Fjarskipti hf., móðurfélag Vodafone á Íslandi, og 365 miðlar hf. hafa undirritað samkomulag um einkaviðræður og helstu forsendur og skilmála kaupsamnings varðandi möguleg kaup á eignum og rekstri ljósvakamiðla og fjarskiptaþjónustu 365 miðla hf. Kaupverðið er áætlað 3,4 milljarðar króna, greitt með 1,7 milljarði króna í reiðufé og útgáfu hlutbréfa í Fjarskiptum ehf. Auk þess mun félagið yfirtaka 4,6 milljarða króna af vaxtaberandi skuldum 365 miðla, verði af kaupunum. Heildarkaupverðið er því átta milljarðar króna.
Kaupin eru háð ýmsum forsendum og fyrirvörum. Meðal annars eru forsendur um kaupverð grundvallaðar á upplýsingum seljanda og þeim forsendum að rekstrarhagnaður hins keypta fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA), að viðbættum samlegðaráhrifum, geti numið allt að 2 milljörðum króna á ársgrundvelli.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vodafone, sem skráð er í Kauphöll Íslands. Þar segir „Eignir 365 miðla hf. sem undanskildar eru í viðskiptunum samkvæmt samkomulaginu eru Fréttablaðið og visir.is. 365 miðlar hf. munu halda áfram rekstri fréttastofu og verður samið um miðlun efnis milli aðila eftir því sem við á.“
Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, segir að of snemmt sé að segja til um hver endanleg niðurstaða í viðræðunum verði. „Við munum nýta næstu mánuði vel til þess að kanna hvort forsendur kaupanna standist."
Undir ljósvakamiðla 365 miðla hf. falla bæði sjónvarps- og útvarpsrekstur félagsins. Helstu sjónvarpsstöðvar eru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórásin og á útvarpssviðinu eru það meðal annars Bylgjan, FM957 og X-ið. Á fjarskiptamarkaði hafa 365 miðlar 3,4 prósent markaðshlutdeild á farsímamarkaði og 12,6 prósent á internetmarkaði samkvæmt nýjustu tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar.
Í tilkynningunni frá Vodafone segir að þar sem aðilar eru samkeppnisaðilar á markaði hafi kaupandi enn sem komið er haft aðgang að takmörkuðum upplýsingum um hið selda. „Samkomulag þetta er því háð ýmsum forsendum og skilyrðum, þar á meðal að metinn rekstrarhagnaður og horfur í rekstri byggi á forsendum sem eru ásættanlegar að mati kaupanda eftir framkvæmd áreiðanleikakönnunar, auk samþykkis Samkeppniseftirlitsins og eftir atvikum annarra eftirlitsaðila. Nánar verður gert grein fyrir viðskiptunum ef endanlegur kaupsamningur kemst á eða ef viðræður aðila falla niður. Gangi viðskiptin eftir má gera ráð fyrir að gengið verði endanlega frá kaupunum á fyrri hluta ársins 2017.“