Hillary birtir læknisvottorð sitt

Hillary Clinton freistar þess að eyða efasemdum um heilsu hennar, með því að birta læknisvottorð. Hún hleður nú batteríin fyrir síðasta slaginn við Trump.

Hillary Clinton
Auglýsing

Hill­ary Clint­on, fram­bjóð­andi Demókrata í kosn­ing­unum í Banda­ríkj­un­um, hefur birt vott­orð frá Lisu Bar­dack lækni hjá CareMount Med­ical, þar sem stendur skýrum stöfum að Hill­ary sé hæf til að starfa sem for­set­i ­Banda­ríkj­anna. Í bréf­inu segir enn fremur að hún hafi fengið sýk­ingu í eyra, áður en hún greind­ist með lungna­bólgu, en hafi fengið lyf til að vinna á henn­i og það hafi gengið vel.

Með lækn­is­vott­orð­inu vill Clinton eyða vafa um það, að hún­ sé ekki hæf til að starfa sem for­seti Banda­ríkj­anna vegna heilsu­brests. Frá því hún þurfti að yfir­gefa minn­ing­ar­at­höfn um árás­irnar 11. sept­em­ber vegna lungna­bólgu og ofhitn­unar þá hefur verið hávær orðrómur uppi um það, að hún sé ekki við góða heilsu. Demókratar fund­uðu um stöðu mála, eftir að Hill­ary yfir­gaf minn­ing­ar­at­höfn­ina og fór til lækn­is, en fljót­lega varð ljóst að hún glímdi við flensu og lungna­bólgu, og þurfti á hvíld að halda. Alvar­legra var það ekki.

Auglýsing


Don­ald J. Trump, and­stæð­ingur hennar í röðum Repúblikana, hik­aði ekki við að skjóta því fram í umræð­una, að Hill­ary væri veik­burða ­jafn­vel þó hún væri yngri en „gaml­ing­inn“ hann sjálf­ur, eins og hann kom­st ­sjálfur að orði. Hill­ary er 68 ára gömul en Trump sjö­tug­ur.

Í bréfi frá Bar­dack lækni, kemur fram að hún hafi geng­ist undir hefð­bundna lækn­is­skoðun þar sem blóð­þrýst­ingur var mældur og almenn heilsa könn­uð. Ekk­ert alvar­legt hafi komið í ljós.

Hill­ary hefur nokk­urt for­skot á Trump í flest­u­m ­skoð­ana­könn­un­um, nú þegar um sjö vikur eru til kosn­inga, en þó er jafnt á mun­um í mörgum ríkj­um. Sam­kvæmt könnun CNN frá því í gær hefur Trump tekið fram úr Hill­ary í Ohio. Spenn­andi loka­sprettur er framund­an, og hefur Hill­ary sagt að hún ætli sér að hlýða læknum í þetta skipt­ið, hvíla lúin bein og koma tví­efld inn í loka­sprett­inn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None