Tilkynnt um sölu ríkisins á eignum til vogunar- og fjárfestingasjóða

Fjármála- og efnahagsráðuneytið gerði samning við Lindarhvoll, félag sem það stofnaði, um að umsýslu, fullnustu og sölu stöðugleikaframlagseigna.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið gerði samning við Lindarhvoll, félag sem það stofnaði, um að umsýslu, fullnustu og sölu stöðugleikaframlagseigna.
Auglýsing

Lind­ar­hvoll, eign­ar­halds­fé­lags í eigu íslenska rík­is­ins, hefur til­kynnt um sölu á hlutum sínum í Glitni Holdco, eign­ar­halds­fé­lagi utan um eft­ir­stand­andi eignir slita­bús Glitn­is, og Klakka ehf., áður Exista. Félagið reyndi líka að selja hlut sinn í Gamla Byr Eign­ar­halds­fé­lagi ehf., en eng­inn hafði áhuga á að kaupa hann. Þetta kemur fram í frétt sem birt hefur verið á heima­síðu Lind­ar­hvols. Eignir Lind­ar­hvolls eru stöð­ug­leika­fram­lags­eignir sem kröfu­hafar föllnu bank­anna afhentu rík­is­sjóði þegar sam­komu­lag náð­ist við þá um upp­gjör slita­búa Glitn­is, Kaup­þings og Lands­banka Íslands.

Þar segir að eign­irnar hafi allar verið aug­lýstar til sölu 29. sept­em­ber. Sam­tals hafi borist fjögur skuld­bind­andi til­boð í ofan­greinda eign­ar­hluti og tengdar kröfur fyrir lok til­boðs­frests. „Nið­ur­staðan úr opna sölu­ferl­inu var með þeim hætti að hæstu til­boðum sem bár­ust fyrir lok til­boðs­frests var tek­ið. Hæsta til­boðið og jafn­framt það eina í Glitni Holdco ehf. átti SC Lowy Primary Invest­ments Ltd., hæsta til­boðið í Klakka ehf. átti BLM fjár­fest­ingar ehf. en engin til­boð bár­ust í Gamla Byr Eign­ar­halds­fé­lag ehf.“ SC Lowy Primary Invest­ments er fjár­fest­inga­sjóður með heim­il­is­festi í skatta­skjól­inu Cayman-eyjum og BLM fjár­fest­ingar ehf. eru í eigu Burlington Loan Mana­gement, vog­un­­­ar­­­sjóð­­s sem er fjár­­­­­magn­aður og stýrt af banda­ríska sjóðs­­­stýr­ing­­­ar­­­fyr­ir­tæk­inu Dav­­­id­­­son Kempner.



Auglýsing

DV hafði þegar greint frá því í lok októ­ber að stjórn Lind­­ar­hvols, hefði sam­­þykkt að selja 17,7 pró­­sent hlut rík­­is­ins í Klakka, sem hét áður Exista, til vog­un­­ar­­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­­gement. Eftir við­­skiptin á Burlington um 75 pró­­sent hlut í Klakka, en helsta eign félags­­ins í dag er fjár­­­mögn­un­­ar­­fyr­ir­tækið Lýs­ing. Burlington, sem var einn umsvifa­­mesti kröf­u­hafi föllnu bank­anna og keypti gríð­­ar­­legt magn af kröfum á þá á eft­ir­­mark­aði fyrir lágar fjár­­hæð­ir, mun greiða 505 millj­­ónir króna fyrir hlut rík­­is­ins í Klakka. Alls bár­ust þrjú til­­­boð í hlut­inn. Bræð­­urnir Ágúst og Lýður Guð­­munds­­syn­ir, oft­­ast kenndir við Bakka­vör, buðu næst­hæst, 501 milljón króna, í hann. Þeir voru aðal­­eig­endur Existu fyrir hrun.



Burlington hóf upp­­­kaup á bréfum í Klakka í jan­úar þegar hann keypti 31,8 pró­­­sent hlut Arion banka í félag­inu. Fyrir átti Burlington 13,2 pró­­­sent hlut í félag­inu. Kaupin hafa öll verið gerð í nafni BLM Fjár­­­­­fest­inga ehf., íslensks dótt­­­ur­­­fé­lags Burlington. Sjóð­­­ur­inn hefur verið stærsti erlendi kröf­u­hafi íslensks atvinn­u­lífs á eft­ir­hrunsár­un­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None