Karolina Fund: Álög

Þorgrímur Pétursson ráðgerir sína fyrstu útgáfu á geisladisk.

CDcover300.jpg
Auglýsing

Allt frá því að Þor­grím­ur ­Pét­urs­son hóf nám á gít­ar ell­efu ára gam­all hefur hann verið að setja saman lög og búa til við þau texta. Nú ráð­gerir hann sína fyrstu útgáfu á geisla­disk sem ber tit­il­inn Álög. Á honum verða ­þrettán frum­samin lög­ og text­arnir eiga það all­ir ­sam­eig­in­legt að segja sög­ur. 

Hingað til hefur Þor­grímur flutt lögin sín ein­göngu með­ gít­arund­ir­leik en nú hafa þau verið útsett fyrir fleiri hljóð­færi eins og selló, flautu og horn í við­bót við hinar hefð­bundnu tromm­ur, píanó, gítar og bassa og í einu lagi kemur meira að segja heill kirkjukór við sögu. Nokkrir frá­bærir hljóð­færa­leik­arar hafa aðstoðað Þor­grím í upp­tök­unum sem Jó­hann Ásmunds­son bassa­leik­ari ­Mezzof­or­te hefur stjórnað í hljóð­ver­inu Para­dís. 

Auglýsing
Til þess að kosta verk­efnið safnar Þor­grímur nú fram­lögum á Karol­ina Fund og hefur stofn­að Face­book ­síðu utan um það á slóð­inni Álög - nýr geisla­disk­ur. 

Söfn­un­inni lýkur 8. jan­úar 2019. 

Hvernig vakn­aði hug­myndin að útgáf­unni?

„Með­göngu­tím­inn á þessum diski er orð­inn býsna langur og sum­ lag­anna urðu til fyrir ára­tug­um. Mig hefur alltaf langað til að gefa út lögin mín til að sjá hvernig þau spjara sig og þegar ég tók loks ákvörðun um að taka upp nokkur þeirra þá ­byrj­aði ég að útsetja lögin í tölv­unn­i heima til að þurfa ekki að eyða dýrum stúd­íó­tíma í það.Þorgrímur Pétursson. 

Ég leyfði svo Jóhanni upp­töku­manni að heyra það sem ég var búinn að gera. Honum leist vel á það flest og við unnum úr þessum hug­myndum á þessu ári sem upp­tök­urnar stóðu yfir.“

Segðu okkur frá þema disks­ins?

„Ég hef alltaf sjálfur haft mest gaman af lögum þar sem text­arnir segja sögu og valdi því lögin sem ég tók upp með það í huga að text­inn væri saga. Það má því segja að þetta séu þrettán tón­settar sögur og þar sem umfjöll­un­ar­efn­ið er margs­konar þá eru lögin þar af leið­andi lík­a af ýmsu tagi, svo sem ball­öð­ur, djass-skotið popp, kán­trí og eitt er útsett í anda Enni­o Morricone. Sem dæmi þá segir í einu lag­in­u frá því þegar Dauð­inn tekur leigu­bíl, annað er um engil sem verður ást­fang­inn af jarð­neskri konu og eitt er um ­skip­stjóra sem missir menn fyr­ir­ ­borð. Önnur umfjöll­un­ar­efni eru álfar og alkó­hól­ismi, draug­ar, ver­öld skáld­kon­u og svo auð­vitað ást­in.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efni Þor­gríms.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk