Frumvarp um hömlur á fjárfestingabankastarfsemi ekki lagt fram fyrir kosningar

Starfshópur sem átti að skila tillögum um hömlur á fjárfestingabankastarfsemi stóru bankanna fyrir 1. september nær því ekki. Því kemur ekki fram frumvarp um málið fyrir kosningar. Rík krafa hefur verið um aukin aðskilnað milli starfssviða banka.

Allir stóru bankarnir þrír stunda bæði viðskiptabanka- og fjárfestingabankastarfsemi.
Allir stóru bankarnir þrír stunda bæði viðskiptabanka- og fjárfestingabankastarfsemi.
Auglýsing

Starfs­hópur sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skip­aði í lok apríl og á að yfir­fara lög um fjár­mála­fyr­ir­tæki til að setja hömlur á fjár­fest­inga­banka­starf­semi stóru bank­anna þriggja, mun ekki skila til­lögum sínum fyrir 1. sept­em­ber eins og gert var ráð fyr­ir. Hóp­ur­inn mun þess í stað óska eftir því að skila til­lögum sín­um, í formi laga­frum­varps, fyrir lok þessa árs. Því munu til­lög­urnar ekki liggja fyrir áður en þing­kosn­ingar fara fram í haust. Frá þessu er greint í DV.

Vinna starfs­hóps­ins snýst um að tak­marka fjár­fest­inga­banka­starf­semi Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka, hinna þriggja end­ur­reistu við­skipta­banka sem eru að mestu fjár­magn­aðir með inn­stæðum Íslend­inga. Vinna hóps­ins miðar að því að koma til móts við kröfur um aðskilnað á við­skipta­banka- og fjár­fest­inga­banka­starf­semi, sem hafa verið háværar í sam­fé­lag­inu, meðal ann­ars innan Fram­sókn­ar­flokks­ins. Rökin fyrir slíkum aðskiln­aði eru þau að fjár­fest­inga­banka­starf­semin sé mun áhættu­sam­ari, getur leitt af sér mik­inn ágóða en líka mikil töp, en við­skipta­banka­starf­semin nýtur rík­is­á­byrgð. Því sé ekki tækt að ríkið sé í ábyrgð fyrir starf­semi sem ætti fyrst og síð­ast að vera áhyggju­efni eig­enda fjár­fest­inga­banka.

Starfs­hóp­ur­inn er skip­aður Leifi Arn­keli Skarp­héð­ins­syni, sér­fræð­ingi á skrif­stofu efna­hags­mála og fjár­mála­mark­aðar hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu sem er for­maður hans, Sig­ríði Bene­dikts­dótt­ur, frá­far­andi fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands, Sig­ríði Loga­dótt­ur, aðal­lög­fræð­ingi Seðla­bank­ans, Jóni Þór Sturlu­syni, aðstoð­ar­for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, og Björk Sig­ur­gísla­dótt­ur, lög­fræð­ingi hjá eft­ir­lit­inu.

Auglýsing

Tak­marka heim­ildir til að kaupa eigin bréf

Í DV er greint frá því að á meðal þeirra verk­efna sem starfs­hóp­ur­inn á að takast á við er að kanna hvort hægt sé að tryggja dreift eign­ar­hald á bönkum með laga­kvöð­um, hvort til­efni sé til að setja frek­ari laga­skyldur um aðskilnað starfs­sviða í stóru íslensku bönk­un­um, hvort hægt sé að tak­marka að stóru bank­arnir sölu­tryggi verð­bréfa­út­boð, hvort hægt sé að setja frek­ari tak­mark­anir á við­skipta­vakt á milli kerf­is­lega mik­il­vægra fjár­mála­fyr­ir­tækja og hömlur á að þeir geti átt við­skipti með verð­bréf fyrir eigin reikn­ing. Þá kemur fram í skip­un­ar­bréfi starfs­hóps­ins að ráð­herr­ann vilji að hann skoði hvort taka eigi upp reglur sem afmarka nánar þá starf­semi sem hefur áhrif á inn­stæðu­skuld­bind­ingar banka­stofn­ana, til að tryggja inn­stæðu­eig­endum aukna vernd frá áhættu­meiri starf­semi bank­ans. 

Þar segir einnig að starfs­hóp­ur­inn hafi í vinnu sinni þegar lokið við að leggja drög að breyt­ingum sem fela í sér að heim­ildir banka til að kaupa eigin bréf verði tak­mark­aðar frá því sem nú er, en kaup banka á eigin bréfum voru mikið og við­var­andi vanda­mál fyrir hrun. Slík kaup hafa leitt af sér ákærur og sak­fell­ingar fyrir mark­aðs­mis­notk­un. Þá stendur til að hækka lág­marks­kröfur um vog­un­ar­hlut­fall bank­anna upp í fimm pró­sent. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None