Stjórnarformaður Fáfnis Offshore neitar að tjá sig

Polarsyssel, skip Fáfnis Offshore, var smíðað í Tyrklandi. Það kostaði fimm milljarða króna.
Polarsyssel, skip Fáfnis Offshore, var smíðað í Tyrklandi. Það kostaði fimm milljarða króna.
Auglýsing

Jóhannes Hauks­son, stjórn­ar­for­maður Fáfnis Offs­hore, vill ekki tjá sig um stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Hann segir í tölvu­pósti til Kjarn­ans að hann sé bund­inn trún­aði um málið og muni ekki tjá sig um það. Jóhannes starfar hjá Íslands­sjóðum og stýrir þar fram­taks­sjóðnum Akri, sem á 30 pró­sent hlut í Fáfni Offs­hore. Helstu eig­end­ur ­sjóðs­ins eru þrettán líf­eyr­is­sjóð­ir, Íslands­banki og VÍS. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er stærsti eig­andi Akurs með­ 19,9 pró­senta hlut. Þar á eftir kemur Gildi – líf­eyr­is­sjóður með 15 pró­sent. Ís­lands­banki á 14 pró­senta hlut en aðrir hlut­hafar tíu pró­sent eða minna. 

Það hefur mikið gengið á hjá Fáfni Offs­hore, íslensku ­fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í þjón­ustu við olíu- og gas­bor­p­alla á norð­læg­um slóð­um, und­an­farin miss­eri. Síðla árs 2014 fjár­festu íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir ­fyrir millj­arða króna í fyr­ir­tæk­inu og stefna þess var að reka 3-4 fok­dýr skip ­sem starf­aði á ofan­greindum þjón­ustu­mark­aði.

Síðan þá hef­ur verð­hrun á olíu­mörk­uðum orsakað að eft­ir­spurn eftir þeirri þjón­ustu sem Fáfn­ir Offs­hore veitir er nán­ast engin og tugum skipa sem sinna henni hefur ver­ið lagt.

Auglýsing

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um stöðu Fáfnis Offs­hore í frétta­skýr­ingu sem birt var í gær.

Segir að eini samn­ing­ur­inn sé í upp­námi

Kjarn­inn greindi frá­ því í byrjun des­ember að af­hend­ing á Fáfn­i Vik­ing, skipi í eigu Fáfnis Offs­hore, hafi verið frestað í annað sinn. Skipið átti að afhend­ast í mars á þessu ári en sam­kvæmt nýju sam­komu­lagi milli Fáfnis og norsku ­skipa­smíða­stöðv­ar­innar Hay­vard Ship Technologies AS, sem skrifað var undir í byrjun þessa mán­að­ar, mun afhend­ing þess frest­ast fram til júní­mán­aðar 2017.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að ástæða frest­un­ar­innar á afhend­ingu á nýja skip­inu sé ein­föld: ástand­ið á olíu­mark­aði hefur leitt til þess að engin verk­efni séu til staðar fyrir skip eins og Fáfni Vik­ing, sem á að þjón­usta olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó. Í júní 2014 var heims­mark­aðs­verð á tunnu af Brent-olíu 115,9 dal­ir. Nú kostar hún um 37 dali og hefur því lækkað um 68 pró­sent á tæpu einu og hálfu ári.

Eina skipið sem ­Fáfnir á og er með í vinnu er Pol­ar­sys­sel, sem kost­aði yfir fimm millj­arða króna og er dýrasta skip Íslands­sög­unn­ar. Það skip var afhent haustið 2014 og er með þjón­ustu­samn­ing við sýslu­emb­ættið á Sval­barða um birgða­flutn­inga og ­ör­ygg­is­eft­ir­lit í níu mán­uði á ári.  

Ket­ill ­Sig­ur­jóns­son, sér­fræð­ingur í orku­mál­um, sagði í grein sem hann skrif­aði í fyrra­dag að sá samn­ing­ur, sem er eina tekju­ber­andi verk­efni Fáfnis Offs­hore, sé ­mögu­lega í upp­námi eftir að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins rak Stein­grím Erlings­son, for­stjóra og stofn­anda Fáfnis Offs­hore, úr ­starfi í des­em­ber.

Í grein sinni sagð­i ­Ket­ill að sam­kvæmt sínum heim­ildum „úr norsku stjórn­sýsl­unni er þessi nýi ­samn­ingur þó ekki alveg skot­heldur enn­þá. Því þó svo kveðið hafi verið á um fjár­fram­lag til sýslu­manns­emb­ætt­is­ins á Sval­barða í norska fjár­laga­frum­varp­in­u, ­vegna 9 mán­aða leigu, virð­ist nú raun­veru­leg hætta á því að ­samn­ing­ur­inn ­falli nið­ur. Vegna hinnar óvæntu nýlegu ákvörð­unar stjórn­ar ­Fáfn­is að segja fram­kvæmda­stjór­anum Stein­grími Erlings­syni, fyr­ir­vara­laust ­upp störfum og skilja ­fyr­ir­tækið eftir án hæfs leið­toga og með afar ó­ljós mark­mið um fram­tíð­ina.“

Kjarn­inn hafði sam­band við Bjarna Ármans­son, sem á hlut í Fáfni og situr í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins, til að tjá sig um stöðu Fáfnis Offs­hore. Hann var staddur erlendis og benti á Jóhann­es Hauks­son, sem er stjórn­ar­for­maður Fáfnis Offs­hore. Jóhannes starfar hjá Ís­lands­sjóðum og stýrir þar fram­taks­sjóðnum Akri, einum stærsta eig­anda Fáfn­is. Hann vill, líkt og áður sagði, ekk­ert tjá sig um stöð­una.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None