Vodafone í viðræðum um kaup á hluta eigna 365 miðla á átta milljarða

365 miðlar
Auglýsing

Fjar­skipti hf., móð­ur­fé­lag Voda­fone á Íslandi, og 365 miðlar hf. hafa und­ir­ritað sam­komu­lag um einka­við­ræður og helstu for­sendur og skil­mála kaup­samn­ings varð­andi mögu­leg kaup á eignum og rekstri ljós­vaka­miðla og fjar­skipta­þjón­ustu 365 miðla hf. Kaup­verðið er áætlað 3,4 millj­arðar króna, greitt með 1,7 millj­arði króna í reiðufé og útgáfu hlut­bréfa í Fjar­skiptum ehf. Auk þess mun félagið yfir­taka 4,6 millj­arða króna af vaxta­ber­andi skuldum 365 miðla, verði af kaup­un­um. Heild­ar­kaup­verðið er því átta millj­arðar króna.

Kaupin eru háð ýmsum for­sendum og fyr­ir­vör­um. Meðal ann­ars eru for­sendur um kaup­verð grund­vall­aðar á upp­lýs­ingum selj­anda og þeim for­sendum að rekstr­ar­hagn­aður hins keypta fyrir fjár­magnsliði, skatta og afskriftir (EBIT­DA), að við­bættum sam­legð­ar­á­hrif­um, geti numið allt að 2 millj­örðum króna á árs­grund­velli.  

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Voda­fo­ne, sem skráð er í Kaup­höll Íslands. Þar segir „Eignir 365 miðla hf. sem und­an­skildar eru í við­skipt­unum sam­kvæmt sam­komu­lag­inu eru Frétta­blaðið og vis­ir.is. 365 miðlar hf. munu halda áfram rekstri frétta­stofu og verður samið um miðlun efnis milli aðila eftir því sem við á.“

Auglýsing

Stefán Sig­urðs­son, for­stjóri Voda­fo­ne, segir að of snemmt sé að segja til um hver end­an­leg nið­ur­staða í við­ræð­unum verði. „Við munum nýta næstu mán­uði vel til þess að kanna hvort for­sendur kaupanna stand­ist." 

Undir ljós­vaka­miðla 365 miðla hf. falla bæði sjón­varps- og útvarps­rekstur félags­ins. Helstu sjón­varps­stöðvar eru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórásin og á útvarps­svið­inu eru það meðal ann­ars Bylgj­an, FM957 og X-ið. Á fjar­skipta­mark­aði hafa 365 miðlar 3,4 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði og 12,6 pró­sent á inter­net­mark­aði sam­kvæmt nýj­ustu töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­un­ar. 

Í til­kynn­ing­unni frá Voda­fone segir að þar sem aðilar eru sam­keppn­is­að­ilar á mark­aði hafi kaup­andi enn sem komið er haft aðgang að tak­mörk­uðum upp­lýs­ingum um hið selda. „Sam­komu­lag þetta er því háð ýmsum for­sendum og skil­yrð­um, þar á meðal að met­inn rekstr­ar­hagn­aður og horfur í rekstri byggi á for­sendum sem eru ásætt­an­legar að mati kaup­anda eftir fram­kvæmd áreið­an­leika­könn­un­ar, auk sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og eftir atvikum ann­arra eft­ir­lits­að­ila. Nánar verður gert grein fyrir við­skipt­unum ef end­an­legur kaup­samn­ingur kemst á eða ef við­ræður aðila falla nið­ur. Gangi við­skiptin eftir má gera ráð fyrir að gengið verði end­an­lega frá kaup­unum á fyrri hluta árs­ins 2017.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None