Fáðu veitingastaðinn heim

Safnað fyrir gerð bókar sem inniheldur uppskriftir frá vinsælustu veitingastöðum landsins.

Authors_1_cropped.jpg
Auglýsing

Cook­ing wit­h Fire & Ice er upp­skrifta­bók með upp­skriftum frá vin­sæl­ustu veit­inga­stöðum Reykja­vík­ur. 

Bókin mun kynna veit­inga­staði og upp­skrift frá hverjum og einum sem hægt er að gera heima og verður gefin út á íslensku og ensku. ­Þrír ein­stak­lingar standa að gerð bók­ar­inn­ar: Rob Tasker, Söndru Björk Sig­urð­ar­dóttur og Tansu Ili­y­az. Þau safna nú fyrir gerð hennar á Karol­ina fund. 

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Hug­myndin vakn­aði vegna þess að við höfum mik­inn áhuga á veit­inga­stöðum og elda­mennsku, en árið hefur verið sér­lega slæmt fyrir veit­inga­rekstur á Íslandi. Rót­grónir veit­inga­staðir eins og Osta­búðin og Dill, eini veit­inga­staður á Íslandi til þess að vinna sér inn­ Michel­in ­Stjörnu, þurftu að leggja niður rekst­ur.

Auglýsing
Við vildum finna til þess að auka umræð­una um að fara út að borða, til þess að fagna þeirri mat­ar­menn­ingu sem er í Reykja­vík og upp kom þessi hug­mynd að gefa út bók.

Það eru fullt af mis­mun­andi upp­skrifta­bókum á mark­að­in­um, hvað myndi láta þessa standa upp úr rest­inni?

Upp­skrift­irn­ar.

Hug­myndin er að sýna veit­inga­staði sem Ís­lend­ing­ar, sem og ferða­menn, sækja í.

Það besta við þessa bók er það að þú þarft ekki að ver­a lista­kokk­ur til þess að geta fylgt henni eft­ir, við erum með upp­skriftir frá fjöl­breyttum veit­inga­stöðum á mis­mun­andi erf­ið­leika­stig­um.

Viltu upp­skrift af upp­á­halds borg­ar­anum þínu? Við erum með hana.

Viltu upp­skrift frá veit­inga­staðnum sem þú ferð bara á við sér­stök til­efni, sem þarf að panta borð með dágóðum fyr­ir­vara? Við erum líka með hana.

Hægt verður að elda rétti af mörgum af helstu veitingastöðum landsins heima hjá sér.Veit­inga­stað­irnir sem við höfum haft sam­band við hafa verið yfir sig hrifin af þess­ari hug­mynd. Þessi bók er sam­starf og fögn­uður þeirrar miklu mat­ar­menn­ingar sem er í borg­inni.

Við erum að von­ast eftir að koma þessum skemmti­lega hluta af íslenskri menn­ingu í öll eld­hús heims­ins, en það er erfitt og stórt verk­efni, og þess vegna viljum við reyna á mátt hóp­fjár­öfl­un­ar­.“ 

Segið okkur frá þema verk­efn­is­ins?

 „Að­al­þema bók­ar­innar er mat­ar­menn­ing Reykja­víkur og fjöl­breyti­leik­ann sem þar er að finna. Þetta er ekki bara hákarl og svið eins og túrist­inn held­ur. Við vildum taka saman það sem gerir mat­ar­menn­ing­una svona sér­staka. Bókin inni­heldur eitt­hvað fyrir alla, sama hverjir hæfi­leik­arnir í eld­hús­inu eru.

Við höfðum miklar áhyggjur af því að við myndum fá mikið af eins upp­skrift­um, en fjöl­breyti­leik­inn sem við höfum fengið er framar okkar björt­ustu von­um. Þetta er ekki eins og margar upp­skrifta­bækur sem sýna eina teg­und af mat, heldur hefur hún gamlar góðar klass­ískar íslenskar upp­skriftir yfir í diska með japönsku yfir­bragði. Full­komin blanda af upp­skriftum fyrir hvert til­efn­i.“

Þeir veit­inga­staðir sem eru stað­festir eru:

  • Bike Cave
  • Bryggjan Brugg­hús 
  • Burro Tapas + Steaks 
  • Café Loki 
  • The Coocoo's Nest 
  • Grillið 
  • Íslenski bar­inn
  • Kola­braut­in 
  • LAMB Street Food 
  • La Prima­vera 
  • Mat­ar­kjall­ar­inn 
  • Mess­inn
  • Public House Gastropub 
  • Slipp­bar­inn 
  • Snaps Bistro
  • Sæmundur í Spari­föt­unum in Kex Hostel 
  • Tapas Bar­inn 
  • Val­dís 

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk