Þingmenn Samfylkingar leggja fram frumvarp um afnám verðtryggingar

Tveir þingmenn Samfylkingarinnar vilja banna verðtryggingu á nýjum húsnæðislánum. Þeir segja ríkisstjórnina hafa sett fordæmi með leiðréttingunni. Íslendingar taka frekar verðtryggð lán en óverðtryggð.

sigríður ingibjörg ingadóttir, sigríður ingibjörg ingadóttir
Auglýsing

Tveir þing­menn Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Sig­ríður Ingi­björg Inga­dótt­ir og Helgi Hjörvar, hafa lagt fram frum­varp um bann við verð­trygg­ingu á nýj­u­m ­neyt­enda­lán­um, þar á meðal hús­næð­is­lán­um. Bannið á ekki að vera aft­ur­virkt og því ekki að ná til þeirra verð­tryggðu lána­samn­inga sem þegar hafa verið gerð­ir. 

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir marg­vís­leg efna­hags­leg rök og þörf á auk­inni neyt­enda­vernd kalli á afnám almennrar verð­trygg­ing­ar ­neyt­enda­lána. Þá hafi rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar ­for­sæt­is­ráð­herra sett „ákveðið for­dæmi fyrir því hvernig skuli bregð­ast við efna­hag­sveiflum í fram­tíð­inni“ með leið­rétt­ingu verð­tryggra hús­næð­is­lána vegna verð­bólgu­skots upp á 80 millj­arða króna.

Fram­sókn hefur lofað afnámi verð­trygg­ingar

Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ræddi mikið um afnám verð­trygg­ing­ar­innar í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Í pistli fyrir kosn­ing­arn­ar, sem nefnd­ist Fram­sókn­ar­stjórn eða verð­trygg­ing­ar­stjórn, sagði Sig­mundur Davíð meðal ann­ars að staðan væri ekki flókin og ljóst væri að annað hvort yrði rík­is­stjórn mynduð um skulda­leið­rétt­ingu, afnám verð­trygg­ingar og heil­brigð­ara fjár­mála­kerfi, eða ­rík­is­stjórn þeirra sem væru gegn þessum mál­u­m. 

Í stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins fyr­ir­ ­síð­ustu kosn­ingar var þessi stefna einnig tíund­uð. Þar sagði að flokk­ur­inn ætl­aði sér að af­nema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lán­um. Undir þeim lið sem fjall­aði um þá að­gerð sagði m.a.: „Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verð­trygg­ing­ar ­neyt­enda­lána". Slíkt þak hefur ekki verið sett það sem af er ­kjör­tíma­bil­inu.

Eftir kosn­ingar var ­skip­aður starfs­hópur til að und­ir­búa afnám verð­trygg­ing­ar. Hann komst að þeirri ­nið­ur­stöðu árið 2014 að það ætti ekki að afnema verð­trygg­ingu.

Um síð­ustu helg­i ­sagð­ist Sig­mundur Dav­íð, í sam­tali við Eyj­una á Stöð 2, að hann sjái fyrir sér­ að hægt yrði að setja afnám verð­trygg­ingu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Ljóst er að ­sam­starfs­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins í rík­is­stjórn, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, hefur engan hug á því að afnema verð­trygg­ingu. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sagt slikt opin­ber­lega.

Íslend­ingar taka frekar verð­tryggð lán

Í grein­ar­gerð Sig­ríðar Ingi­bjargar og Helga Hjörv­ars er fjallað sér­stak­lega um þessi lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þar seg­ir: „Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lof­að­i af­drátt­ar­laust fyrir síð­ustu kosn­ingar að verð­trygg­ing yrði afnumin með öllu. Það er því ljóst að staða verð­trygg­ingar á lána­mark­aði er í upp­námi og ­mik­il­vægt að bregð­ast við af festu. Þrátt fyrir þessa stöðu er óvíst með öllu hvenær rík­is­stjórnin hyggst leggja fram laga­frum­varp um mál­ið. Þess vegna er ­mik­il­vægt að lög­gjaf­inn dragi úr óvissu með því að banna verð­tryggð neyt­enda­lán ­með skýrum hætti.

Auk þess er það notað sem rök­stuðn­ingur fyrir frum­varp­inu að flest bendi til þess að afnám verð­trygg­ingar neyt­enda­lána njóti víð­tæks stuðn­ings. Könnun frá árinu 2009 sýn­i 80 pró­sent stuðn­ing við afnám verð­trygg­ingar og 37 þús­und manns hafi skrif­að undir und­ir­skrifta­söfnun Hags­muna­sam­taka heim­il­anna á árinu 2011 um að afnema hana. Síðar seg­ir: „ Litlar lík­ur eru á að krafan minnki í bráð og almenn­ingur sætti sig við verð­trygg­ing­una. Þetta þurfa stjórn­völd að taka alvar­lega. Í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi fær kerfi á borð við verð­trygg­ingu ekki stað­ist til lengdar ef andúð almenn­ings er jafn­sterk og al­menn og raun ber vitni.

Þorri íslenskra hús­næð­is­lána eru verð­tryggð og Íslend­ingar taka enn frekar verð­tryggð lán en óverð­tryggð. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015 juk­ust hús­næð­is­lán til að mynda um 87 millj­arða króna. Meiri­hluti þeirra vor­u verð­tryggð lán. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None