Listamannalaun og demókratar eins og krakkar í skólabúning

pet-skanni.jpg
Auglýsing

Grein Odd­nýjar Helga­dóttur vakti verð­skuld­aða athygli um helg­ina þar sem hún segir frá reynslu sinni af íslenska heil­brigð­is­kerf­inu og ber það saman við það rúm­enska, sem hún hefur einnig kynn­st, en mað­ur­inn hennar er Rúm­en­i. 

„Stað­reyndin er sú að þegar þróun í þessa átt er einu sinni farin af stað er mjög erfitt að snúa henni við. Það eru tak­mörk fyrir því hvað heil­brigð­is­starfs­menn láta bjóða sér. Það er ekki boð­legt að fólkið sem vinnur við að lækna, líkna og hlúa að okkur hinum búi við heilsu­spill­andi vinnu­að­stæð­ur, ómann­eskju­legt álag og virð­ing­ar­leysi þeirra sem eru við stjórn­völ­inn.”

Úthlutun lista­manna­launa hefur verið ofar­lega á baugi und­an­farnar vikur eftir að list­inn fyrir 2016 var gerður opin­ber. Tölu­verð umræða skap­að­ist í kring um Andra Snæ Magna­son rit­höf­und, sem hefur verið á lista­manna­launum und­an­farin tíu ár. 

Auglýsing

Kjarn­inn tekur reglu­lega saman tíu stað­reyndir um ákveðin mál­efni sem eru í deigl­unni, eins og kvótaflótta­menn, Borgun og ÁTVR. Lista­manna­launin fyrir val­inu um helg­ina. Þau ættu að varpa skýr­ara ljósi á þessa alda­gömlu hefð, að ríkið styrki lista­menn í störfum þeirra. Til dæmis kemur fram að Alþingi veitti fyrstu skálda­launin árið 1891 og lagði þannig grunn­inn að reglu­legum styrk­veit­ing­um. 

Svavar Gests­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, deilir skýr­ing­unni á Face­book síðu sinni þar sem hann bætir við að lista­manna­launin voru tekin út úr flokkspóli­tískum far­vegi 1990 í hans tíð sem mennta­mála­ráð­herra. „Áður kaus Alþingi úthlut­un­ar­nefnd lista­manna­launa. Hins vegar eru heið­urs­launin enn í flokkspóli­tískum far­vegi alþingis en þau eru lít­ill hluti allra lista­manna­launa. Því þarf hins vegar að breyta; eðli­legra væri að heið­urs­launin væru líka hluti lista­manna­laun­anna með skýrum hætt­i,” segir Svavar á Face­book

Spennan magn­ast í banda­rískum stjórn­málum og Bryn­dís Ísfold Hlöðvers­dóttir er að fylgj­ast með gangi mála úr návígi í New York. Allt stefnir í tví­sýna bar­áttu hjá demókrötum og Bryn­dís ber saman kosn­inga­bar­áttu þeirra og repúblik­ana og segir meðal ann­ars: „Í sam­ban­burði við fram­bjóð­endur repúblik­ana eru fram­bjóð­endur Demókra­ta­flokks­ins eins og vel upp­alin börn í skóla­bún­ing sem fara alltaf rak­leiðis í bolt­ann en aldrei mann­inn eins og góðra stjórn­mála­manna er sið­ur, þó að það sé sjald­séð nú til dags.” 

Í Bak­her­bergi Kjarn­ans var velt upp þeirri ein­stöku stöðu sem komin er upp innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Flokk­ur­inn mælist nú með sögu­lega lágt fylgi og lítil sem engin umræða er um Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­mann flokks­ins, og hvort hann eigi að íhuga stöðu sína. Í Bak­her­berg­inu var rætt að sjálf­stæð­is­menn séu vænt­an­lega ekki til­búnir að sætta sig við að mæl­ast með um 20 pró­senta fylgi í könn­un­um, en lík­leg­asta skýr­ingin fyrir því að engin umræða sé um stöðu Bjarna sé sú að það sé ein­fald­lega eng­inn sem hafi hag af því lengur því það sé eng­inn nægi­lega sterkur til að fara fram á móti hon­um. 

Kjarn­inn greindi frá því fyrir helgi að rík­is­stjórnin hafi ákveðið að styrkja gerð heim­ild­ar­myndar um flótta­menn á Íslandi um 3 millj­ón­ir. Um helg­ina kom svo í ljós að utan­rík­is­ráðu­neytið hafði líka styrkt mynd­ina um 3 millj­ónir áður, er RÚV greindi frá. Fram­leið­andi mynd­ar­innar er Árni Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi for­maður Flótta­manna­ráðs og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Páls Pét­urs­son­ar, ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks, og einnig fyrr­ver­andi vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks. Kol­brún Hall­dórs­dótt­ir, for­seti Banda­lags íslenskra lista­manna og fyrr­ver­andi ráð­herra VG, setur spurn­inga­merki við styrk­veit­ingu rík­is­stjórn­ar­innar sem hún segir orka tví­mæl­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None