn í Írak og var kall­aður „listi hinna vilj­ugu þjóða.“ Davíð var þá for­sæt­is­ráð­herra og lýsti yfir stuðn­ingi við George W. Bush og hans áætl­anir í Írak. 


10. Davíð var einnig orð­aður við for­seta­fram­boð í síð­ustu kosn­ingum árið 2012. Þá sagð­ist hann engan áhuga hafa á emb­ætt­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None