Ford hættir við nærri 200 milljarða uppbyggingu í Mexíkó

Donald J. Trump gagnrýndi stjórnendur Ford og svo virðist sem hlustað hafi verið á hann. Uppbygging fyrirtækisins verður í Michigan en ekki í Mexíkó.

Trump
Auglýsing

Banda­ríski bíla- og véla­fram­leið­and­inn Ford hyggst ekki byggja upp starf­semi fyrir 1,6 millj­arða Banda­ríkja­dala í Mexíkó, eins og hann hafði áður til­kynnt um, heldur verður þess í stað byggð upp enn frek­ari starf­semi í Michigan í Banda­ríkj­un­um. 

Mark Fields, fram­kvæmda­stjóri hjá Ford, til­kynnti um þetta í dag, en mikil upp­bygg­ing fyr­ir­tæk­is­ins í San Luis Potosi í Mexíkó hefur verið slegin af. Þess í stað verður verk­smiðja fyr­ir­tæk­is­ins í Wayne í Michigan notuð til þess að fram­leiða næstu kyn­slóð af Ford Focus bílum fyr­ir­tæk­is­ins en með því tekst að vernda um 3.500 störf í Michig­an, sem ann­ars hefðu flust til Mexíkó, að því er segir í umfjöllun Bloomberg.

Auglýsing




Don­ald J. Trump, sem brátt tekur form­lega við sem for­seti Banda­ríkj­anna, gagn­rýndi Ford harð­lega í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir að flytja störf úr landi og þá einkum til Mexíkó. Hann sagði þetta grafa undan hag­kerfi Banda­ríkj­anna. 

Bill Ford, for­stjóri Ford, sagð­ist í dag hafa rætt upp­bygg­ing­ar­á­form fyr­ir­tæk­is­ins við Mike Pence, vara­for­seta­efni, en sam­kvæmt áformum Ford þá ætlar fyr­ir­tækið að fjár­festa fyrir um 700 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 80 millj­arða króna, til að setja upp fram­leiðslu sem skapa mun um 700 störf til við­bótar í Michig­an. 

Frek­ari upp­bygg­ing fyr­ir­tæk­is­ins í Mexíkó hefur þó ekki verið úti­lokuð í fram­tíð­inni, en Ford seg­ist von­ast til þess að undir stjórn Trumps muni efna­hagur Banda­ríkj­anna blómstra, og þar með ýta undir frek­ari vöxt Ford.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None