Trump biður íslenska þingmenn um styrki

Donald Trump segist ætla að fjármagna kosningabaráttu sína sjálfur, en er á sama tíma að óska eftir peningum frá íslenskum þingmönnum.
Donald Trump segist ætla að fjármagna kosningabaráttu sína sjálfur, en er á sama tíma að óska eftir peningum frá íslenskum þingmönnum.
Auglýsing

Íslenskum þing­mönnum hefur borist tölvu­póstur frá Don­ald Trump, for­seta­fram­bjóð­anda Repúblik­ana í Banda­ríkj­un­um, þar sem hann óskar eftir styrkjum við fram­boðið sitt. Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, er einn þeirra þing­manna sem hafa fengið slíkt skeyti. Nútím­inn greinir frá þessu og full­yrðir að ekki sé um svindl að ræða.

Don­ald Trump hefur ítrekað látið hafa eftir sér að hann eigi „ótak­mark­aða“ sjóði sem hann muni nota til að fjár­magna kosn­inga­bar­áttu sína sjálf­ur. Fram­boð hans safnar hins vegar pen­ingum frá almenn­ingi þrátt fyrir þessi orð fram­bjóð­and­ans. Reuters greinir frá því að í maí hafi hann aflað 3,1 milljón doll­ara frá ein­stak­ling­um. Upp­hæð­irnar sem Trump tekst að safna eru hins vegar smá­pen­ingar í sam­an­burði við þær upp­hæðir sem Hill­ary Clint­on, for­seta­fram­bjóð­andi Demókrata, hefur safn­að. Í maí safn­aði Clinton 26 millj­ónum doll­ara.

Auglýsing

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.Katrín Jak­obs­dóttir seg­ist ekki ætla að verða við ósk Don­ald Trump enda hafi hún ekki fund­ist mikið til mál­flutn­ings hans koma. Nútím­inn hefur póst­inn undir höndum og hefur kannað upp­runa hans. „Póst­ur­inn barst úr tölvu­póst­fangi Trump og tengl­arnir í póst­inum vísa á raun­veru­lega söfn­un­ar­síðu fram­boðs repúblikan­ans orð­ljóta. Það verður því ekki betur séð en að póst­ur­inn hafi borist frá fram­boði Don­alds Trump,“ segir í frétt­inni.

Morg­un­blaðið segir svo frá því að Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna, hafi einnig fengið póst­inn. Hún ætli ekki heldur að styrkja Trump. Hún hafi setið á kaffi­húsi ásamt Vig­dísi Hauks­dótt­ur, for­manni fjár­laga­nefndar Alþing­is, sem hafi líka fengið póst­inn.

Sam­kvæmt banda­rískum kosn­inga­lögum er for­seta­fram­boðum óheim­ilt að þiggja fé frá þeim sem ekki hafa banda­rískan rík­is­borg­ara­rétt. Don­ald Trump er því hugs­an­lega að fara á svig við kosn­inga­lög þar í landi með því að senda styrk­beiðnir á íslenska þing­menn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None