Metfjöldi undirskrifta, fótbolti og framsóknarmenn reyna að taka skipulagsvald af Reykjavík

Antonin Scalia hafði setið lengst allra núverandi dómara í Hæstarétti Bandaríkanna. Hann var íhaldssamur og bókstarfstrúarmaður á stjórnarskrá landsins. Þótt hann væri beinlínis hataður í ýmsum kreðsum naut hann einnig mikillar virðingar.
Auglýsing

Kjarn­inn var fullur af gæða­efni um helg­ina og þar var farið um víðan völl. 

Á laug­ar­dags­morgun kom í ljós að yfir 70 þús­und manns höfðu skrifað undir áskorun Kára Stef­áns­sonar um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins, sem gerði und­ir­skrifta­söfn­un­ina þá stærstu í sög­unni þar sem áskorun er beint til íslenskra stjórn­valda. Hingað til hafði Hjartað í Vatns­mýri verið stærsta söfn­unin af þessu tag­i. 

Fót­bolti var óvenju fyr­ir­ferða­mik­ill í umfjöllun um helg­ina. Freyr Eyj­ólfs­son, frétta­rit­ari Kjarn­ans í Par­ís, skrif­aði um stór­liðið Paris Sain­t-­Germa­in, sem hefur ekki tapað leik síðan í mars í fyrra. Yfir­burðir liðs­ins í Frakk­landi eru ótrú­legir en í vik­unni tekur liðið á móti enska lið­inu Chel­sea.

Auglýsing

Sagn­fræð­ing­ur­inn Krist­inn Haukur Guðna­son skrif­aði svo um Leicester City, sem á mögu­leika á enska meist­aratitl­inum í fyrsta skipti. Krist­inn fór yfir óvænta deild­ar­meist­ara í fót­bolt­anum víða um Evr­ópu. 

Borg­þór Arn­gríms­son, frétta­rit­ari Kjarn­ans í Kaup­manna­höfn, minnt­ist þess að ár var liðið í gær frá voða­verk­unum þar í borg. Þá kom ungur Dani að sam­komu­hús­inu Krudttønden á Aust­ur­brú og hóf skot­hríð. 

Banda­ríkin voru líka til umfjöll­un­ar, en Bjarni Bragi Kjart­ans­son skrif­aði um valda­mesta emb­ætti heims­ins - emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna. Núver­andi for­seti Banda­ríkj­anna var líka í sviðs­ljós­inu, en Barack Obama ætlar að til­nefna nýjan Hæsta­rétt­ar­dóm­ara í stað Ant­honin Scalia, sem lést um helg­ina. 

Og svo er það lax­inn, en Her­dís Sig­ur­gríms­dóttir sagði les­endum Kjarn­ans frá því að norskir vís­inda­menn áætla að um þriðj­ungur alls laxa­fóð­urs geti átt upp­runa sinn í barr­skógum Nor­egs þegar fram líða stund­ir.

Á sunnu­dags­kvöld greindi Kjarn­inn svo frá því að Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ætlar í dag að leggja fram frum­varp sem tekur skipu­lags­valdið af Reykja­vík­ur­borg þegar kemur að flug­vell­inum í Vatns­mýr­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None