Menn sem myrða konur, tímamótaleiðari, ris í vinsældum forseta og Helgi Magnússon

forsíða new york times
Auglýsing

Ýmis­legt bar til tíð­inda um liðna helgi, jafnt á inn­lendum og erlendum vett­vangi. Að venju var Kjarn­inn þétt­set­inn áhuga­verðum frétta­skýr­ing­um.

Síð­degis á föstu­dag birt­ist frétta­skýr­ing eftir Magnús Hall­dórs­son um þann mikla öldu­dal sem Brasilía er að ganga í gegnum eftir upp­gangs­tíma síð­ustu ára. Ómar Þor­geirs­son, sagn- og mark­aðs­fræð­ingur búsettur í Moskvu, fjall­aði síðar sama dag um nöt­ur­legt hlut­skipti heim­il­is­lausra í Rúss­landi.

Á laug­ar­dag­inn sagði Kjarn­inn frá því að fjár­laga­frum­varpið væri komið úr nefnd og sé þar af leið­andi til­búið fyrir aðra umræðu. Fyrr hafði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefnd­ar, sagt að kerfið verði sig með öllum ráðum fyrir nið­ur­skurði.

Auglýsing

Krist­inn Haukur Gunn­ars­son skrif­aði frétta­skýr­ingu um að straum­ur flótta­fólks til Evr­ópu frá stríðs­hrjáðum lönd­um, einkum Sýr­landi, hafi skapað flókna stöðu á Balkanskaga. Þá var sagt frá því að New York Times hafi birt leið­ara á for­síðu sinn í fyrsta sinn frá árinu 1920. Mál­efn­ið: Byssu­far­ald­ur­inn í Banda­ríkj­un­um.

Kjarn­inn hélt áfram að fjalla um loft­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem er nú rúm­lega hálfnuð. Birgir Þór Harð­ar­son blaða­maður er nú mættur til Par­ísar og mun fjalla um síð­ari helm­ing ráð­stefn­unnar það­an. 

Helgi Magnússon.Hér heima bar það helst til tíð­inda að Ólafía B. Rafns­dótt­ir, for­maður VR, sagði það ekki boð­legt að Helgi Magn­ús­son, vara­for­maður stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs Verzl­un­ar­manna, sitji í stjórnum fyr­ir­tækja sem sjóð­ur­inn á í. Helgi er umsvifa­mik­ill fjár­festir og á í sumum þeirra félaga sem sjóð­ur­inn á í.

Á sunnu­dag greindum við frá því að Sím­inn og Voda­fone séu að fara í sam­starf við 365 um að selja ein­staka fót­bolta­leiki, og í fram­tíð­inni aðra við­burði, í svo­kall­aðri Pay Per View þjón­ustu í Sjón­varpi Sím­ans og Voda­fone Sjón­varpi.

Borg­þór Arn­gríms­son, frétta­rit­ari Kjarn­ans í Kaup­manna­höfn, sagði frá því að Air­bus A380 far­þega­þot­an, risa­stálfugl­inn, sé byrjuð að fljúga til borg­ar­inn­ar.

Francois Hollande.Í Frakk­landi hef­ur François Hollande for­seti verið maður mann­anna und­an­farin miss­eri, að minnsta kosti fram að hér­aðs­kosn­ing­unum í gær. Á skömmum tíma hefur Hollande breyst úr lit­lausum og óvin­sælum for­seta í mik­il­væg­asta stjórn­mála­mann heims. Freyr Eyj­ólfs­son útskýrði af hverju.

Magnús Hall­dórs­son fór í gegnum þann mikla vöxt sem verið hefur í ferða­þjón­ustu að und­an­förnu, einkum utan háanna­tím­ans á sumr­in. Gistin­áttum í októ­ber fjölg­aði um 30 pró­sent milli ára.

En sú frétta­skýr­ing sem vakti lík­ast til hvað mesta athygli var skýr­ing Her­dísar Sig­ur­gríms­dóttur um rann­sókn­ar­skýrslu í Nor­egi sem sýndi fram á það að vís­bend­ingar um heim­il­is­of­beldi voru ekki teknar alvar­lega í fjöl­mörgum til­vik­um. Að lokum voru kon­urn­ar, fórn­ar­lömbin í lang­flestum til­vik­um, myrtar



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None