Vöxturinn í ferðaþjónustu heldur áfram - Stefnir í góða vetrarmánuði

Mikil aukning hefur verið í ferðaþjónustu að undanförnu, einkum utan háannatímans á sumrin. Gistináttum í október fjölgaði um 30 prósent milli ára.

14309725868_8cccec7146_b.jpg
Auglýsing

Gistinætur á hót­elum í októ­ber voru 238 þús­und sem er 30 pró­sent aukn­ing miðað við októ­ber í fyrra, sam­kvæmt tölum sem Hag­stofa Íslands birti á vef sínum 4. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Þetta er í takt við flestar spár um aukn­ingu umsvifa í ferða­þjón­ustu, en þær hafa gert ráð fyrir miklum og hröðum vexti, eða um 20 til 28 pró­sent fjölgun ferða­manna á þessu ári, og síðan áfram á næstu tveimur árum.

Fjölgun hjá útlend­ingum en fækkun hjá Íslend­ingum

Mikil fjölgun varð á gistin­óttum útlend­inga, en nóttum Íslend­inga fækk­aði að sama skapi. Gistinætur erlendra gesta voru 88 pró­sent af heild­ar­fjölda gistin­átta í mán­uð­inum en þeim fjölg­aði um 40 pró­sent frá sama tíma í fyrra á meðan gistin­óttum Íslend­inga fækk­aði um tólf pró­sent.

Auglýsing

Ein­göngu er átt við gistinætur á hót­el­um sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gisti­staða telj­ast hvorki gisti­heim­ili né hótel sem ein­göngu eru opin yfir sum­ar­tím­ann.

Gistinætur, þróun undanfarinn ára, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.

Flestar gistinætur á hót­elum í októ­ber voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða tæp­lega 166 þús­und sem er 29 pró­sent aukn­ing miðað við októ­ber 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suð­ur­landi eða um 34.400. Erlendir gestir með flestar gistinætur í októ­ber voru; Bretar með 44.300, Banda­ríkja­menn með 28.800 og Þjóð­verjar með 12.700 gistinæt­ur.

Fjölgun um 20 pró­sent

Á tólf mán­aða tíma­bili nóv­em­ber 2014 til októ­ber 2015 voru gistinætur á hót­elum rúm­lega 2,7 millj­ónir sem er fjölgun um tutt­ugu pró­sent miðað við sama tíma­bil ári fyrr.

Grein­ing­ar­deild Arion banka spáir því að ferða­mönnum muni fjölga um 27,5 pró­sent í ár, miðað við árið í fyrra, og heild­ar­fjöldi verði rúm­lega 1,2 millj­ón­ir. Á næsta ári fjölgi þeim í 1,5 millj­ónir og á árunum 2017 og 2018, muni þeim fjölga um 500 þús­und og verða um tvær millj­ónir á árinu 2018.

Gríð­ar­lega mik­ill vöxtur hefur verið í ferða­þjón­ustu á síð­ustu árum. Fjölg­unin var 20,7 pró­sent árið 2013 miðað við árið á und­an, 24,1 pró­sent árið 2014 og sam­kvæmt spá verður hún 27,5 pró­sent á þessu ári, eins og áður sagði.

Spá Arion banka.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None