Sætabrauðsdrengirnir gefa loksins út plötu

Ýmsir ættu að kannast við Sætabrauðsdrengina en þeir hafa haldið jólatónleika um árabil. Nú er loksins komið að því að gefa út plötu eftir langa bið.

Auglýsing
Sætabrauðsdrengirnir

Sæta­brauðs­drengirnir hafa haldið jólatón­leika um ára­bil við góðar und­ir­tekt­ir. Tón­leik­arnir hafa verið ýmist í Salnum eða Hörpu, en einnig á nokkrum stöðum úti á landi. Margir tón­leika­gestir hafa óskað eftir því að geta keypt geisla­disk með þessu efni og í ár var því ákveðið að láta til skarar skríða með upp­tökum og útgáfu.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Við höfum fengið mikla hvatn­ingu til að gefa út efni af jólatón­leik­unum og hug­myndin hefur því blundað með okkur í nokkur ár, en nú var ekki lengur til set­unnar boðið að hrinda útgáfu í fram­kvæmd. Við von­umst til að Karolina­fund geri okkur það kleift, þar sem fólk getur fyr­ir­fram keypt sér geisla­disk og/eða miða á jólatón­leik­ana í des­em­ber, en einnig er hægt að panta litla tón­leika fyrir smærri hópa eða fyr­ir­tæki.

Auglýsing

Segið okkur frá laga­val­inu

Flest eru þetta alþekkt jóla­lög, en í nýjum og bráð­skemmti­legum útsetn­ingum píanó­leik­ar­ans, Hall­dórs Smára­son­ar. En þó að útsetn­ing­arnar séu nýjar, eru þær innan hefð­bund­ins ramma og fyrst og fremst glað­legar og sér­lega áheyri­leg­ar. Þarna eru t.d. gömul íslensk jóla­lög, eins og Gils­bakka­þula, Hátíð fer að höndum ein og Það á að gefa börnum brauð. Ó helga nótt er á sínum stað og fleiri erlend lög, eins og Bráðum koma jól­in, Yfir fann­hvíta jörð og Nú minnir svo ótal margt á jól­in.



Að auki eru þarna hátíð­legri lög eins og Það aldin út er sprungið og Guðs kristni í heimi. Hall­dór á einnig nýtt lag á plöt­unn­i.Þar sem við erum æringjar, urðum við að hafa svo­lítið grín með og Hall­dór setti saman litla syrpu af lög­um, sem nefn­ist Yfir­drátt­arsyrpan með vísun í visa-­reikn­ing­inn í febr­ú­ar. Þar eru glað­leg jóla­lög færð í moll og hljóma því all­trega­full!Það má því segja að farið sé yfir víðan völl í laga­vali. Und­an­farið höfum við verið í hljóð­veri hjá Haf­þóri Karls­syni „tempó“ og erum mjög spenntir yfir útkom­unni!

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk